Austurland

Austurland

Download on the App Store

Austurland episodes

  • 54 – Umhverfisráðstefna Austurlands – 2. þáttur
    Í þessum þætti höldum við áfram að fjalla um Umhverfisráðstefnu Austurlands 2025. Ráðstefnan fer fram 5. júní í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og fjallar um sjálfbæra framtíð í mannvirkjagerð, skipulagi og vistvænum lausnum með Austurland í forgrunni. Talað er við Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur, sviðsstjóra samfélags hjá Eflu og fundarstjóra ráðstefnunnar, og Alexöndru Kjeld, umhverfisverkfræðing, sem verður... Read more »
    19 min
  • 53 – Umhverfisráðstefna Austurlands
    Í þessum þætti beinum við sjónum að Umhverfisráðstefnu Austurlands, sem fer fram 5. júní í Sláturhúsinu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni „Hvernig byggjum við 2050?“ Viðmælendur eru: Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar og Skarphéðinn Smári Þórhallsson, landfræðingur, sem á ráðstefnunni ætlar að kynna framtíðarsýn um nýjan byggðarkjarna í Fljótsdal. Umsjón: Jón... Read more »
    33 min
  • 52 – Náttúran sem lausn: NATALIE-verkefnið á Íslandi
    Hvernig getum við nýtt náttúruna til að aðlagast loftslagsbreytingum? Í nýjasta þætti Austurland hlaðvarp fjöllum við um NATALIE, stórt Evrópuverkefni sem snýst um að þróa náttúrumiðaðar lausnir gegn afleiðingum loftslagsbreytinga. Verkefnið er hluti af Horizon Europe og Ísland tekur virkan þátt með Austurland sem tilvikssvæði. Viðmælandi þáttarins er Anna Berg Samúelsdóttir hjá Matís, sem stýrir... Read more »
    41 min
  • 51 – Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029
    Í nýjasta þætti Austurlands hlaðvarps ræðum við Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 og hvað hún þýðir fyrir samfélagið okkar. Viðmælandi þáttarins er Urður Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, sem leiddi vinnuna. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    31 min
  • 50 – Námskeið í notkun gervigreindar á Austurlandi
    Gervigreind er komin til að vera og hlutverk hennar í okkar daglega lífi mun aukast gríðarlega á næstu árum. Fræðslu- og ráðgjafafyrirtækið Javelin AI í samstarfi við Austurbrú ætlar að bjóða upp á námskeiðið „ChatGPT frá A til Ö“ í janúar og mars sem mun nýtast öllum sem vilja tileinka sér gervigreind í leik og... Read more »
    21 min
  • 49 – Íslenskukennarinn Davíð Samúelsson
    Í þættinum er rætt við Davíð Samúelsson sem kennir íslensku fyrir útlendinga. Davíð er búsettur í Belgíu og kennir námskeiðin sín í fjarnámi. Í viðtalinu segir hann frá sinni nálgun á kennslu en hann leggur mikla áherslu á að námið sé persónulegt og praktískt. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    22 min
  • 48 – Matarmót Austurlands – seinni þáttur
    Matarmót Austurlands 2024 var haldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 9. nóvember. Í þættinum mætum við á staðinn og ræðum við skipuleggjendur, austfirska framleiðendur, landsliðskokka og gesti. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    29 min
  • 47 – Matarmót Austurlands – fyrri þáttur
    Landsins gæði – austfirsk hráefni er þema Matarmóts Austurlands sem fram fer þann 9. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Á Matarmótinu kynna austfirskir matvælaframleiðendur vörur sínar og bjóða gestum og gangandi að bragða á, allt frá sælgæti og sultum til þurrkaðs ærkjöts og annars lostætis. Viðmælandi í þættinum er Sigrún Sól Agnarsdóttir. Hún er búsett... Read more »
    29 min
  • 46 – Ljósleiðaravæðing
    Í þessum þætti er til umfjöllunar ljósleiðaravæðing í sveitarfélaginu Fjarðabyggð en þann 28. október var undirritaður samningur á milli Fjarðabyggðar og Mílu um viðamikla framkvæmd sveitarfélagsins í að ljúka ljósleiðaravæðingu heimila og fyrirtækja allra byggðakjarna næstu tvö árin. Þetta eru stór tímamót fyrir sveitafélagið og búið að vera mikið kappsmál hjá íbúum að kalla eftir... Read more »
    18 min
  • 45 – Öruggara Austurland
    „Öruggara Austurland“ er heiti á þverfaglegum samráðsvettvangi á Austurlandi sem hefur það markmið að vinna sameiginlega gegn ofbeldi og öðrum afbrotum með markmiðum og aðgerðum sem byggðar eru á svæðisbundnum aðstæðum á Austurlandi. Mánudaginn 14. október var haldinn fjölmennur fundur á Reyðarfirði þar sem hagaðilar verkefnisins fóru yfir stöðuna og ræddu næstu skref. Í þættinum... Read more »
    20 min

About Austurland

From the publisher's feed

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.