VAKTINN E.A.

VAKTINN E.A.

Download on the App Store

VAKTINN E.A. episodes

  • S02E02 - "Þetta er fjölskylduhótel, ekki afdrep fyrir lostalæti."

    Maður minn. Okkar frábæru félagar í Oranjeboom, Álfinum, Coolbet og Skúbb komu clutch fyrir þennan þátt því hann er þétt pakkaður.
    Við förum yfir busanir, kvenfélög og skátamót í Hveragerði. Semsagt stiklað á stóru að vana í bland við djúpköfun þar sem kafað er ofan í kjölin á þætti tvö. Hann er mikilvægur hvað varðar aðlögun karaktera að breyttu sögusviði, sveitinni. 
    Góðar stundir.

    2 hr 5 min
  • S02E01 - "Hvar ertu með liminn Ólafur?"

    Gott að vera komnir aftur kæru vaktarbrósar. Okkar allra bestu vinir eru Oranjeboom, Álfurinn, Coolbet og Skúbb og þökkum við þeim kærlega fyrir.
    Í þætti dagsins köfum við djúpt og kynnumst Reykhólshreppi af alvöru. Álfasögur, Leynivopnið og bolir sem frítt með dóti sem þú verslar í stórmörkuðum.
    Skoðum líka upphaf skátahreyfingarinnar.
    Njótið.

    2 hr 22 min
  • Atvinnuviðtalið - Gunnar Birgisson

    Gunnar Birgisson er góðkunningi flestra landsmanna eftir að hafa verið tíður gestur heima í stofum á sunnudagskvöldum. Það sem fæstir kannski vita er að Gunnar er einnig einn mesti aðdáandi Vaktarseríanna sem finnst og því ber að fagna.
    Við fórum um víðan völl. Hvaða leik opnar Gunnar sínar skákir á, Western Union svindlið sem hann varð fyrir og fáum faglega skýrslu um Natteskiftet, norsku útgáfu Næturvaktarinnar.
    ____

    Atvinnuviðtalið eru þættir þar sem við fáum til okkar góða gesti og ræðum þættina frá sjónarhorni aðdáenda. Við leitumst eftir því að kynnast því hvernig fólk túlkaði þá á mismunandi hátt.

    1 hr 35 min
  • Aukavaktinn - Georg / Jón Gnarr

    Við gætum ekki gert þetta án okkar bestu vina sem eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb
    Þáttur dagsins er í þyngri kantinum. Jón Gnarr er mættur í Georgstof stúdíóið og má með sanni segja að farið sé yfir víðan völl. Lögleiðing skriðdýra, starfsmannasjóðurinn og hvernig sér Jón fyrir sér lífið á Bessastöðum? Ætlar hann að leyfa því að gerast að sýklum þar sé bara gefið að drekka svo þeir verða feitir og pattaralegir?

    1 hr 57 min
  • S01E13 - VIÐHAFNARÚTGÁFAN

    Þá er komið að stóru uppskeruhátíðinni og þökkum við Oranjeboom, Álfinum, Útilegumanninum, Skúbb og Eldey Films fyrir að hjálpa okkur við að gera hana að veruleika.
    Hér snýst allt um seríuna í heild sinni. Við hringum í Pálma fyrrum verslunarstjóra á bensínstöð Skeljungs við Laugaveg og veitti hann okkur innsýn í líf starfsmanns við bensínstöðina á þessum tíma. Hvað stóð uppúr í seríunni? Georg leggur línurnar fyrir komandi seríur og sýnir að hann vill vera aðal. Ferðumst aftur í tímann á hestvögnum.
    Takk fyrir okkur.

    2 hr 30 min
  • S01E12 - "Má það vera á kreditkortanúmeri móður minnar?"

    Við erum hér þökk sé Oranjeboom - Álfurinn - Útilegumaðurinn - Skúbb - Eldey Films.
    Tilfinningaþrungin stund en það er komið að síðasta þættinum. Uppgjör á uppgjör ofan. Barn verslar á kreditkortanúmeri móður sinnar. Förum í utanlandsferð og skoðum hvort það sé turn-off að aðili af hinu kyninu vilji versla rúm í IKEA frekar en í verslun sem býður upp á vörur sem fara betur með bakið á manni.
    Takk.

    2 hr 9 min
  • S01E11 - "Styður þú klám?"

    Okkar allra bestu vinir eru Álfurinn, Oranjeboom, Útilegumaðurinn, Skúbb og Eldey Films.
    Kæru hlustendur, það er komið að því. Nú býðst ykkur að hlusta á okkur ræða um læðuna og dekkin... og rotturnar. Sprengjum nokkrar bólur, eru starfsmenn bensínstöðva klámfíklar og kynfræðsla Vaktans í fyrsta skipti. Njótið.

    2 hr 20 min
  • Aukavaktinn - Daníel / Jörundur Ragnarsson

    Vá. Jörundur Ragnarsson sjálfur kom til okkar og ræddi við okkur um Daníel Sævarsson og fleira. Flestir ættu að þekkja Daníel en hver er Jörundur? Fæstir vissu hvað væri framundan þegar hann mætti seint á Hyundai Accentinum sínum í prufu hjá téðum leikara Ragnari Bragasyni en eina sem maður getur sagt er bara rest is history.
    Þökkum Jörundi kærlega fyrir komuna. Takk.

    58 min
  • S01E10 - "Við ætluðum til Svíþjóðar hálfvitinn þinn."

    Okkar allra bestu eru Oranjeboom - Álfurinn - Útilegumaðurinn - Skúbb - EldeyFilms
    Þá er komið að honum, stóri peningaþátturinn. Ef það er einhver þáttur sem við hvetjum ykkur til að horfa á tvisvar þá er það þessi. Peningar, peningar, peningar. Gott að hafa viðskiptafræðing sem einn af þáttastjórnendum Vaktans, þá verður öll slík umfjöllun fagleg. Við förum yfir gengi. Við förum yfir útilegur og hvernig er hægt að ná hámarksnýtingu á skottinu á bílum. RISA TILKYNNING og fleira skemmtilegt. Daníel Sævarsson er endanlega búinn að drepa niður drauma fjölskyldu sinnar um að það yrði nokkurn tímann eitthvað úr honum.
    Njótið.

    1 hr 54 min

About VAKTINN E.A.

From the publisher's feed

Almyrkvinn markaði kaflaskil í lífi Íslendinga.

Fylgið okkur á Instagram og TikTok - VAKTINN
[email protected]