Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um vísindamenn úr mannkynssögunni sem allir eiga það sameiginlegt að vera konur. Við skoðum fyrstu konuna sem fór út í geim, fjöllum um hina einu sönu Jane Goodall og svo ætla ég að segja ykkur frá ótrúlega merkilegri konu sem fann upp alveg ótrúlega merkilegt efni.
Í þættinum í dag ætlum við að tala um fræga vísindamenn úr mannkynssögunni. Við skoðum Wright-bræður sem bjuggu til fyrstu flugvélina, Carl Linné, föður flokkunarfræðinnar og svo rannsökum við eðlisfræðinginn Niels Bohr, sem kom að hönnun kjarnorkusprengjunnar.
Í þætti dagsins fjallar Ævar um flugur. Ólöf Haraldsdóttir, býflugnabóndi, kíkir í heimsókn og segir okkur frá því hvernig maður ræktar býflugur á Íslandi og svo segir Ævar okkur frá hræðilegum Vitsugu-vespum!
Í þætti dagsins fjöllum við um jörðina okkar og hvernig henni líður. Rakel Garðarsdóttir kemur í heimsókn, en hún er algjör sérfræðingur í því hvernig má hugsa betur um umhverfið og í lok þáttarins les ég alls kyns upplýsingar um rusl - m.a. að við Íslendingar hendum um 110 þúsund plastpokum á dag!
Gleðilegt nýtt ár! Í þessum síðasta þætti ársins 2015 rannsakar Ævar flugelda og hvernig þeir komast eiginlega á loft. Hann fær tvo góða gesti frá Hjálparsveit skáta í Reykjavík í heimsókn og spjallar við þau um öryggi og hvers vegna maður má alls ekki fikta í flugeldum. Í lok þáttarins flytur hann svo hið ótrúlega (og vonandi árlega) áramótaávarp Ævars.
Í þætti dagsins ætlar Ævar að kenna okkur að baka regndropa og búa til okkar eigin jökul. Við skoðum líka íslensk skrímsli og heyrum sögu af ótrúlegu skeljaheimsmeti!
22 min
About Vísindavarp Ævars
From the publisher's feed
Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri.