Valur - Hljóðvarp

Valur - Hljóðvarp

By Knattspyrnufélagið Valur - PodcastSports
Download on the App Store

Valur - Hljóðvarp episodes

  • SE5 - EP06 - Elísa Viðars - Þáttur frá 30. ágúst
    Eftir sumarleyfi, tæknivesen og golfbakteríu mættum við vængstífðir og uppveðraðir á fjalir Borgarholtsskóla eða President Borgó eins og hann hefur verið kallaður. Nýtt stúdíó og ný hljóðmynd kynnt til leiks! Og það var heldur betur margt að ræða! Meðal annars var hringt í Elísu Viðars en stelpurnar okkar i fótboltanum eru að fara til Albaniu a mánudag i Evrópukeppnina og þá heyrðum i Valsara vikunnar sem ætlar að endurvekja golfmót Vals núna í september. Við ræddum körfubolta, fyrirkomulagið á sýningarréttinum í handboltanum, 40 ára afmælishátíð Herrakvölds Vals og hvernig eigi að panta sér Hlölla í Öskjuhlíðinni. Allt þetta rúllaði a rúmum 40 mínútum en tók samt marga klukkutíma i framleiðslu enda eiga Vængirnir og tæknimál ekki alveg skap saman. Við þökkum Leifi Benediktssyni fyrir hvatninguna og stefnum á að að taka upp fleiri þætti sem fyrst.
    43 min
  • SE5 - EP05 - Allt í gangi, afmælisdagur og Birkir Már
    Afmæli félagsins okkar í dag og það eru margar gjafirnar sem má gleðjast yfir þessa dagana. Af því tilefni fengum við einn okkar dáðasta son í spjall, Birkir Már settist i Toggastofu til að fara yfir hlutina og það var af nógu af taka. Maí er kannski okkar skemmtilegasti mánuður þar sem barist er á nánast öllum vígstöðvum og Birkir og fjölskyldan daglegir gestir í Valsheimilinu. Birkir átti stórleik á dögunum gegn KR-ingunum og lagði upp þrjú mörk. Við fórum yfir leikinn sem hann segir jafnvel komast á topp fimm listann yfir bestu leiki sem hann hefur tekið þátt í. Og þar er af nógu að taka. Við ræddum líka úrslitaeinvígið í körfunni sem er við suðupunkt en Birkir hefur ekki látið sig vanta á þá leiki. Við erum orðnir feykispenntir fyrir leiknum á morgun og upphitun í Fjósinu frá væntanlega miðjum degi. Við ræddum líka úrslitaeinvígið framundan við ÍBV í kvennahandbolta og og okkar nýjustu Íslandsmeistarara í körfu kvenna. Við sögu kemur líka háskólanám í sænsku og Tik-Tok vídjó, svo já, það var farið vítt yfir um það bil 40 mínútum. Hlökkum til morgundagsins og að sjá ykkur í næstu stríðum!
    40 min
  • SE5 - EP05 - Fyrsti leikur í bestu og úrslitakeppnirnar innanhúss
    Arnór Ben, einn harðasti stuðningsmaður Vals settist niður með Vængjunum að loknum leik Vals og Stjörnunnar í Origo í úrslitakeppninni í körfu karla. Við höfðum nauman tíma áður en húsinu var lokað en ræddum stórsýningu Kára Jónssonar í leiknum, stöðuna í einvíginu við Stjörnuna og Hauka kvennamegin í körfunni og mögulegan þríhöfða hjá okkur Völsurum á sunnudaginn næstkomandi þegar Valur spilar meðal annars við Blika í Bestu deild karla. Þá gerðum við upp leikinn við ÍBV í fyrstu umferð Bestu deildar karla en Arnór er einn þeirra sem heldur úti Fasteignafélaginu á FB sem skilar skýrslum um leikina í Bestu. Njótið hér.
    Eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
    28 min
  • SE5 - EP04 - Farið yfir sviðið og Arnar Grétars í spjalli
    Við settumst niður í Toggastofu í dag og reyndum að fara yfir allt það helsta sem snýr að okkar ástkæra félagi þessa dagana og þar er að nógu af taka!
