Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

Á tónsviðinu episodes

  • Ástarævintýri Schuberts
    Ævisagnaritarar frægra tónskálda hafa oft mikinn áhuga á ástamálum þeirra, en í tilfelli Franz Schuberts lenda þeir í vandræðum. Schubert giftist aldrei, ekki hefur varðveist ástarbréf frá honum til nokkurrar konu né öruggar heimildir um nokkurt ástarævintýri. Þó eru tvær konur sem talið er að Schubert hafi elskað, Therese Grob og Carolina Esterhazy. Í þættinum verða flutt tónverk eftir Schubert sem tengjast þessum tveimur konum.
    51 min
  • Óperur eftir konur
    Helgina 22.- 23. febrúar stendur Tónlistardeild Listaháskóla Íslands fyrir flutningi á elstu óperu eftir konu sem varðveist hefur, en það er óperan „La liberazione di Ruggiero dall´isola di Alcina“ (Björgun Ruggieros af eyju Alcinu) sem Francesca Caccini samdi árið 1625. Í tilefni af þessu verður þátturinn "Á tónsviðinu" 20. febrúar helgaður óperum eftir konur allt frá 17. öld til seinni hluta 20. aldar. Flutt verður atriði úr óperu Francescu Caccini, en einnig úr óperum eftir Önnu Amalíu af Brunswick-Wolfenbüttel, Louise Bertin, Ethel Smyth, Theu Musgrave og Karólínu Eiríksdóttur. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min
  • The Great Gatsby
    Á þessu ári eru liðin 100 ár frá því að skáldsagan "The Great Gatsby" - "Gatsby hinn mikli" - eftir F. Scott Fitzgerald kom út í Bandaríkjunum árið 1925. Þetta er ein frægasta skáldsaga 20. aldar og þykir lýsa sérlega vel andblæ áranna upp úr 1920. Sagan fjallar um Jay Gatsby, dularfullan auðkýfing sem er alltaf að halda stórveislur. Það er ungur nágranni hans, Nick Carraway, sem segir söguna, en smám saman kemst hann að sannleikanum um fortíð Gatsbys og að ástæðunni fyrir því að hann berst svo mikið á. Í þættinum "Á tónsviðinu" verða lesin brot úr skáldsögunni í þýðingu Atla Magnússonar og leikin lög sem nefnd eru í sögunni, en dægurlög þriðja áratugarins virðast oft hljóma í bakgrunni hennar. Má þar nefna lög eins og "The Sheik of Araby", "Ain´t we got fun" og "It´s three o´clock in the morning". Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    54 min
  • Goldberg - tilbrigði og Grammy verðlaun
    Fyrir skömmu fékk Víkingur Heiðar Ólafsson Grammy-verðlaun fyrir geislaplötu sína með Goldberg-tilbrigðunum eftir Johann Sebastian Bach. Hinn klassíski geiri Grammy-verðlaunanna skiptist í 8 flokka og verðlaun Víkings Heiðars voru í flokknum "Besti einleikarinn". Í þættinum "Á tónsviðinu" verða leikin nokkur af Goldberg-tilbrigðunum af geislaplötu Víkings Heiðars, en einnig verður leikin tónlist af hinum hljómdiskunum sem fengu Grammy-verðlaun á klassíska sviðinu. Meðal þeirra eru óperan "Adriana Mater" eftir finnska tónskáldið Kaiju Saariaho, sönglög eftir bandaríska 20. aldar tónskáldið Florence Price og ballettverkið "Revolucion Diamantina" eða "Glimmer-byltingin" eftir mexíkanska tónskáldið Gabrielu Ortiz. Geislaplatan með síðastnefnda verkinu fékk þrenn Grammy-verðlaun, en verkið vísar til mótmæla mexíkanskra kvenna gegn kynbundnu ofbeldi í landinu árið 2019. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Drottningin af Saba
    Drottningin af Saba er persóna sem sagt er frá í Fyrri konungabók Biblíunnar. Hún er rík og voldug drottning sem kemur að heimsækja Salómon konung og hrífst af speki hans. Í þættinum "Á tónsviðinu" 31. janúar verða flutt atriði úr tónverkum sem snúast að einhverju eða öllu leyti um  drottningunni af Saba. Þar má nefna óratóríuna "Salómon" eftir Georg Friedrich Händel, óperuna "Drottningin af Saba" eftir Charles Gounod og ballettinn "Belkis drottning af Saba" eftir Ottorino Respighi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Halla Harðardóttir.
    50 min
  • Notre Dame
    Skömmu fyrir jól var Notre Dame-dómkirkjan í París opnuð að nýju eftir viðgerðir sem staðið hafa yfir frá því að kviknaði í kirkjunni árið 2019. Í tilefni af þessu verður þátturinn "Á tónsviðinu" tileinkaður tónlist sem tengist Notre Dame. Þar má nefna söngverk eftir Leónínus, eitt helsta tónskáld Notre Dame-skólans á 12. öld, orgelverk eftir Louis Vierne, sem var organisti í Notre Dame frá árinu 1900 til 1937, og kafla úr nýju kórverki, "Magnificat" sem einn af núverandi organistum Notre Dame, Yves Castagnet, samti til flutnings við enduropnunina 7. desember sl. Skáldsagan fræga, "Hringjarinn í Notre Dame", sem Victor Hugo samdi árið 1831, kemur einnig við sögu. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    49 min
  • Matur og drykkur í óperum
    Í þættinum er fjallað um óperuatriði þar sem matur og drykkur kemur við sögu. Meðal annars verður flutt atriði úr óperunni "Don Giovanni" eftir Mozart, þar  sem aðalpersónan situr að snæðingi, atriði úr "Hans og Grétu" eftir Humperdinck, þar sem Hans og Gréta gæða sér á kökunum af kökuhúsi nornarinnar, og atriði úr "Þrymskviðu" eftir Jón Ásgeirsson þar sem Þór er dulbúinn sem Freyja og þykir borða grunsamlega mikið.
    52 min
  • Mozart
    Tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart fæddist árið 1756. Hann var því uppi á tíma Upplýsingarinnar svokölluðu, en hún fólst í breyttum viðhorfum sem margir heimspekingar, rithöfundar og stjórnmálamenn boðuðu á 18. öld. Þekking og vísindi áttu að koma í staðinn fyrir hjátrú eða trúarkreddur, miskunnsemi og mannúð átti að koma í stað grimmilegra refsinga, og einnig var boðað aukið frelsi og jafnrétti. Viðhorf Upplýsingarstefnunnar setja svip sinn á margar af tónsmíðum Mozarts og má þar til dæmis nefna óperurnar "Brúðkaup Fígarós", "La clemenza di Tito" og "Töfraflautuna". Í þættinum verða leiknar tónsmíðar eftir Mozart þar sem finna má áhrif frá Upplýsingarstefnunni. Einnig verður fjallað um kynni Magnúsar Stephensen af óperunni "Töfraflautunni" árið 1826, en Magnús var einmitt helsti forkólfur Upplýsingarstefnunnar á Íslandi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    52 min

About Á tónsviðinu

From the publisher's feed

Í þáttunum er leikin sígild tónlist úr ýmsum áttum. Tíndir eru saman fróðleiksmolar um tónlistina og höfunda hennar og skyggnst í söguna á bak við verkin.