Chess After Dark

#310 Ísak Bergmann Jóhannesson


Listen Later

Gestur okkar í dag er Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Köln í þýsku Bundesligunni og einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins.

Ísak kom síðast til okkar 28. desember árið 2022, í þætti númer 95. Þá var hann tvítugur, samningsbundinn FCK og ósáttur við spiltímann. Hann sagði hreinskilnislega frá því að honum fyndist hann eiga skilið stærra hlutverk og vissi að eitthvað þyrfti að breytast.

Nokkrum vikum síðar gekk hann á lán til Fortuna Düsseldorf. Það reyndist vendipunkturinn.

Síðan þá hefur ferillinn tekið ótrúlegum breytingum. Hann upplifði vítaspyrnuharmleikinn gegn Bochum þar sem Düsseldorf missti af sæti í Bundesligunni á lokametrunum, var keyptur varanlega til félagsins, varð lykilmaður í tvö tímabil, tók síðan eina umdeildustu ákvörðun sem íslenskur knattspyrnumaður hefur tekið þegar hann gekk til erkifjendanna í Köln, og er í dag orðinn fastamaður í Bundesligunni og íslenska landsliðinu.

Í dag ætlum við að rekja þessa vegferð frá því hann gekk út úr þessu stúdíói í desember 2022 og fram til dagsins í dag.

Við förum yfir tímann hjá FCK, uppganginn í Düsseldorf, umdeildu skiptin til Köln, lífið í Bundesligunni og stöðuna í landsliðinu. Við ræðum líka FH-liðið sem faðir hans þjálfar, uppeldisfélagið ÍA, Bestu deildina og heimsmeistaramótið sem stendur nú yfir.

Þessi þáttur er í boði:

  • Héðinshurðir
  • KALDI
  • KAPPAHL
  • KRÓNAN
  • Íslandssjóðir
  • Orka Nátturunnar
  • ORIGO
  • BAUHAUS
  • PAYDAY
  • GIGGÓ
  • ELKO
  • SESSOR
  • Fröken Reykjavík
  • Kvikmyndaskólinn
  • Lengjan
  • Dave&Jons
  • Frumherji

Njótið vel kæru hlustendur.




...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Chess After DarkBy Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

  • 5
  • 5
  • 5
  • 5
  • 5

5

9 ratings


More shows like Chess After Dark

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

128 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

28 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

24 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

25 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Gula Spjaldið by Gula Spjaldið

Gula Spjaldið

2 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners