Í þætti dagsins kemur málvísindamaðurinn Bragi Valdimar Skúlason í heimsókn og segir okkur frá því hvers vegna honum finnist íslenska svona skemmtilegt tungumál. Svo ætlum við líka að skoða hvernig tungumál verður til.
Í dag ætlum við að fjalla um geiminn. Við veltum því fyrir okkur hvort geimverur séu til, skoðum hvað gerist ef geimfari deyr í geimnum og rannsökum flottasta stjörnusjónauka í heimi (og geimi).
Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um vísindamenn úr mannkynssögunni sem allir eiga það sameiginlegt að vera konur. Við skoðum fyrstu konuna sem fór út í geim, fjöllum um hina einu sönu Jane Goodall og svo ætla ég að segja ykkur frá ótrúlega merkilegri konu sem fann upp alveg ótrúlega merkilegt efni.
Í þættinum í dag ætlum við að tala um fræga vísindamenn úr mannkynssögunni. Við skoðum Wright-bræður sem bjuggu til fyrstu flugvélina, Carl Linné, föður flokkunarfræðinnar og svo rannsökum við eðlisfræðinginn Niels Bohr, sem kom að hönnun kjarnorkusprengjunnar.
Í þætti dagsins fjallar Ævar um flugur. Ólöf Haraldsdóttir, býflugnabóndi, kíkir í heimsókn og segir okkur frá því hvernig maður ræktar býflugur á Íslandi og svo segir Ævar okkur frá hræðilegum Vitsugu-vespum!
http://www.krakkaruv.is/aevar
20 min
About Vísindavarp Ævars
From the publisher's feed
Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri.