Valur - Hljóðvarp

Valur - Hljóðvarp

By Knattspyrnufélagið Valur - PodcastSports
Download on the App Store

Valur - Hljóðvarp episodes

  • Vængjum Þöndum SE3 EP5 - Birkir Már
    Vængirnir mínus Gettu betur stjarnan Jóhann Alfreð fengu einn okkar allra dáðasta son Birki Ma til að kikja i Toggastofu og fara yfir málin. Birkir kom a hlaupahjóli með þungarokk i eyrunum. Það styttist i 100 landsleikina hjá okkar manni en það er fátt skemmtilegra en að setjast niður með Birki og tala um fótbolta.
    Við fórum lika aðeins yfir stöðuna i hand- og körfubolta en aðalmalið var landsliðið og leikurinn a laugardag, Valur - kr. Sjáumst i hádeginu a laugardag.
    37 min
  • Vængjum Þöndum S4EP3 - Heimir
    Við náðum í Heimi Guðjónsson á milli æfinga hjá karlaliði Vals í fótbolta. Valsmenn taka nú fullan vinnudag tvisvar í viku. Við forvitnuðumst um það, hvernig leikmannamálin standa og hituðum upp fyrir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins sem fram fer á morgun.
    23 min
  • Vængjum Þöndum S4 EP2 - Finnur Freyr
    Finnur Freyr þjálfari karlaliðs Vals í körfubolta kíkti í Toggastofu. Við fórum yfir stöðuna á liðinu, markmiðin í vetur, sóknina í körfunni á Hlíðarenda og hituðum upp fyrir stórleikinn framundan gegn KR í Dominos-deildinni.
    39 min
  • S4 EP1 - Höll Minningana I - Bjössi og Bjarni Ólafur
    Enn er ekkert spilað og því göngum við inn í Höll minninganna sem er nýr liður sem verður vonandi endurtekinn reglulega. Að þessu sinni rifjum við upp sumarið 2007, þegar karlaliðið í fótbolta varð Íslandsmeistari. Við fengum tvo af máttarstólpunum þetta sumarið, fyrirliðann Sigurbjörn Hreiðarsson og Bjarna Ólaf Eiríksson sem fóru yfir ævintýrið þegar við lönduðum þeim stóra í fyrsta skipti í tuttugu ár.
    1 hr
  • S3 EP17 - Áramótauppgjör
    Við áramót er gott að staldra við og líta um öxl. Í þessari sérstöku áramótaútgáfu fengum við þjálfara Vals í handknattleik karla og Valsgoðsögnina Snorra Stein Guðjónsson til að líta við. Við tókum púlsinn á liðinu en stefnt er að því að byrja að spila í seinni hluta janúar og hituðum líka upp fyrir Heimsmeistaramótið í handbolta sem er framundan. Þá mætti Valgeir Lunddal til okkar í kveðjuspjall. Hann er á förum frá félaginu eftir frábært sumar og mun ganga til liðs við Hacken í Svíþjóð.
    1 hr 6 min
  • Vængjum Þöndum - S3 EP16 - Eiður Ben
    Við höldum áfram að gera upp liðið tímabil í fótboltanum í Val og nú er komið kvennatímabilinu. Við fengum aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna, hann Eið Ben í gott spjall. Fórum yfir sumarið, úrslitaleikina við Blika, Evrópuleikina nú á dögunum og mögulegar hræringar í leikmannamálum.
    39 min
  • Vængjum Þöndum S3 EP15 - Heimir Guðjóns
    Við gerðum upp liðið tímabil nú þegar ákveðið hefur verið að setja punkt fyrir aftan Íslandsmótið 2020. Valur er Íslandsmeistari karla og Heimir Guðjónsson, þjálfari mætti í spjall. Fórum um víðan völl, ræddum liðið tímabil, umgjörðina í Val og það sem framtíðin ber í skauti sér. Í seinni hlutanum mætti góðvinur þáttarins Stígur Helgason. Fórum yfir leik stelpnanna í meistaradeildinni gegn Glasgow áður en við helltum okkur í að gera upp liðið sumar.
    1 hr 12 min
  • Vængjum Þöndum S3 EP14
    Þær Mist Edvardsdóttir og Elísa Viðarsdóttir kíktu til okkar Vængjabræðra þar sem ýmislegt var rætt. Besta bíómyndin, kúlturinn í Val, næringuna og auðvitað komandi leik gegn Breiðablik. Úrslitaleikinn um titilinn en stelpurnar fóru í taktík í dag og á föstudag verður skipt í ungir gamlir og endað á skotkeppni en ungar hafa ekki unnið í tvö ár. Þetta er góður hálftími og gleðilegur enda stutt í sannkallaðan stórleik. Mætum öll og styðjum okkar fólk til góðra verka.
    31 min
  • Vængjum þöndum S3 E13
    Þeir Breki Logason og Benedikt Bóas settust niður eftir jafnteflið við Blika og ræddu þessa mögnuðu viku og þessa stórsigra sem unnust áður en bakverðirnir okkar mættu á svæðið til að fara yfir sama svið. Valgeir Lundal átti 19 ára afmæli í vikunni og Birkir Már getur ekki hætt að skora. Magnaðir báðir tveir.
    30 min
  • Vængjum Þöndum S3E12
    Benedikt Bóas, Breki Logason og Stígur Helgason settust niður eftir níunda sigurleikinn í röð. Spjölluðu aðeins en þessir leikir sem byrja svona seint eru greinilega ekki gerðir fyrir Podcast því það þurfti að hætta skyndilega - enda þjófavarnakerfið að fara af stað. Það var því aðeins farið yfir leikinn og gesturinn slapp við mætingu þó við sem þekkjum skólakerfið setjum S á kappann.
    23 min

About Valur - Hljóðvarp

From the publisher's feed

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!