    Líkt og flestir hafa áttað sig á þá er marsmánuður senn á enda sem þýðir yfirvinna á Valsara og útsjónarsemi með dagatalið. Við fórum aðeins yfir bikarúrslit kvenna í handbolta nú um helgina, undanúrslitin í Lengjubikarnum, og stöðuna hjá meistarflokkunum í körfunni nú þegar stutt er í úrslitakeppnina. Og svo er það morgundagurinn! Framundan er sannkallað stríð gegn þýska stórliðinu Göppingen hjá strákunum í handboltanum og ljóst að Evrópuhöllin okkar mun skartasta sínu fegursta annað kvöld. Þetta verður geggjað! Óskari Bjarna fékk sérstakar hamingjuóskir með stórafmælið á dögununum og í seinni hluta þáttar kom svo Arnar Grétarsson í heimsókn. Það er alltaf gaman að hlusta á Arnar. Strákarnir hans unnu Víking í vikunni og eru að fara til Tene að tana og æfa en nú er komið að lokahnykknum á undirbúningstímabilinu fyrir alvöruna sem hefst 10. apríl Þeir stefna hátt – eins og alltaf. Sjáumst hress á morgun á Evrópukvöldi með gleðina að vopni!
    39 min
  • SE5 - EP03 - Hitað upp fyrir leikinn gegn PAUC - Fúsi, Gaupi og Dagur Sig
    Hér er dottinn inn sérstakur upphitunarþáttur fyrir stórleikinn í Evrópudeildinni í handknattleik annað kvöld þegar Valsmenn mæta franska liðinu Pauc. Af þessu tilefni var farið á sérstakan Evrópurúnt í hlaðvarpinu Vængjum þöndum. Við byrjuðum í Skipholtinu hjá Sigfúsi Sigurðssyni en hann afgreiddi af miklum móð fiskibollur í tilefni dagsins. Fúsi hefur að sjálfsögðu ekki látið sig vanta á leikina í vetur og hann ræddi við okkur um hans tilfinningu fyrir liðinu og leiknum á morgun. Þaðan var brunað á Hlíðarenda þar sem æfing liðsins var að klárast og verið að stilla upp í blaðamannafund fyrir leik morgundagsins. Það var margt góðra manna á svæðinu. Gaupi kom í stutt spjall sem lofaði að hann myndi gefa allt í þetta í stúkunni annað kvöld og í lokin náðum við í skottið á Degi Sigurðssyni, fórum yfir m.a. yfir Evrópuleikina í vetur, umgjörðina, möguleikana á morgun og hvernig keppnin getur lyft íslenskum handbolta. Nú er að hafa hraðar hendur að tryggja sér miða enda stefnir í hörku mætingu enda fátt skemmtilegra en Evrópukvöld á Hlíðarenda.
    26 min
  • SE5 - EP02 - Björgvin Páll
    Olís deildin í handbolta er farin að rúlla af stað á nýjan leik eftir HM-hléið. Við fengum Björgvin Pál í smá heimsókn í Toggastofu og fórum yfir vertíðina framundan í handboltanum. Við ræddum aðeins heimsmeistaramótið sem er að baki, Evrópuleikina næstu vikurnar þar sem allt verður undir og taktinn að spila tvo leiki á viku í deild og Evrópu. Valsliðið er þessa stundina á ferðalagi til Flensburg þar sem er framundan spennandi verkefni gegn einu besta liði Þýskalands. Við fórum svo líka stuttlega yfir stöðu handboltans almennt með Bjögga. Njótið!
    26 min
  • SE5 - EP01 - Arnar Grétars
    Arnar Grétarsson, þjálfari okkar í fótboltanum, settist í Toggastofu eftir matarbita í Fjósinu. Trúlega hefði þetta geta verið fimm tíma spjall enda ekkert eðlilega gaman að tala um fótbolta við Arnar. Hann er hafsjór af fróðleik og metnaðurinn hreinlega lekur af honum. Hann vill gera allt til að vinna. Og hér er klukkutímaspjall um hvernig við förum upp í hæstu hæðir á ný. Leiðin þangað er grýtt en Arnar hefur skýra sýn um það hvernig hann vill gera hlutina.
    Jóhann Alfreð forfallaðist á síðustu stundu vegna Gettu Betur sem hefst innan tíðar en við Breki mættum í Toggastofu til að fara yfir hlutina með Arnari sem gerði fjögurra ára samning í nóvember. Við þökkum vinnuveitendum okkar kærlega fyrir skilninginn á sérverkefnum fyrir Val.
    Arnar er margreyndur landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu, lék með liðum eins og Glasgow Rangers, AEK Athens, KSC Lokeren og á 72 leiki með A landsliði Íslands. Eftir að knattspyrnuferlinum lauk tók Arnar við sem tæknilegur ráðgjafi hjá AEK Athens í Grikklandi og síðar sem yfirmaður knattspyrnumála hjá ClubBrugge í Belgíu. Þjálfaraferill Arnars hófst hjá Breiðablik og síðar tók hann við liði Roeselari í Belgíu áður en hann tók við stjórnartaumum hjá KA. Við Vængjamenn erum spenntir fyrir komandi tímum með Arnar í brúnni og vonum að þið séuð það líka.
    Í seinni hlutanum fórum við örstutt yfir komandi bikarviku í körfuboltanum, okkar menn í landsliðinu og svo Evrópukeppnina í handboltanum þar sem verður spilað alla þriðjudaga í febrúar.
    59 min
  • S4 - EP11 - Áramótaþáttur - Dagur og Bjarki Sig og Pavel
    Áramótaþáttur Vængjum þöndum.
    Í Valsblaðinu sem kom út fyrir stuttu síðan mátti finna viðtal sem bræðurnir Dagur og Bjarki Sig tóku við Pavel Ermolinskij í Toggastofu. Spjallið þeirra var tekið upp og birtist nú í hlaðvarpinu í lengri útgáfu. Það er eiginlega næg kynning og engu við það að bæta. Njótið vel og gleðilegt ár kæru Valsmenn. Takk fyrir hlustanir og takk fyrir árið 2022 þar sem sex titlar komu í hús. Heyrumst á nýju ári.
    1 hr
  • SE4 - EP10 - Snorri Steinn
    Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Meistaraflokks karla, kom í Toggastofu, til að fara yfir þær áskoranir sem eru framundan hjá liðinu. ÍR í kvöld, FTC á þriðjudag á dúknum í Origo í Evrópudeildinni, Grótta á föstudag og loks Benedorm á laugardag. Já, það er nóg framundan og þjálfarinn talaði tæpitungulaust og fór ekki í felur með hversu stórt þetta Evrópuævintýri okkar er. Snorri er einstakur maður og það er gaman að hlusta á hann tala af ástríðu um liðið okkar og félagið. Þetta er góð hlustun. Við eiginlega lofum. Í síðari hlutanum settumst við Vængjamenn niður og rúlluðum vítt yfir sviðið. Ræddum meðal annars lokasprettinn í Bestu deild karla og þjálfaraskiptin framundan. Góða helgi kæru Valsarar. Og sjáumst svo öll þriðjudag. Hvað það verður gaman!
    50 min
  • SE4 - EP9 - Björgvin Páll
    Það var rífandi stuð i Toggastofu þegar einn af okkar bestu félagsmönnum Björgvin Páll Gústavsson fékk sér sæti, nýkominn af sófadögum Húsgagnarhallarinnar. Bjöggi hefur komið eins og stormsveipur inn i félagið okkar og Valssporið er ein af hugmyndunum sem hann hefur verið að útfæra þar. Hann fór yfir mjög spennandi vetur sem er framundan í handboltanum og stemmninguna fyrir ævintýrinu sem er handan við hornið út um alla álfuna í Evrópudeildinni i handbolta og uppganginn í íslenskum handbolta. Rétt áður en Björgvin leit við var litið yfir leiki Vals og Breiðablik í karlaboltanum og í fræknum bikarúrslitaleik kvenna.
    35 min

About Valur - Hljóðvarp

From the publisher's feed

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!