Valur - Hljóðvarp

Valur - Hljóðvarp

By Knattspyrnufélagið Valur - PodcastSports
Download on the App Store

Valur - Hljóðvarp episodes

  • Vængjum þöndum S3 E11
    Frábær vika að baki á Hlíðarenda. Benni Bóas og Jói Alfreð fóru yfir KR-leikinn og tóku svo á móti nýstirni Vals, bakverðinum Valgeiri Lunddal Friðrikssyni. Við ræddum fótboltasumarið fram að þessu, tíma hans í Val, að kötta inn af vinstri og draumana um atvinnumenskuna.
    42 min
  • Vængjum þöndum S3 E10
    Bikarsigur og áfram skundum við í bikarnum þar sem andstæðingarnir verða HK, einhvern tímann í september. Patrick, Lasse og Einar Karl skoruðu mörkin fyrir okkur. Það lá aðeins á okkar mönnum um tíma en varnarlínan var þétt sem fyrr. Það var því við hæfi að fá Eið Aron í heimsókn eftir leik í Þorgrímsstofu, þar sem hann er einn af okkar uppáhalds. Hann fór aðeins yfir málin og talaði hreint út. Sagðist ætla sofa í svokölluðum compression buxum. Hann fór yfir sviðið. Hvernig byrjunin fór í hann og meiðslin sem hann varð fyrir KR og hvort hann hafi verið nálægt því að fara frá okkur og heim til Eyja. Trúlega hefðum við geta verið í Þorgrímsstofu í allt kvöld en Eiður fór úr sokkunum. Þá varð hreinlega að slaufa viðtalinu. Allsskonar skemmtilegt enda bikarinn skemmtilegur.
    27 min
  • Vængjum Þöndum S3 E9
    Vængjabræður, Benedikt Bóas og Breki Logason, settust niður með markaskorara dagsins, Kidda Frey, eftir leikinn gegn KA. Kiddi hefur verið lengi í Val, lítur á sig sem Valsara og segir að hann sé loksins orðinn heill heilsu. Hann geti jafnvel farið í gönguferð með dóttur sína án þess að finna til verkja.
    37 min
  • Vængjum Þöndum S3 E8
    Benedikt Bóas og Jóhann Alfreð fengu leyfi frá Víði til að mæta og hitta formann vor, Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildarinnar, fór yfir danatenginguna, komu Gunnhildar Yrsu, Covid krísuhópinn sem aldrei varð og komandi leiki. Það er alltaf gaman að hlusta á Börk tala um fótbolta og félagið. Góða helgi.
    31 min
  • Viðhafnarútgáfa Jón Arnór mættur
    Gleðifréttir, ekki aðeins fyrir Val heldur íslenskan körfubolta, sagði Svali Björgvinsson formaður körfuboltadeildarinnar þegar hann kynnti Jón Arnór Stefánsson til leiks. Jón þarf ekki mikið að kynna. Hann er jú besti körfuboltamaður sem Ísland hefur alið og ber sterkar taugar til Vals. Vængjamenn blésu í hátíðarlúðurinn og hittu á Jón og Finn þjálfara.
    26 min
  • Vængjum Þöndum S3E7
    Benedikt Bóas mætti hás og líkari Bryan Adams en sjálfum sér, Breki Logason og Jóhann Alfreð fengu Birki Má Sævarsson til að fara yfir leikinn gegn Fylki. Ýmislegt skemmtilegt bar á góma eins og færið hans Patrick, Hamarby og Leeds að sjálfsögðu, Birkir er jú einn harðasti Leeds-ari landsins.
    22 min
  • VængjumÞ20.7
    Breki og Benedikt Bóas hittust í hádeginu og gerðu tilraun. Óvænt innkoma Jóa frá Húsavík.
    Fóru yfir Blikaleikinn og komandi verkefni gegn einmitt Blikum. Örlítil tæknivandamál hafa verið að hrjá hópinn en það er þetta með kappið og fegurðina. Áfram Valur.
    32 min
  • Vængjum Þöndum S3 E5
    Benni, Breki og Jóhann Alfreð settust niður yfir kaffibolla og fóru yfir það sem á dagana hefur drifið í fótboltanum í Val undanfarnar vikur.
    29 min
  • 25. júní - Ákall til stuðningsmanna
    Vængjum Þöndum, hlaðvarp okkar Valsmanna, eru með áhyggjur af andanum í stúkunni þessa vikuna. Þeir ákváðu því að kalla til sín einn af okkar allra sterkustu leikmönnum sem klæðst hefur Valsjakkanum. Arnór Ben var ekki sá liprasti á vellinum þegar Benedikt Bóas þjálfaði hann í 7.flokki en hann hefur vakið athygli í stúkunni. Arnór sem er raddtvífari Óskars Bjarna segist brenna fyri klúbbinn og ætlar sér að rífa upp stemmninguna á pöllunum. Kristjáns-Mínútan, Stuðningssveit Séra Friðriks og áætlanir Arnórs og félaga koma til tals ásamt ágætri byrjun Valsliðanna í sumar. Í lok þáttar fáum við síðan smá innsýn inn í yngri flokka starfið frá Einari Ben yfirþjálfara sem segir bjart framundan.
    45 min
  • Vængjum Þöndum S3 E3
    Benedikt Bóas, Breki Loga og Jói Alfreð kíktu í Podcastherbergi Séra Friðriks. Fengu Stíg Helgason, fréttamann RÚV, óvænt í fangið og buðu hann velkominn með í sýninguna. Siggi Lár kíkti svo við.
    41 min

About Valur - Hljóðvarp

From the publisher's feed

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!