Austurland

Austurland

Download on the App Store

Austurland episodes

  • 34 – Síreksstaðir
    Í þættinum er rætt við Karenu Hlín Halldórsdóttur, sem m.a. rekur ferðaþjónustu á Síreksstöðum nálægt Vopnafirði. Á Síreksstöðum er fólki boðið að losa sig við daglega stressið, slaka á í rólegu umhverfi, upplifa daglegt líf á sveitabæ og njóta ferskrar matvöru beint af býli svo eitthvað sé nefnt. Karen segir frá rekstrinum, framtíðaráformum, matvælaframleiðslu og... Read more »
    24 min
  • 33 – Skógarafurðir
    Í þættinum er rætt við Bjarka Jónsson hjá Skógarafurðum ehf. en fyrirtækið sérhæfir sig í skógarafurðum úr eigin skógi og framleiðir t.d. pallaefni, parket og flettivið. Fyrirtækið fékk myndarlegan styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands þegar úthlutað var í desember og í þættinum rekur Bjarki sögu Skógarafurða, segir frá rekstrinum, helstu áskorunum og framtíðarsýninni. Umsjón hefur Jón... Read more »
    39 min
  • 32 – Úthlutun Uppbyggingarsjóðs Austurlands
    Alls fengu 67 verkefni styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands þegar úthlutað var úr sjóðnum þann 5. desember 2023. Við vorum á staðnum, fræddumst aðeins um sjóðinn og tókum nokkra styrkþega spjalli. Viðmælendur eru Unnar Geir Unnarsson, formaður úthlutunarnefndar, Sóley Þrastardóttir hjá Sinfóníuhljómsveit Austurlands, Auður Vala Gunnarsdóttir og Ann-Marie Schlutz hjá Austfirskum krásum, Jón Svansson hákarlaverkandi á... Read more »
    32 min
  • 31 – Skriðuklaustur og heilsársferðaþjónusta í Mjóafirði
    Skriðklaustur í Fljótsdal hlaut nýverið nýsköpunarviðurkenningu Samtaka ferðaþjónustunnar en síðustu ár hafa forstöðumenn Skriðuklausturs unnið að stafrænni þróun t.d. með leikjavæðingu safnsins. Við heyrum í Skúla Birni Gunnarssyni, forstöðumanni Gunnarsstofnunar, og ræðum við hann um starfsemina. Í Mjóafirði er verið að byggja upp heilsársferðaþjónustu undir einkunnarorðunum friðsæld og fegurð. Við heyrum í Margréti Sigfúsdóttur sem... Read more »
    46 min
  • 30 – Matarmót 2022
    Matarmót Matarauðs Austurlands 2022 var haldið föstudaginn 21. október í Hótel Valaskjálf. Þar voru haldnar málstofur auk þess sem matvælaframleiðendur á Austurlandi kynntu framleiðslu sína og buðu upp á smakk. Í þættinum er rætt við sýnendur, gesti, fyrirlesara og skipuleggjendur en fram koma: Bryndís Fiona Ford, skólastjóri Hallormsstaðaskóla; Þórhildur María Jónsdóttir, verkefnastjóri vörusmiðju Biopol á... Read more »
    56 min
  • 29 – Austurbrú 10 ára – menningarstarf á Austurlandi
    Austurbrú hélt upp á sitt fyrsta stórafmæli í vor eftir viðburðaríkan áratug. Frá stofnun hefur stofnunin unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði markaðssetningar, atvinnuþróunar, fræðslu og síðast en ekki síst menningar. Fáir þekkja menningarstarfsemi á Austurlandi jafn vel og Signý Ormarsdóttir, yfirverkefnasstjóri hjá Austurbrú. Um árabil var hún framkvæmdastjóri Menningarráðs Austurlands, þegar það var og... Read more »
    25 min
  • 28 – Námsferð til Svíþjóðar
    Dagana fimmta til áttunda september fóru nokkrir starfsmenn Austurbrúar í námsferð til Svíþjóðar til að kynna sér náms- og starfsráðgjöf fyrir innflytjendur. Í þættinum er sagt frá ferðinni, tilurð hennar og tilgangi. Rætt er við sænska náms- og starfsráðgjafann Daniel Hailemariam, íslenskukennarann Berglindi Einarsdóttur og ráðgjafana Þorbjörgu Ólöfu Jónsdóttur og Hrönn Grímsdóttur. Umsjón með þættinum... Read more »
    32 min
  • 27 – Sterkur Stöðvarfjörður
    Stöðvarfjörður hefur alla burði til að eflast sem ferðamannastaður og menningar- og nýsköpunarbær. Hægt er að styrkja byggðina með því að nýta tækifæri á sem flestum sviðum og byggja á því sem þegar er til staðar. Leggja ætti áherslu á góða aðstöðu til útivistar og fjölskyldusamveru og mikilvægt er að auka framboð á íbúðarhúsnæði. Þetta... Read more »
    28 min
  • 26 – Austurbrú tíu ára
    Austurbrú hélt upp á sitt fyrsta stórafmæli nú í vor eftir viðburðarík tíu ár. Í tilefni afmælisins var boðið til hátíðardagskrár í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði þar sem m.a. voru haldin nokkur erindi. Öll tengdust þau með einum eða öðrum hætti Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044. Stefán Bogi Sveinsson, skáld og sveitarstjórnarfulltrúi, talaði um sjálfsmynd Austfirðinga. Páll... Read more »
    31 min
  • 25 – Dyrfjallahlaup
    Í fyrsta þætti ársins fjöllum við um Dyrfjallahlaupið sem fram fer þann 9. júlí næstkomandi og verður efalítið einn af hápunktum ferðasumarsins á Austurlandi árið 2022. Þetta er utanvegahlaup sem nýtur vaxandi vinsælda enda hlaupið um einstaklega stórbrotið og fjölbreytt landslag. Viðmælandi þáttarins er Olgeir Pétursson, hlaupastjóri. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    38 min

About Austurland

From the publisher's feed

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.