Austurland

Austurland

Download on the App Store

Austurland episodes

  • 24 – Fólk hugsar stærra
    Matarmenningin á Austurlandi er svo sannarlega bæði fjölbreytt og spennandi þessi misserin. Albert Eiríksson hefur verið á ferð á flugi fyrir austan og prófað girnilega rétti sem lesa má um á heimasíðunni hans alberteldar.is. Hann er ánægður með austfirskt matreiðslu- og veitingafólk og finnst það hugsa sífellt stærra. Jón Knútur Ásmundsson ræddi við Albert og... Read more »
    28 min
  • 23 – Uppbygging á Seyðisfirði
    Atvinnulífið á Seyðisfirði stóð frammi fyrir fordæmalausum og fjölþættum vanda í kjölfar hamfaranna í desember 2020 og í framhaldinu fór af stað verkefni innan Austurbrúar sem kallast Uppbygging á Seyðisfirði og í þess nafni hefur verið veitt ýmis konar ráðgjöf síðustu mánuði auk þess sem hvatasjóður var settur á laggirnar. Honum er m.a. ætlað að... Read more »
    23 min
  • 22 – Menningarverðlaun SSA
    Guðmundur R. Gíslason, tónlistarmaður frá Neskaupstað, hlaut menningarverðlaun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) sem tilkynnt var um á haustþingi sambandsins er haldið var 19. nóvember. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum á Austurlandi fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar. Í þættinum ræðir Guðmundur um þýðingu verðlaunanna, mikilvægi opinbers stuðnings við listir og... Read more »
    14 min
  • 21 – Svæðisskipulag Austurlands
    Föstudaginn 19. nóvember fór fram haustþing Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Á því voru mættir til leiks hópur kjörinna fulltrúa hjá sveitarfélögunum á Austurlandi og á þinginu bar hæst umræða um svonefnt svæðisskipulag á Austurlandi sem unnið hefur verið að síðustu misseri. Í þættinum ræðir Stefán Bogi Sveinsson, formaður svæðisskipulagsnefndar Austurbrúar, um tilgang vinnunnar og markmið.... Read more »
    27 min
  • 20 – Matarmót II
    Föstudaginn 1. október var haldið Matarmót matarauðs Austurlands í Valaskjálf, Egilsstöðum. Þar var var margt um manninn og greinilegt að gróskan í matvælageiranum á Austurlandi er mikil þessa stundina. Í þættinum heyrum við viðtöl við austfirska frumkvöðla í matargerð, veitingamenn og aðra góða gesti sem mættu á Matarmótið. Umsjón og spyrill: Jón Knútur Ásmundsson.
    27 min
  • 19 – Nordic food in tourism
    Þann 30. september heldur Nordic food in tourism lokaráðstefnu sína í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum og kynnir afrakstur þriggja ára vinnu við að kortleggja stöðu norrænnar matargerðar og framtíðar í sjálfbærri matarferðaþjónustu. Ráðstefnan er hluti af dagskrá matarhátíðarinnar Okkur að góðu sem fer fram á Austurlandi dagana 30. september til 2. október. Viðmælandi í þættinum... Read more »
    17 min
  • 18 – Matarmót I
    Matargerð er á miklu flugi á Austurlandi og í landshlutanum er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða og framleiðenda sem vinna með staðbundin hráefni. Af þessari ástæðu er blásið til Matarmóts Matarauðs Austurlands sem haldið verður þann 1. október í Valaskjálf, Egilsstöðum. Matarmótið er hluti af glæsilegri dagskrá dagana 30. september til 2. október sem gerir... Read more »
    18 min
  • 17 – Hacking Austurland
    Í þessum þættu er fjallað um lausnamótið Hacking Austurland sem fer fram dagana 30. september til 2. október 2021 í Neskaupstað. Gestir þáttarins eru Arnfríður Eide Hafþórsdóttir hjá Austurbrú og Svava Björk Ólafsdóttir hjá Hacking Hekla. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    26 min
  • 16 – Our future – AUSTURLAND
    Daniel Byström at Design Nation, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir at Iceland Tourism Cluster Initiative and María Hjálmarsdóttir at Austurbrú discuss OUR FUTURE, a digital open talk that will be held 14. December at 1 PM – 2:30 PM. A fresh and open-minded conversation for uncertain times! This episode is hosted by Jón Knútur Ásmundsson.
    30 min
  • 15 – Fögur framtíð í Fljótsdal
    Austubrú hefur umsjón með verkefninu Fögur framtíð í Fljótsdal. Markmið þess er efling byggðar í Fljótsdal. Rætt er við Ásdísi Helgu Bjarnadóttur sem stýrir verkefninu. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    22 min

About Austurland

From the publisher's feed

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.