Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri karla og konur úr sögu vísindanna. Tölvunarfræðingar, heimspekingar og landkönnuðir koma við sögu, ásamt manninum sem bjó til lotukerfið.
Gestur þáttarins er Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, nemi í hugbúnaðarverkfræði. Við spjöllum um hvað forritun er, hvernig forritun og fótbolti tengjast og hvað /sys/tur eru. Svo fer Ævar yfir sögu internetsins og hvernig maður á að haga sér á því.
Í þætti dagsins kemur málvísindamaðurinn Bragi Valdimar Skúlason í heimsókn og segir okkur frá því hvers vegna honum finnist íslenska svona skemmtilegt tungumál. Svo ætlum við líka að skoða hvernig tungumál verður til.
Í dag ætlum við að fjalla um geiminn. Við veltum því fyrir okkur hvort geimverur séu til, skoðum hvað gerist ef geimfari deyr í geimnum og rannsökum flottasta stjörnusjónauka í heimi (og geimi).
Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um vísindamenn úr mannkynssögunni sem allir eiga það sameiginlegt að vera konur. Við skoðum fyrstu konuna sem fór út í geim, fjöllum um hina einu sönu Jane Goodall og svo ætla ég að segja ykkur frá ótrúlega merkilegri konu sem fann upp alveg ótrúlega merkilegt efni.
Í þættinum í dag ætlum við að tala um fræga vísindamenn úr mannkynssögunni. Við skoðum Wright-bræður sem bjuggu til fyrstu flugvélina, Carl Linné, föður flokkunarfræðinnar og svo rannsökum við eðlisfræðinginn Niels Bohr, sem kom að hönnun kjarnorkusprengjunnar.
21 min
About Vísindavarp Ævars
From the publisher's feed
Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri.