Valur - Hljóðvarp

Valur - Hljóðvarp

By Knattspyrnufélagið Valur - PodcastSports
Download on the App Store

Valur - Hljóðvarp episodes

  • Vængjum Þöndum S2 E5
    Hann var dásamlegur bjórinn sem skolaði niður þremur stigum á Session bar. Enginn Breki sem skellti sér á hálendi landsins og var því sest niður með Stefáni Árna og syni hans Gunna til að fara yfir leikinn gegn HK.
    Þær Lillý Rut Hlynsdóttir og Sandra Sigurðardóttir kíktu svo í heimsókn enda er stórleikur á miðvikudag. Þar verða allir.
    30 min
  • Vængjum Þöndum S2 E4
    Upphitun fyrir okkar uppáhaldsleik, leikinn gegn KR. Benedikt Bóas og Breki Logason fóru á Hlíðarenda eftir æfingu og hittu á fyrirliðann Hauk Pál.
    Í seinni hlutanum njóta þeir góðs af visku Jóhanns Alfreðs til að spá og spekúlera í komandi leik, sá kafli var tekinn upp 17. júní á góðum bar.
    Session craft bar býður upp á Podcast Vals.
    51 min
  • Vængjum Þöndum S2 E3
    Vængjum þöndum var tekið upp á Session Bar, Bankastræti 14. Frábær staður þar sem góður mjöður fæst. Umsjónarmennirnir Benedikt Bóas og Breki Logason fengu Jóhann Alfreð til að kíkja með sér í einn kaldan og ræða um okkar menn í landsliðinu, komandi leik gegn ÍBV og spá og spekúlera í komandi leik.
    39 min
  • Vængjum Þöndum S2E2
    Vængjum Þöndum fór í landsliðsferð. Benedikt Bóas og Breki Logason, umsjónarmenn hlaðvarpsins, fóru að hitta Strákana okkar, Ara Frey og Rúnar Má. Breki sótti vin sinn í vinnuna og rúllaði að hóteli landsliðsins. Og eins og stundum gerist þá er árangurinn á knattspyrnuvellinum ræddur í þaula. Það gerðist einnig að þessu sinni.
    Eftir gott spjall við þá félaga rúllaði Benedikt niður á Hlíðarenda þar sem Dóra María Lárusdóttir sat fyrir svörum en Valskonur spila leik við Fylki.
    49 min
  • Loxins byrjaðir
    Valspodcastið snýr aftur eftir örlitla bið sökum Eurovision ótrúlegt en satt. Session craft bar býður upp á Vængjum þöndum þetta árið og munu Benedikt Bóas og Breki Logason halda um stjórnartaumana.
    Gestir eru Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Alfreð
    51 min
  • Vængjum Þöndum Þáttur 10
    Podcast þáttur Vals þar sem hitað er upp fyrir komandi leik. Einar Karl Ingvarsson kíkti í heimsókn og fór yfir söguna sína, frá ungdómnum í FH yfir í þrumuskotin í Val en hann er sonur Ingvars Guðmundssonar sem átti farsælan feril í Val.
    Þá kom Tómas Þór í leyniklefan og fór yfir komandi umferð auk þess að ausa úr viskubrunni sínum. Hann ræddi um handboltann og sjónvarpsmálin fyrir komandi vetur.
    Leyniklefinn lét illa að stjórn og hljóðið á öðrum míkrafóninum var aðeins að stríða okkur. En það kostar lítið að hækka.
    1 hr 4 min
  • Bjossi
    Sigurbjörn Hreiðarsson, leit við í sérstöku Evrópu podcasti þar sem Valsmenn og aðrir fá að fræðast um hið ótrúlega ferðalag liðsins til og frá Moldóvíu. Um komandi andstæðing Sherif og svo auðvitað aðeins um Liverpool og Pepsi deildina. Það er auðvelt að sitja með Bjössa og hlusta á hann tala um fótbolta.
    43 min
  • Vængjum Þöndum - Evrópuþáttur
    Sérstakur viðhafnarþáttur af Vængjum þöndum. Jón Grétar Jónsson og Þorgrímur Þráinsson settust niður í stúdíó og rifjuðu upp nokkra Evrópuleiki.
    Þegar Kevin Keegan spilaði með Hamburg, viðureignina við Mónakó þar sem Arsené Wenger var við stjórnvölin og auðvitað leikina við Juventus. Ferðalagið sjálft þegar spilað var við Wismut Aue og möguleikana gegn Rosenborg.
    Umsjónarmaður: Benedikt Bóas
    37 min
  • Vængjum Þöndum þáttur 8
    Hér er meiningin að hita upp fyrir komandi leiki Vals í Pepsi deild karla. Einn núverandi leikmaður, ein gömul og góð gosögn ásamt sérfræðingi þar sem farið er yfir aðra leiki í umferðinni.
    Umsjónarmaður: Benedikt Bóas
    Gestir: Anton Ari Einarsson, Kjartan Sturluson og Elvar Geir Magnússon.
    1 hr 27 min
  • Vængjum Þöndum þáttur 8
    Hér er meiningin að hita upp fyrir komandi leiki Vals í Pepsi deild karla. Einn núverandi leikmaður, ein gömul og góð gosögn ásamt sérfræðingi þar sem farið er yfir aðra leiki í umferðinni.
    Umsjónarmaður: Benedikt Bóas
    Gestir: Anton Ari Einarsson, Kjartan Sturluson og Elvar Geir Magnússon.
    1 hr 27 min

About Valur - Hljóðvarp

From the publisher's feed

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!