Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

Á tónsviðinu episodes

  • Risinn eigingjarni
    Í þættinum verður fjallað um tvö tónverk sem byggð eru á sögunni „Risinn eigingjarni" (The Selfish Giant) eftir Oscar Wilde. Sagan kom út í bók árið 1888 og fjallar um risa sem á fallegan blómagarð. Hann vill ekki lofa börnum að leika sér í honum og byggir múrvegg í kringum garðinn. En þegar börnin hætta að koma í garðinn vill vorið ekki koma þangað heldur svo veturinn ríkir stöðugt í garði risans. Dag einn gerist nokkuð sem kemur risanum á óvart og breytir afstöðu hans. Tónverkin tvö, sem byggð eru á sögunni, eru eftir Penelope Thwaites og Eric Coates. Verk Thwaites er frá árinu 1968, en verk Coates frá árinu 1925. Í þættinum verða lesin brot úr sögu Wildes í þýðingu eftir Þórodd Guðmundsson frá Sandi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Tré sem tengjast tónlist
    Í þættinum verður fjallað um raunveruleg tré sem tengjast sögu tónlistar og skáldskapar. Í hverfinu Barn Elms í Lundúnum vex 340 ára gamall hlynur sem hugsanlega hefur veitt tónskáldinu Händel innblástur að óperuaríu hans „Ombra mai fu“. Arían er þekkt sem „Largo eftir Händel“, en er í rauninni lofgjörðaróður um hlyn. Vitað er að Händel bjó í hverfinu Barn Elms árið 1712 og þá var hlynurinn u.þ.b. 30 ára gamall. Í Þýskalandi og Tékklandi má finna nokkur tré sem kennd eru við skáldið Goethe og kölluð Goethe-eikur því vitað að skáldið þekkti þessi tré. Í Perthshire-héraði í Skotlandi er 600 ára gamalt tré sem kallað er Macbeth-eikin, hluti af Birnam-skógi sem nefndur er í leikritinu „Macbeth“ eftir William Shakespeare. Shakespeare gæti hafa séð þetta tré því talið er að hann hafi komið á þessar slóðir árið 1589. Og í Hallormsstaðaskógi hér á Íslandi má finna birkitré sem talið er hafa gefið Páli Ólafssyni skáldi hugmyndina að ljóðinu „Hríslan og lækurinn“, en Ingi T. Lárusson samdi við það þekkt lag. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    49 min

About Á tónsviðinu

From the publisher's feed

Í þáttunum er leikin sígild tónlist úr ýmsum áttum. Tíndir eru saman fróðleiksmolar um tónlistina og höfunda hennar og skyggnst í söguna á bak við verkin.