VAKTINN E.A.

VAKTINN E.A.

Download on the App Store

VAKTINN E.A. episodes

  • Aukavaktinn - Halli / Vignir Rafn Valþórsson

    Við fengum til okkar leikarann Vigni Rafn Valþórsson sem fer með hlutverk Halla í þætti nr. 9. Einfaldlega nokkrir mekkar þarna sem við bara þurftum að vita meira um og fengum að spyrja hann spjörunum úr. 
    Hljóðgæðin eru ekki þau bestu en við gerum gott úr þessu. Njótið kæru vinir.

    45 min
  • S01E09 - "Skák og mát, herra stórmeistari"

    Stóri ORANJEBOOM þátturinn og maður minn, hann er stór.
    Okkar allra bestu vinir eru Oranjeboom - Álfurinn - Útilegumaðurinn - Skúbb - Eldey films.
    Þetta er skákþátturinn ógurlegi. Halli er kynntur til leiks. Fáum að kynnast Svíþjóð og Du gamla du fria. Hjörvar Steinn stórmeistari í skák er á línunni auk þess sem þið eigið eftir að læra margt og við eigum eftir að kenna ykkur mikið að hætti Master Splinter í Teenage Mutant Ninja Turtles. Góðar stundir.

    2 hr 12 min
  • S01E08 - "Fólkið á götunni."

    Í boði okkar yndislegu vina Oranjeboom - Álfurinn - Skúbb - Eldey Films.
    Kosningar, kosningar, kosningar. Hinn stóri kosningaþáttur. Þetta þarf í rauninni ekkert að vera flókið. Þorsteinn Joð á línunni að fara yfir kosningavökur og portable TV. Takk fyrir.

    1 hr 53 min
  • S01E07 - "ÆFÐU GRIP!"

    VAKTINN þáttur 7 - í samstarfi með okkar bestu Oranjeboom - Álfurinn - Skúbb - Eldey Films
    Ó hvað þetta var skemmtilegur þáttur. Við hringum í Magna okkar Ásgeirsson og fengum mekanisma frá honum. Við hringdum í Gumma Kíró og fengum að vita hvort Shell sé með nettann starfsmannaklæðnað. Við hringdum í Fjallkonuna 2023 og fengum að vita hvað þarf í raun til til að hljóta nafnbótina Fjallkona Ársins. Hálffull vatnsfata, hollíblöndungar, Bogga systir í öllu sínu veldi og peningasvindl í GTA.
    Njótið vel.

    2 hr 4 min
  • S01E06 - "Konan mín er japönsk!"

    Í boði okkar allra bestu vina Oranjeboom - Álfurinn - Skúbb - Eldey Films
    Það er komið að þætti 6 sem hlotið hefur einkunnina 9,4 á IMDb. Þetta er risa þáttur svo ekki sé meira sagt. Fáum Jón Gunnar Geirdal, frasakóng, til okkar í settið og hann er með frasafræðslu par exelans fyrir okkur. Afhverju laktósa karlmenn? Til hvers notar fólk sólarvörn á Íslandi? Georg Bjarnfreðarson exposear sig og djúpgreining á tegund svindla sem kallast "419 Scam" og hefur verið kennt við konungsborna aðila í seinni tíð.
    Góðar stundir.

    2 hr 33 min
  • S01E05 - "Ertu ekki að fá það heima hjá þér?"

    VAKTINN ÞÁTTUR 5 - OKKAR ALLRA BESTU ERU ORANJEBOOM - ÁLFURINN - SKÚBB - ELDEY FILMS
    Byrjum þennan þátt á stuttri yfirferð á liðnu ári. Afhverju er meyjan geitin í stjörnumerkjaleiknum? Kiddi Casio á línunni og nei, við vorum ekkert að sleikja flísarnar á gólfinu í þessum þætti.
    Takk og góðar stundir.

    2 hr 1 min
  • S01E04 - "Með nafni og mynd."

    Okkar allra bestu eru Oranjeboom - Álfurinn - Wok On - Eldey Films - Skúbb
    25% afsláttur á Wok On með kóðanum VAKTINN.
    Þáttur fjögur er einn af þessum stóru sérstaklega ef litið er til gestaleikara. Við sláum á þráðinn á nokkra af virtustu leikurum landsins. Förum yfir þessar allra helstu Séð og Heyrt stelpur í gegnum tíðina, konur á sjó, hvernig á að photobomba á þann hátt að þú verðir megin áhersla ljósmyndarinnar en ert ekki bara inná henni eins og klessa og kynnumst austurlenskri tónlist.
    Góðar stundir.

    1 hr 45 min
  • S01E03 - "Voru strákar að tússa þig í framan?"

    Okkar dáðustu félagar eru
    Oranjeboom - Álfurinn - Skúbb - Wok On - Eldey Films
    Þáttur þrjú er jafn akademískur og hann er dýnamískur. Gefum minni spámönnum seríunnar rödd. Hvað gera Soroptimistar eiginlega? Komumst að því hvað þetta langa vopn sem riddarar nota á hestbaki heitir og gefum þér dýpstu greininguna á Læðunni.

    1 hr 45 min
  • S01E02 - "Skottastu upp í Skipholt!"

    Okkar bestu vinir eru Oranjeboom - Skúbb - Eldey Films - Wok On - Álfurinn Sportbar
    Þáttur tvö fór beint á toppinn í Næturvaktin power ranking hjá okkur Vaktar brósum og maður lifandi, þetta er frábær þáttur. Gríðarlega mikið efni til að fara yfir. Breiðhyltingur ársins 2019, ryðgað skrúfjárn, meðalgreind og hvar á höfuðborgarsvæðinu eru mestar líkur á að finna dós við dós? Hlustið og njótið kæru vinir. Ást og friður.

    1 hr 35 min
  • S01E01 - "Salt og vindur í andlit, eigum við að ræða það eitthvað eða?"

    Vaktinn - Fyrsti þáttur
    Við erum í boði Oranjeboom - Done - Skúbb  - Eldey Films
    Förum yfir víðann völl og ræðum öll þessi helstu mál. Skoðum nokkur af þessum allra stærstu ljóðskáldum norðurlandanna, kryfjum höfuðáverka og Lilli Klifurmús þá meistara gítar sláttur mús í bland við gríðarlega ítarlega djúpgreiningu á fyrsta þætti af þjóðargerseminni, Næturvaktin. Njótið og góðar stundir.

    1 hr 33 min

About VAKTINN E.A.

From the publisher's feed

Almyrkvinn markaði kaflaskil í lífi Íslendinga.

Fylgið okkur á Instagram og TikTok - VAKTINN
[email protected]