Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars.Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í... more
FAQs about Video rekkinn:How many episodes does Video rekkinn have?The podcast currently has 90 episodes available.
May 27, 2024#19 Nicolas Cage - Bringing out the deadSjúkraflutningarmaður berst við andleg veikindi vegna mikillar streitu í vinnunni. Við fylgjumst með andlegri hnignun Franks á ferðalagi sínu um götur New York borgar þar sem hann reynir sitt besta að bjarga lífum þeirra sem minna mega sín.Allt við þessa mynd ætti að segja okkur að þetta sé meistarastykki, skrifuð eftir metsölubók, handritið á gæjinn sem gerði Taxi Driver og Raging Bull, leikstjórinn er Martin Scorsese og leikararnir eru allir í hæsta gæðaflokki.Tekst þetta? Hver veit. Komist að því í þessum þætti af Video Rekkanum....more1h 7minPlay
May 20, 2024#18 Nicolas Cage - The Unbearable Weight Of Massive TalentKvikmyndastjarna leggur leið sína til Mallorca til að taka þátt í afmælishátíð óþekkts milljarðamærings. En allt er ekki sem sýnist; áður en langt um líður, er stjarnan komin á kaf í flókinn lygavef bandarísku leyniþjónustunnar og reynir í örvæntingu að bjarga dóttur pólitíkuss.Myndin er á sama tíma spennuþrungin hasarmynd, ævintýraferð, gamanmynd, djúpstæð drama, andrúmsþrungin spennumynd og rómantísk ástarsaga. Allt þetta og meira til í þessum þætti Video Rekkans....more1h 9minPlay
May 13, 2024#17 Nicolas Cage - The PigEinsetubúi nokkur lendir í kröppum dansi þegar trufflusvíninu hans er stolið um miðja nótt, af óprúttnum aðilum, og hann neyðist til fara aftur til borgarinnar í samfélag mannanna í leit að sínu ástkæra svíni. Það mætti að segja að hér væri á ferðinni endurgerð af John Wick, nema núna er hann kokkur og leynisvopnið hans eru bragðlaukar frekar en ofbeldi. ...more57minPlay
May 06, 2024#16 Nicolas Cage - MandySkógarhöggsmaður lendir í kröppum dansi þegar ofsatrúarhippacult fær afbriðgilegan áhuga á konunni hans. Hér blandast saman stórkostleg tónlist Jóhanns Jóhannssonar og listileg kvikmyndataka Panos Cosmatos.Hér eru ofboðslega mikið af litum, ofboðslega mikið af blóði, ofboðslega mikið af litaleiðréttingu, ofboðslega mikið að dauða og myrki.Hér er mynd sem engin hefði/ætti að láta framhjá sér fara og svo náttúrulega hlusta á þennan þátt :)...more1h 8minPlay
April 29, 2024#15 Nicolas Cage - Sorcerer's ApprenticeLærlingur Merlins fær það verkefni að finna arftaka læriföður síns, en það er eina leiðin til að bjarga heiminum frá glötun. Þetta er í senn ástarsaga og ævintýri, hvað gæti mögulega klikkað!Þið getið komist að því í nýjasta þætti Video Rekkans....more1h 13minPlay
April 22, 2024#14 Nicolas Cage - NextTöframaður með ofurkrafta verður miðdepill aðgerða FBI til að stöðva kjarnorkusprengju sem hryðjuverkamenn ætla að sprengja í miðborg Los Angeles. Hér er olíuborinn húð, brjóstaskorurnar halda áfram, hárið heldur áfram að vera furðulegt og síðast en ekki síst ekki örvænta, vondu kallarnir eru þýskir...Allt þetta og meira til í þessum þætti!...more1h 13minPlay
April 15, 2024#13 Nicolas Cage - Ghost RiderBældur drengur í tilvistarkreppu gerir svona eiginlega næstum því samning við kölska, sem á eftir að draga dilk á eftir sér, svolítið eins og Sæmundur Fróði í Svartaskóla.En í þessari sögu birtast okkur magavöðvar, brjóstaskorur, biblíusögur, voldugt yfirvaraskegg og margt fleira.Allt þetta og meira til í þessum þætti af Video Rekkanum...more1h 7minPlay
April 08, 2024#12 Nicolas Cage - National treasureDulmálssérfræðingur leitar af fjársjóð sem fjölskylda hans hefur leitað í árhundruðir og var falin af frímúrurum sem voru líka einir af landsfeðrum Bandaríkjanna. Algjör klassísk negla sem höfðar til gjörsamlega allra...í það minnsta flestra!...more59minPlay
April 01, 2024#11 Nicolas Cage - Matchstick menEinmana svikahrappur með áráttuheggðun fær tækifæri til að kynnast dóttir sinni sem hann vissi ekki að væri til. Hér er á ferðinni mynd sem lætur lítið fyrir sér fara en inniheldur algjörar sleggju leikstjóra, sleggu tónsmíðar og síðast en ekki síst sleggju leikarar.Cage upp á sitt allra besta!...more1h 13minPlay
March 25, 2024#10 Nicolas Cage - AdaptationHandritshöfundur með brotna sjálfsmynd fær það verkefni að skrifa handrit eftir bók um mann sem elskar orkidíur. Stórleikarar í hverju hlutverki, sumir í fleiri en einu hlutverki, hér eru tilfinningar, tilvistarkreppa, húmor, en bara umfram allt bara frábær mynd. ...more1h 4minPlay
FAQs about Video rekkinn:How many episodes does Video rekkinn have?The podcast currently has 90 episodes available.