Austurland

Austurland

Download on the App Store

Austurland episodes

  • 74 – Jódís Skúladóttir og Hinsegin Austurland
    Jódís Skúladóttir, talskona Hinsegin Austurlands, er gestur Austurlands hlaðvarps að þessu sinni. Rætt er um Regnbogahátíð Austurlands, starf Hinsegin Austurlands og mikilvægi þess að hinsegin fólk geti fundið samfélag, stuðning og skjól á sínum heimaslóðum. Jódís ræðir einnig um breytt viðhorf til hinsegin fólks, mikilvægi fræðslu og sýnileika og það bakslag og þá hörðu orðræðu... Read more »
    31 min
  • 73 – Olgeir Pétursson og Dyrfjallahlaupið
    Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Olgeir Pétursson, hlaupastjóra Dyrfjallahlaupsins, um uppruna og þróun hlaupsins sem hefur á fáum árum fest sig í sessi sem eitt af stærstu utanvegahlaupum landsins. Þeir ræða sjálfboðaliðastarfið og samfélagsandann á Borgarfirði eystri, hvernig hlaupið varð til og hvers vegna markmiðið hefur alltaf verið stærra en... Read more »
    36 min
  • 72 – Ragnar Sigurðsson og SSA
    Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Ragnar Sigurðsson, nýkjörinn formann Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA). Ragnar fer yfir sýn sína á hlutverk SSA, hvernig efla megi samstarf sveitarfélaganna og hvers vegna hann telur mikilvægt að einbeita sér að sameiginlegum hagsmunamálum Austurlands. Einnig rifjar hann upp eigin leið inn í sveitarstjórnmál og... Read more »
    37 min
  • 71 – Páll Baldursson og Starfamessa Austurlands 2026
    Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Pál Baldursson, verkefnastjóra hjá Austurbrú, um Starfamessu Austurlands 2026 sem fram fer í Neskaupstað 24. september. Þeir fara yfir markmið messunnar, mikilvægi þess að kynna ungu fólki fjölbreytt störf og menntunarmöguleika á Austurlandi og hvernig slíkir viðburðir geta styrkt tengsl milli skóla og atvinnulífs. Einnig... Read more »
    55 min
  • 70 – Signý Ormarsdóttir og Skapandi Austurland
    Viðmælandi er Signý Ormarsdóttir, fulltrúi menningar hjá Austurbrú, en fimmtudaginn 11. júní fór fram ráðstefnan Skapandi Austurland, ráðstefna um menningu og listir í landsbyggðunum sem Austurbrú, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og Menningarstofa Fjarðabyggðar standa fyrir. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    51 min
  • 69 – Austurbý á Nýsköpunarvikunni
    Viðmælandi í þættinum er Sæunn Vigdís Sigvaldadóttir, frumkvöðull og býrækandi á Austurlandi. Hún hélt erindi á Iceland Innovation Week/Nýsköpunarvikunni sem fram fór í Reykjavík dagana 27. til 30. apríl. Erindi hennar var hluti af viðburði sem landshlutasamtök hringinn í kringum landið héldu í Grósku 28. apríl. Á honum kynntu þátttakendur úr Startup Landið, nýsköpunarhraðli fyrir... Read more »
    49 min
  • 68 – Málþing um safnamál á Austurlandi
    Í þættinum er fjallað um safnamál á Austurlandi af því tilefni að á mánudaginn, 20. apríl, verður málþing í Vonarlandi á Egilsstöðum þar sem fjallað verður um söfn og samfélag á Austurlandi. Viðmælendur eru Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Guðrún Rúnarsdóttir hjá bókasafninu á Reyðarfirði, Hlín Gylfadóttir hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur, Elsa Guðný Björgvinsdóttir, fulltrúi menningar... Read more »
    1 hr 29 min
  • 67 – „Erfiðasti skólinn var samvinna við annað fólk“
    Í þessum þætti ræðir Stefán Bogi Sveinsson, forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga og fyrrverandi sveitarstjórnarmaður, um reynslu sína úr pólitík og starfi á Austurlandi. Hann fer yfir hvað það krefst að starfa í sveitarstjórn, hvað hann lærði á tólf árum í pólitík og hvers vegna hann ákvað að stíga til hliðar. „Erfiðasti skólinn var samvinna við annað... Read more »
    50 min
  • 66 – Samtal við Smára Geirsson um SSA
    Í nýjum þætti Austurland hlaðvarp er saga SSA rifjuð upp með Smára Geirssyni, fyrrverandi formanni og höfundi bókar um sögu SSA. Rætt er um Fjórðungsþing Austfirðinga, hugmyndir á vettvangi þess um fylkjaskipan Íslands og baráttuna fyrir auknum völdum landshlutans. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    1 hr 6 min

About Austurland

From the publisher's feed

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.