
Sign up to save your podcasts
Or


Gunnar Ásgrímsson, framsóknarmaður með meiru, kíkir á bjórsnáðana og ræðir lægð framsóknar í skoðanakönnunum, sóknarfæri á landsvísu og í borg. Við ræðum bjórverðlag og ólík hjól á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að kynnast því hver hinn týpíski ungi framsóknarmaður er.
Bjórsnáðarnir fá Júlíus Viggó, fyrrverandi formann Heimdalls til sín. Þeir ræða stjórnmálin í dag, stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni og á þingi og tónlistarmenningu stjórnmálanna.
Bjórsnáðarnir ræða við nýkjörinn forseta Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Við ræðum stjórnmálin, meinta landasölu Sverris og veitingastaðinn Metro.
Bjórsnáðarnir hitta Heiðu Ingimarsdóttur, fyrsta varaþingmann Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Við ræðum áherslur hennar á þeim vikum sem hún hleypur í skarðið fyrir Ingvar Þóroddsson, lífið og Múlaþing.
Við fáum Margréti Erlu Þórsdóttur til okkar. Margrét er súperstjarna, master í heimspeki og meðframleiðandi hjá RIFF. Við ræðum um raunir hennar, hot gaura og lítilmennskubrjálæði.
Bjórsnáðarnir ræða líðandi stundir og hitta Grím Grímsson, alþingismann og fyrrverandi lögreglumann. Rætt er um áfengisverslun, fangelsismál, hugvíkkandi efni og persónuna Grím.
Bókmennta- og leikhúsfræðingurinn Katla Ársælsdóttir kíkir á bjórsnáðana. Leikhúsin eru rædd, frelsisbarátta Írlands og hagsmunabarátta stúdenta.
Bjórsnáðarnir ræða ævintýri sín á sunnanverðum Vestfjörðum, hitta Friðrik Schram sem heldur úti hlaðvarpinu Z & Guð, ræðum um ungt fólk sem leitar í trúnna, hans persónulegu vegferð og lífið.
Bjórsnáðarnir hitta Ármann Leifsson, varaformann Ungra Jafnaðarmanna og gjaldkera, landsfundur Samfylkingarinnar er ræddur, ríkisstjórnina, ungt fólk í pólitík og vegferð flokksins yfirhöfuð.
Fyrrum þingmaðurinn og fyrrum Píratinn hittir bjórsnáðana og ræðir samband sitt með Helga Hrafni pírata, Sauðárkrók og hvernig hún fór út í stjórnmál.
From the publisher's feed