Valur - Hljóðvarp

Valur - Hljóðvarp

By Knattspyrnufélagið Valur - PodcastSports
Download on the App Store

Valur - Hljóðvarp episodes

  • Vængjum þöndum S3E2
    Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð kíktu í Valsheimilið og hittu á meistara Srdjan Tufegdzic, Túfa. Hann hefur sögu að segja og er að klára UEFA PRO gráðuna með Robbie Keane. Toppmaður. Þeir félagar spjölluðu einnig aðeins um komandi æfingarleiki gegn Keflavík og Blikum á sunnudag. Vonandi hafið þið gagn og gaman af.
    51 min
  • Vængjum þöndum S3E1
    Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu loksins að kíkja við og dusta rykið af Podcastgræjunni, setjast í sófann og anda að sér sögunni. Heimir Guðjónsson, kóngurinn á hliðarlínunni, kíkti í heimsókn sem var svo skemmtileg að drengirnir héldu áfram að spjalla um allt og ekkert langt frameftir.
    44 min
  • KóvídPod tilraun
    Heimamenn, settust niður og prófuðu að tala um fótbolta á þessum síðustu og verstu. Benedikt Bóas sat í Melgerðinu, Breki Logason sat við Your Day Tours og Jói Alfreð var heima hjá sér í Laugardalnum. Spjall sem fór úr einu í annað. Þetta er tilraun svo bannað að dæma mjög hart en vonandi léttir þetta einhverjum Valsmönnum lundina.
    33 min
  • Vængjum þöndum S2 E12
    Áfram gakk sagði einhver snillingurinn. Titlaleikur á morgun og svo Grindavík á sunnudag. Farið yfir sviðið svona á léttu nótunum. Fínt inn í helgina.
    Vængjum þöndum er að sjálfsögðu í boði Session þar sem gott er að sitja og gaman er að njóta. Ofboðslega skemmtilegur og góður bar.
    30 min
  • Vængjum þöndum S2 E11
    Það kom einhvern veginn bara einn maður til greina til að rúlla yfir komandi daga. Pétur Pétursson, þjálfari stelpnanna okkar. Hann fékk líka að tala í gullin míkrafón. Það var skemmtilegt.
    Pétur þekkti Atla Eðvaldsson, þekkir KR sem kíkir til okkar í heimsókn á mánudag og hver er betri til að ræða við um komandi stórslag á sunnudag gegn Blikum. Þar verður stuð - þar verður gaman.
    Vængjum þöndum er í boði Session, Bankastræti 14. Þar er gott að sitja.
    42 min
  • Vængjum þöndum S2 E10
    Fjölskyldu stemmari, stuð og fjör. MorgunverðarPodcast fyrir ÍBV leikinn þar sem er farið um víðan völl sem fyrr. Benedikt Bóas, Jóhann Alfreð og Breki Logason fengu sér kaffi og graut.
    23 min
  • Vængjum þöndum S2 E9
    Gott og gleðilegt hádegisspjall um komandi leik gegn Blikum og aðeins farið yfir leikinn gegn FH, pistill Brynjars Harðar og bara þetta klassíska - almenn vitleysa.
    Vængjum þöndum flýgur með Session Bar þar sem gott er að sitja - sérstaklega um helgar.
    37 min
  • Vængjum þöndum S2 E8
    Það var góðmennt á Session Bar þegar Vængjum þöndum snéri aftur eftir örlítið hlé. Ólafur Karl Finsen heiðraði Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð með nærveru sinni sem og kaupmaðurinn á horninu, Sigurður Pálmi, Spjallið fór um víðan völl. Allt frá erfiðu ferðalagi til Búlgaríu, styrkleika Bjarna Ólafs, Fylkissigurinn var krufinn og hitað upp fyrir FH. Þess á milli var bara bullað og vitleysan flæddi um borð Session. Ekkert sérstaklega flókið.
    40 min
  • Vængjum þöndum S2 E7
    Benedikt Bóas, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu sér sæti á góðum bar úti í góða veðrinu og ræddu um Víkingsleikinn og komandi Evrópuleik gegn Ludogorets.
    Vængjum þöndum er í boði Session bar þar sem er gott að skála, gaman að sitja og þægilegt að fá sér einn eða tvo.
    32 min
  • Vængjum þöndum S2 E6
    Benedikt Bóas, Breki Logason og Matthías Guðmundsson fóru í gegnum KA leikinn og hituðu upp fyrir Maribor. Það var ekki leiðinlegt hjá þeim félögum. Vængjum þöndum er í boði Session bar sem er stórkostlegur bar með gott úrval af allsskonar bjór. Þar er gott að vera.
    43 min

About Valur - Hljóðvarp

From the publisher's feed

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!