Í þættinum verður farið yfir helstu vísindafréttir í heiminum í dag; Farsímar sem tengja má við heilann, umhverfisvænar líkkistur og tónlist fyrir ketti er bara brotabrot af því sem við fjöllum um í Vísindavarpi dagsins.
Í Vísindavarpi dagsins setjum við íslenska tungumálið undir smásjánna og spjöllum við Evu Maríu Jónsdóttur, miðaldafræðing og starfsmann hjá Stofnun Árna Magnússonar.
Í þætti dagsins rannsökum við hvernig piss getur hlaðið farsíma, skoðum hvort hægt sé að flýja fret og veltum því fyrir okkur hvernig það myndi ganga að fljúga flugvél á annarri plánetu.
Í Vísindavarpi dagsins förum við um víðan völl. Við skoðum alls konar vísindi, fjöllum um stærðfræði og hvers vegna hún er mikilvæg, skoðum hrakfarir vísindamanna, rannsökum tilfinningar og merkjum mörgæsir.
Elín Björk Jónasdóttir frá Veðurstofu Íslands kíkir í heimsókn og talar um hvernig maður lærir að verða veðurfræðingur, svarar spurningum um eldingar og segir frá því þegar hún elti skýstróka!
Í Vísindavarpi dagsins skoðar Ævar enn fleiri karla og konur úr sögu vísindanna. Tölvunarfræðingar, heimspekingar og landkönnuðir koma við sögu, ásamt manninum sem bjó til lotukerfið.
Gestur þáttarins er Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, nemi í hugbúnaðarverkfræði. Við spjöllum um hvað forritun er, hvernig forritun og fótbolti tengjast og hvað /sys/tur eru. Svo fer Ævar yfir sögu internetsins og hvernig maður á að haga sér á því.
http://krakkaruv.is/aevar
22 min
About Vísindavarp Ævars
From the publisher's feed
Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri.