Valur - Hljóðvarp

Valur - Hljóðvarp

By Knattspyrnufélagið Valur - PodcastSports
Download on the App Store

Valur - Hljóðvarp episodes

  • SE4 - EP8 - Elísa Viðars og Arna Sif
    Stórleikur framundan á laugardag. Gestir hlaðvarpsins voru þær Elísa Viðarsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir. Þær fóru yfir komandi bikarúrslitaleik og rúlluðu yfir ævintýrið í Slóveníu. Örnu leið ekkert sérstaklega vel í öllum hitanum eins og hún segir frá og Elísa gaf matnum á heilsuhótelinu sem þær gistu á ágætis meðmæli en var ekki alveg klár í að gefa honum alveg fimm stjörnur. Framundan er ekkert smá skemmtilegur tími fyrir stelpurnar okkar enda stórleikir á hverju strái. Það er ekkert minna en skyldumæting í dalinn á laugardag. Eftir stuttar auglýsingar rúlluðum við aðeins yfir leikinn hjá strákunum gegn Víkingum ásamt hefðbundnu bulli. Vængirnir eru á öllum hlaðvarpsveitum og einnig hér.
    41 min
  • S4 - EP7 - Birkir Már
    Vængirnir flugu af stað að nýju eftir sumarfrí og settust í Toggastofu eftir dásamlegan 2:0 sigur á Fimleikafélaginu. Við fórum um víðan völl, lentum í batterísveseni og öðrum skakkaföllum en héldum okkar sjó og bulluðum okkur í gegnum allskonar. Birkir Már kom í Toggastofu og fór yfir tímann sinn hjá Hammarby en tveir áhorfendur vöktu athygli Vængjanna, klædd í grænt og öskruðu Áfram Valur. Þau voru kominn til að sjá sína menn, Birki, Aron og Arnór. Framundan er skemmtilegur tími. Strákarnir í fótboltanum eru komnir á beinu brautina, stelpurnar að fara í meistaradeildina og handboltinn og karfan bíða handan hornsins. Það er dásamlegt að vera Valsari. Vængjum þöndum er á öllum hlaðvarpsveitum en einnig má hlusta á þáttinn hér.
    33 min
  • S4 - EP6 - Jói Skúli og draumalið erlendra leikmanna í Val
    Jói Skúli settist í Toggastofu og valdi besta lið erlendra leikmanna í Val. Patrick Pedersen var að sjálfsögðu sjálfkjörin en Jói ákvað að hafa liðið frá svona 1997 til dagsins í dag.
    Jói er hafsjór af fróðleik og Podcast hans Draumaliðið er ekkert minna en stórkostleg heimild um horfna tíma. Nýr þáttur kom einmitt út í dag um Sumarið 2013.
    Hann fór um víðan völl og rifjaði upp marga gamla og misgóða erlenda leikmenn sem hafa komið og klætt sig í rauðu treyjuna. Þá rifjuðum við upp Blikaleikinn og fórum yfir Leiknisleikinn.
    Þetta var rétt rúmur klukkutími sem rann hratt og örugglega. Vonandi njóti þið eins og við Jóhann Alfreð gerðum.
    Vængjum Þöndum er í boði SEssion Craft bar, Portsins þar sem Valsfólk eru ávallt velkomnir, Bláa Lónsins, Kjúklingastaðsins í Suðurveri og allskonar Valsfyrirtækja og má finna á öllum helstu veitum en einnig má hlusta hér.
    1 hr 16 min
  • S4 - EP5 - Snorri Steinn og Finnur Freyr
    „Ég er harðasti stuðningsmaður handboltaliðs Vals“
    Það hefur vart farið brosið af íslandsmeisturunum og skrifstofufélögunum Snorri Steini og Finni Frey sem kíktu til okkar í Toggastofu og fóru yfir titlana í handboltanum og körfuboltanum. Þetta er sérstök hátíðar útgáfa af Vængjunum enda fjögur ár síðan fyrsti þáttur fór í loftið og er boðið upp á sérstaklega gott hljóð að þessu sinni. Finnur vill meina að handboltaliðið okkar sé besta íþróttalið landsins og Snorri hefur óbilandi trú á sér sem skotmaður í körfubolta enda trúir hann því alltaf að næsta skot fari niður. „Helsti kostur hvers skotmanns,“ segir Finnur.
    Stoltastur er Snorri af því að hafa þraukað þetta langa og stranga tímabil en hann er strax farinn að huga að næsta tímabili. Ljóst er að við missum þrjá leikmenn hið minnsta en Snorri vill ná lengra í Evrópukeppninni. Finnur segir íslandsmeistaratitilinn í ár hafa verið nokkuð óvæntan og skemmtilegast hafi verið að sjá hversu glaðir allir í kringum félagið voru þegar titillinn var í húsi. Það er alltaf næsta tímabil og Finnur leggur áherslu á að halda sama mannskap. Hann veit ekki enn hvort Pavel Ermolinskij verði á parketinu næsta vetur en segir alltaf pláss fyrir hann í sínu liði. Það er gaman að eiga þessa meistara í okkar félagi og við Vængjamenn, eins athyglissjúkir og við erum, hlustuðum af athygli i hartnær klukkutíma. Vonandi njótið þið líka.
    54 min
  • S4 - EP4- Agnar Smári
    Hann hefur vakið verskuldaða athygli í stúkunni alla úrslitakeppnina í körfunni enda í geggjuðu formi. Hinn stórkostlegi Agnar Smári Jónsson leikmaður meistaraflokks karla í handbolti er stuðningsmaður númer eitt og kíkti í Toggastofu til okkar Vængjanna.
    Hann segist hafa tekið sér Birki Má Sævarsson til fyrirmyndar og reyni að mæta á flest alla heimaleiki Vals. Aggi hitar upp fyrir oddaleikinn á morgun og svo auðvitað úrslitaeinvígið gegn ÍBV þar sem stefnan er sett á að verða íslands- og bikarmeistarar tvö ár í röð. Við spáum einnig í einvígið gegn Fram og leikinn gegn Víkingum þar sem mágur Agga, Kristall Máni, verður í banni. Við förum auðvitað líka yfir stóra miðamálið og danska samfélagið í Arnarhlíðinni. Það var stórkostleg skemmtuna að hafa einn af okkar allra bestu sonum í Toggastofu en Vængjum þöndum er komið inn á flestar veitur en einnig er hægt að hlusta á þáttinn hér.
    43 min
  • S4 - EP3 - Finnur Freyr
    Góðan og gleðilegan kjördag. Trúlega eru einhverjir ennþá að jafna sig eftir fimmtudagskvöldið. Þvílíkur rússibani af tilfinningum. Fyrst hjá stelpunum í handbolta og svo í körfunni hjá drengjunum okkar. Maí er dásamlegur tími til að halda með Val. Svo einfalt er það.
    Við í Vængjunum settumst niður með Finn þjálfara í körfunni og fengum hann aðeins til að tala við okkur um leikinn, svefnlausu næturnar og raunverulega MVP í úrslitaeinvíginu en Finnur þakkar konu sinni fyrir að leyfa sér að vera eins og hann verður í þessar sjö vikur sem úrslitakeppnin stendur yfir.
    Það er gaman að setjast niður með Finn. Hann er hafsjór af fróðleik og við erum heppinn að hafa hann í hlýjum Valsfaðmi. Hann hrósar leikmönnum sínum fyrir að koma til baka og segir að þó liðið hafi unnið þurfi liðið að svara á Króknum á sunnudag.
    Við fórum yfir leikina sem voru og verða en þó maí sé hálfnaður er ennþá nóg af leikjum eftir að mæta á.
    42 min
  • S4 - EP2 - Pavel
    Það var líf og fjör í Toggastofu í dag þegar sjálfur Pavel Ermolinskij settist niður og fór aðeins yfir körfuboltaveturinn og komandi úrslitaeinvígi. Pavel er orðinn gegnheill Valsari og elskar að labba um gangana og hitta aðra í Val til að ræða hlutina. Hann meira að segja stoppaði Snorra Stein til að ræða um leik FH og Selfoss. Eftir körfuboltafróðleik hitum við aðeins upp fyrir komandi menningarviðburð á morgun þegar KR kemur í heimsókn í Bestu deildinni. Það verður gleði og glaumur. Þetta var spjall sem fór um hvippinn og hvappinn og eiginlega um allan Valsvöll því þetta er tíminn sem allir íþróttafíklar elska og Valsmenn og meyjar eru þar nánast á öllum vígstöðum. Sjáumst í fjósinu á morgun.
    30 min
  • S4 - EP1 - Yfirferð og hringborð
    Loksins loksins var tækifæri til að setjast niður og tala um Val. En vegna ýmissa vandkvæða, þá aðallega þeirrar skæðu, höfum við verið á hóld i allt of langan tíma. En öll él styttir upp og við komum saman í sérstöku SvansStúdíói bara til að segja hæ við hvorn annan og hann Stígur Helgason hoppaði um borð. Þetta endaði reyndar í góðum klukkutíma enda langt siðan síðast. Yfirferð yfir handboltann, körfu og fótboltann og spjallað um skemmti- og upphitunarkvöld sem Vængirnir vinna að í aðdraganda fyrsta leiks í Bestu deildinni. Eins og einhverjir taka kannski eftir var þátturinn tekinn upp fyrir undanúrslitaleikinn í gær en droppar ekki inn fyrr en í dag vegna smá tæknilegs hiksts. Sjáumst öll á laugardag á Ásvöllum!
    1 hr 17 min
  • SE4 - EP16 - Lárus Sigurðsson
    Lárus Sigurðsson passar að höfuðstóllinn lækki aldrei. Hann stökk yfir af skrifstofunni og kikti i Toggastofuna og sagði okkur Vængjamönnum aðeins um Valsmenn Ses, uppbygginguna, pælingarnar sem eru i gangi og hvað hann vill sjá. Svo tókum við aðeins ferilinn að sjálfsögðu en Lalli lagði skóna a hilluna aðeins 27 ára. Hann fór yfir skotæfingarnar með Arnóri Guð og ýmislegt fleira i löngu og góðu spjalli enda Lalli ákaflega skemmtilegur maður. Eftir stutt auglýsingahlé fóru Breki og Benni yfir fréttir vikunnar og úrslit Hlíðarenda pilta og meyja i lokin - en af nægu var að taka enda forréttindi að vera Valsari.
    56 min
  • SE3 - EP15
    Finnur Freyr kikti við i Toggastofu og fór yfir körfuboltann i Val. Hann gerði upp seríuna við KR, fór yfir leikmannahópinn sem hann hefur í höndunum og hvað það sé gaman að kveikja ljós í körfuboltanum í Val - enda er það jákvætt vandamál að aðstaðan sé sprunginn.
    38 min

About Valur - Hljóðvarp

From the publisher's feed

Allt um það sem er í gangi að Hlíðarenda. Valsara alert!