
Sign up to save your podcasts
Or


Róbert Ragnarsson, oddvitaframbjóðandi Viðreisnar í Reykjavík mætir til bjórsnáðanna. Þeir ræða áherslur hans í borginni, hvað hann telur vera stærstu áskoranir Reykjavíkurborgar og það veganesti sem hann telur sig hafa í verkefnið.
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, rekstrarstjóri Tulipop og frambjóðandi í forprófkjöri Hallveigar, ungra jafnaðarmanna í Reykjavík mætir til bjórstrákanna. Birta ræðir sínar áherslur í borginni, nefnir þar sérstaklega leikskólamálin, en hún er þriggja barna móðir, hún hefur skoðanir á rekstri borgarinnar og er boðberi kynslóðaskipta í Borgarstjórn.
Pétur G. Markan, bæjarstjóri Hveragerðis, kom og ræddi þá fjölmörgu hatta sem hann hefur borið í gegnum tíðina. Við förum yfir stöðu Hveragerðis sem ört vaxandi sveitarfélag, við ræðum tíð hans sem sveitarstjóri Súðavíkur, umbætur sem hann átti stóran þátt í hjá embætti biskups og segir hann frá sínum pólitísku fyrirmyndum.
Pawel Bartoszek, formaður utanríkisnefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi Norður, kíkir á bjórnsnáðana og ræðir útspil Evrópusambandsins þegar kemur að verndartollum á járnblendi, við ræðum mikilvægi ferða hans á erlenda grundu og það hvernig reykvískir þingmenn geta bætt tengsl sín við sína kjósendur.
Natan og Erlingur fá ekki gest að þessu sinni, heldur eiga þeir góða samverustund og smakka jólabjóra. Þeir flokka bjóra eftir því hvað stjórnmálaflokki þeir tilheyra og ræða hvern flokk sem tekinn er fyrir.
Bjórsnáðarnir fá til sín Aðalstein Leifsson guðfræðinema og aðstoðarmann Utanríkisráðherra. Ræða þeir hvernig Aðalsteinn kom Íslandi á evruna, stöðuna í Evrópumálum, rekstur borgarinnar og hvernig hann fann Jesús í kærleikanum.
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis og fyrrverandi sérfræðingur á sviði forvarna hjá Reykjavíkurborg mætir og ræðir við bjórsnáðana. Kjaramál eru rædd, áminningarskylda opinberra starfsmanna krufin ásamt því að tekin voru fyrir málefni ungmenna og ríkissáttasemjari.
Júlíus Viggó, nýkjörinn formaður SUS og Jóhannes Óli nýkjörinn forseti Ungs jafnaðarfólks mæta til bjórsnáðanna. Þeir ræða Evrópumálin, húsnæðismál og Natan er skammaður fyrir álit sitt á Hallgrímskirkju.
Björg Magnúsdóttir, fyrrum fjölmiðlakona og stjórnmálafræðingur mætir til bjórsnáðanna. Borgarmálin eru krufin af mikilli dýpt, leikskólamál og rekstur tekinn fyrir. Björg fer yfir það hvernig hún endar í Viðreisn og ræðir hennar helstu fyrirmyndir í pólitík.
Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður Miðflokksins, mætir til bjórsnáðanna, landsþing Miðflokksins er rætt og hvar skoðanir skarast innan flokksins. Við ræðum samgönguáherslur Miðflokksins, innfluttar skoðanir og frelsið.
From the publisher's feed