Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

Á tónsviðinu episodes

  • Aaron Copland
    Í þættinum er flutt tónlist eftir bandaríska tónskáldið Aaron Copland sem fæddist árið 1900 og dó 1990. Fyrir stuttu kom út geislaplatan „My American Story“ þar sem píanóleikarinn Daniil Trifonov leikur amerísk verk, meðal annars „Pianótilbrigði“ eftir Copland frá 1930. Tónlistargagnrýnandi hjá BBC Music Magazine sagði um þetta verk að eftir að hafa heyrt það einu sinni vildi hann aldrei heyra það aftur. Hlustendur geta nú dæmt um það hvort þessi dómur er sanngjarn eða ekki því verkið verður leikið hér í þættinum. Einnig verður flutt fiðlusónata Coplands frá 1943 og aría úr óperu hans „The Tender Land“ frá 1954. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min
  • Synir Bóreasar og fleira eftir Rameau
    Í þættinum verða flutt verk eftir franska tónskáldið Jean Philippe Rameau sem fæddist 1683 og dó 1764. Einkum verður litið á síðustu óperuna sem hann samdi, en hún hét "Les Boréades" eða "Synir Bóreasar". Vitað er að óperan var æfð hjá Parísaróperunni árið 1763, en hætt var við að sýna hana. Ekki er vitað hvers vegna, en komið hafa fram tilgátur um það að ritskoðari konungsins, Loðvíks XV, hafi bannað óperuna vegna of mikils frelsisboðskapar í textanum. Á liðnu ári, 2024, kom út á geislaplötum hljóðritun af óperunni þar sem íslenski söngvarinn Benedikt Kristjánsson er í stóru hlutverki og atriði úr þeirri hljóðritun verða flutt í þættinum. Einnig leikur Víkingur Heiðar Ólafsson verk eftir Rameau á píanó. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    54 min
  • Tónlist eftir Edvard Grieg
    Í þættinum verður leikin tónlist eftir Edvard Grieg. Meðal annars verða fluttir kaflar úr sellósónötu Griegs og svítunni "Frá tíma Holbergs". Þá verða fluttir Sex söngvar ópus 48 sem Grieg samdi við þýsk ljóð á árunum 1884-1889, en meðal þeirra er "Ein Traum" (Draumur), eitt frægasta sönglag Griegs. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Alessandro Stradella
    Í þættinum verður fjallað um ítalska tónskáldið Alessandro Stradella sem uppi var á 17. öld. Fluttar verða tríósónata í d-moll og mótettan "Convocamini, congregamini" eftir Stradella. Einnig verður flutt kirkjuarían "Pietà, signore" sem hefur verið eignuð Stradella, en nú er talið öruggt að hún sé ekki eftir hann heldur samin á 19. öld. Þá  verður flutt aría úr óperunni "Alessandro Stradella" eftir Friedrich von Flotow. Ævi Stradella var stormasöm og hann féll fyrir morðingjahendi árið 1682. Vegna þessa hefur líf hans verið vinsælt viðfangsefni óperuhöfunda og samdar hafa verið níu óperur um hann. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    54 min
  • Grænlensk tónlist
    Í þessari viku fær Grænland sérstaka athygli á Rás 1 og flutt verður grænlensk tónlist í þættinum "Á tónsviðinu". Þar er af ýmsu að taka og má þar til dæmis nefna trommudans, kórlög eftir grænlensku tónskáldin Jonathan Bertelsen, Peter Olsen og Henrik Lund, og tónlist sem hinn þekkti söngvari Rasmus Lyberth hefur samið. Einnig verður flutt lag sem kom út á plötu með grænlensku rokksveitinni Sume árið 1973 og var tileinkað Heimaey í tilefni af Vestmannaeyjagosinu sama ár. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    52 min
  • Tónlist við leikrit Sheridans
    Á Óperukvöldi útvarpsins fim. 6. mars verður flutt óperan „Gagnrýnandinn“ eftir Charles Villiers Stanford, byggð á leikriti eftir 18. aldar rithöfundinn Richard Brinsley Sheridan. Í tilefni af því verður þátturinn „Á tónsviðinu“ sama dag einnig helgaður tónlist við leikrit Sheridans. Sheridan fæddist 1751 og dó 1816. Hann þykir vera eitt merkasta leikritaskáld Bretlandseyja á 18. öld og meðal frægra leikrita hans eru „The Rivals“ og „The School of Scandal“. Síðarnefnda leikritið var flutt sem útvarpsleikrit hjá Ríkisútvarpinu árið 1966 og hét þá „Mannskemmdaskólinn“ í þýðingu Árna Guðnasonar. Í þættinum verða flutt nokkur brot úr þessari útvarpshljóðritun á leikritinu. Einnig verður flutt tónlist við verk Sheridans eftir Thomas Linley yngri, Christoph Ernst Friedrich Weyse, Roberto Gerhard og Sergei Prokofiev. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    51 min

About Á tónsviðinu

From the publisher's feed

Í þáttunum er leikin sígild tónlist úr ýmsum áttum. Tíndir eru saman fróðleiksmolar um tónlistina og höfunda hennar og skyggnst í söguna á bak við verkin.