Valur - Hljóðvarp

Valur - Hljóðvarp

By Knattspyrnufélagið Valur - PodcastSports
Download on the App Store

Valur - Hljóðvarp episodes

  • SE3 - EP14 - Björgvin Páll
    Það var magnað að labba inn í Origo-höllina á þriðjudagskvöld þegar Valsmenn mættu Lemgo í hörkurimmu í Evrópukeppninni í handbolta. Veturinn ber fögur fyrirheit og við fengum einn nýjasta liðsmann okkar, landsliðsmarkvörðinn Björgvin Pál Gústavsson til að setjast niður með okkur í Toggastofu. Við fórum að sjálfsögðu yfir leikinn á þriðjudagskvöld, atvikið umdeilda og hvernig hann er að upplifa lífið í Val. Það var eins og Bjöggi hafi alltaf verið í Val. Hann er svo sannarlega ekki að tjalda til einnar nætur og ætlar sér að marka spor í sögu félagsins. Magnað spjall og við mælum eindregið með hlustun! Í lokin fórum við stuttlega yfir lokin á knattspyrnuleiktíðinni, vonbrigðin karlamegin og völdum leikmann ársins að mati Vængjanna sumarið 2021. Njótið vel.
    45 min
  • SE3 - EP13 - Titlaspjall við Fanndísi Friðriks og Elísu Viðars
    Þær Elísa Viðarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir mættu í Toggastofu til að fara yfir Íslandsmeistarasumarið. Þó tvær umferðir séu eftir er 124 titill okkar Valsmanna kominn í hús. Því ber að fagna og spjalla um.
    Þær Eyjasystur fóru um víðan völl. Stuðið um kvöldið og hvernig hægt væri að fagna þessum titli í raun þrisvar sinnum. Tapið gegn Blikum en einnig var stígið inn í kvennréttindabaráttuna. Þar hrósuðu þær þjálfara sínum Pétri Péturssyni fyrir sína baráttu en um leið er leiðinlegt að heyra að það þurfi að berjast enn fyrir hlutum í Val. Það er bara asnalegt árið 2021. Spjallið endaði svo á að fræða okkur um pysjuveiðar.
    Síðari hlutinn fór í karlaboltann. Tapið gegn Víking gert upp, upphitun fyrir Stjörnuna sett á borð og spáð og spekúlerað í framhaldið. Ótrúlegt en satt þá spá Vængirnir að Valur verði meistari. Eiginlega enn ótrúlegra þá kom Memphis Grizzlies við sögu. En þetta er vonandi gott helgarnesti. Sjáumst vonandi öll á morgun.
    58 min
  • SE3 - EP12 - Birkir Heimis
    Langt síðan síðast og löngu kominn tími á að setjast yfir málin í Toggastofu. Og við fengum góðan gest til okkar. Birkir Heimisson hefur vakið athygli fyrir góða spilamennsku á tímabilinu. Þessi ungi leikmaður fór yfir uppvaxtarárin í Þorpinu, tímann sinn í Hollandi og veru sína í Val í stuttu spjalli. Við gíruðum okkur auðvitað fyrir Víkingsleikinn og eftir að Birkir hvarf á braut fórum við stuttlega yfir stöðuna bæði karla- og kvennamegin í fótboltanum.
    36 min
  • SE3 - EP11 - Kristinn Freyr og Túfa
    Það er orðið langt um liðið frá síðustu útgáfu og löngu orðið tímabært að setjast aðeins niður. Að þessu sinni hituðum við upp fyrir stórleikinn sem framundan er í Meistaradeildinni gegn Dinamo Zagreb annað kvöld. Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals settist niður, fór yfir ferðasöguna til Króatíu, fyrri leikinn, spáði í spilinn fyrir leikinn á morgun og loks var aðeins farið yfir tímabils Valsmanna í deildinni fram að þessu en deildarkeppnin er rúmlega hálfnuð. Í blálokin birtist svo aðstoðarþjálfari Vals, Túfa og í stuttu spjalli hituðum við upp fyrir stórleiknn á morgun.
    36 min
  • SE3 - EP10 - Óskar Bjarni
    Það er stór vika framundan á Hlíðarenda. Eftir dramatíska lokamínútu gegn ÍBV er meistarflokkur karla í handbolta komið í úrslitaeinvígi gegn systurfélaginu Haukum. Stórleikur á Hlíðarenda annað kvöld og við fengum engan annan en Óskar Bjarna Óskarsson, aðstoðarþjálfara liðsins í stutt spjall til að fara yfir úrslitakeppnina fram að þessu og hituðum svo upp fyrir einvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Í seinni hlutanum fórum við stuttlega yfir síðustu leiki Vals í knattspyrnunni, spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Blikum á miðvikudag og hvað kynni að koma upp úr hattinum í fyrramálið þegar dregið verður í Evrópukeppninni þar sem Valsmenn verða í hattinum.
    32 min
  • SE3 - EP9 - Svali Björgvins
    Valur eru Íslandsmeistarar kvenna í körfuknattleik og karlaliðið stimplaði sig svo sannarlega inn meðal þeirra bestu í rafmögnuðu einvígi við KR-inga. Það var þess vegna góður dagur í Toggastofu á Hlíðarenda þegar við tókum á móti sjálfum Svala Björgvinssyni, formanni körfuknattleiksdeildarinnar. Við gerðum upp magnaðan en líka krefjandi vetur í körfunni í Val. Frasakóngurinn sjálfur er auðvitað hafsjór af fróðleik og við áttum skemmtilegt spjall um Frank Booker, 800 metra hlaupin í Bandaríkjunum, uppbyggingu körfunnar í Val, veturinn sem var og auðvitað var rætt um goðsögnina Helenu Sverrisdóttur.
    Í lok þáttar hituðum við svo stuttlega upp fyrir stórleikinn gegn Víkingum í Pepsi Max deildinni á mánudag.
    56 min
  • SE3 - EP8 - Einar Örn Jónsson
    ,,Það er sirka 70% vinna að halda með Val þessa dagana” sagði seinni viðmælandi Vængjanna í útgáfu dagsins. Það átti vel við enda bókstaflega allt í gangi á Hlíðarenda þessa dagana. Þar af leiðandi fengum við einn af okkar allra bestu sonum, íþróttafréttamanninn Einar Örn Jónsson, í Þorgrímsstofu og fórum vítt yfir sviðið og landsslagið í íþróttunum. Það er jú nánast þannig að það er nánast full vinna að halda með Val þegar sex deildir berjast á öllum vígstöðvum. Einar Örn ólst upp á Hlíðarenda og spilaði með handboltaliðinu til aldamóta þegar hann gekk í raðir Hauka. Einar er hafsjór af fróðleik og örstutt heimsókn varð til þess að hann var orðinn of seinn að sækja mömmu sína. Við renndum yfir útlitið hjá bæði körlum og konum í öllum boltaíþróttunum þremur á þessum háannatíma.
    Í blálokin gripum við svo Arnór Ben, einn harðasta stuðningsmann Vals í stutt símaspjall. Það heyrðist vel í Arnóri og félögum í Frostaskjóli í gær og við renndum örstutt yfir leikinn og það sem framundan er.
    44 min
  • SE3 EP7 - Elísa Viðars og Eiður Ben
    Vængirnir strikuðu niður á Hlíðarenda nú þegar rúmur sólarhringur er í fyrsta leik Vals í Pepsi Max deild kvenna. Eiður Ben, aðstoðarþjálfari og Elísa Viðarsdóttir, reynslubolti í liðinu komu í skemmtilegt spjall. Við fórum yfir komandi sumar, breytingar á hópnum, markmiðin, komandi Evrópukeppni og stöðuna í kvennaboltanum almennt. Í seinni hlutanum leit við Stígur Helgason, fréttamaður í uppgjör á fyrsta leik karlaliðsins gegn Skaganum og í örlitla upphitun fyrir FH-leikinn á sunnudag.
    44 min
  • SE3 EP6 - Andri Adolphs, Arnór Smára og Tómas Þór
    Mótið er handan við hornið og Vængjum Þöndum tók á loft í Toggastofu með þá Andra Adolphson og Arnór Smárason enda er fyrsti leikurinn gegn ÍA á föstudag. Báðir þekkja vel til á Skaganum. Andri flutti ungur að árum upp á Skipaskaga og Arnór er uppalinn þar á bæ. Andri er að koma til baka eftir erfið meiðsli og Arnór er að verða klappaður og klár eftir að hafa verið lengi frá. Þeir fóru aðeins yfir sviðið, komandi tímabil, meiðslin og markmiðin. Í lokin kom svo Tómas Þór, ritstjóri enska boltans á Íslandi og einhver fróðasti maður landsins þegar kemur að íslenskum fótbolta. Hann er hafsjór af fróðleik enda eiginlegur tengdasonur Vals. Þetta var rúmur klukkutími og við skemmtum okkur vel við gerð þáttarins og vonandi skilar það sér í ykkar eyru. Sjáumst svo vonandi sem flest á föstudag!
    1 hr 11 min
  • Höll Minningana II - Valur-Fram 1998
    Vængirnir fljúga afram þótt Covid hafi sett allt annað i stopp.
    Höll minninga snýr aftur og nú er komið að því að rifja upp einn eftirminnilegasta titil okkar i handboltanum - bikarmeistaratitilinn 1998.
    Við fengum tvo af okkar dáðustu sonum Óskar Bjarna og Theódór Valsson til að rifja upp þennan magnaða leik og gullaldarárin í handboltanum á þessu tíma.
    57 min

About Valur - Hljóðvarp

From the publisher's feed

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!