Austurland

Austurland

Download on the App Store

Austurland episodes

  • 64 – Samvinnurými
    Samvinnurými eru orðin mikilvægur hluti af atvinnu- og byggðaþróun á Austurlandi. Í þessum þætti er rætt við Söru Elísabetu Svansdóttur hjá Austurbrú, Múlinn í Neskaupstað er heimsóttur og starfsmenn þar teknir tali og svo er rætt við framkvæmdastjóra Múlans og SÚN, Guðmund R. Gíslason, en síðan Múlinn opnaði árið 2021 hafa orðið til rúmlega 2o... Read more »
    1 hr
  • 63 – Fræðslustjóri að láni
    Í þessum þætti Austurland hlaðvarps er fjallað um verkefnið „Fræðslustjóri að láni“ sem Austurbrú býður fyrirtækjum og stofnunum á Austurlandi til að styðja við markvissa sí- og endurmenntun. Umsjónarmaður þáttarins, Jón Knútur Ásmundsson, ræðir við Hrönn Grímsdóttur og Þorbjörgu Ólöfu Jónsdóttur (Bobbu) hjá Austurbrú, sem leiða verkefnið, sem og Lúðvík Emil Arnarsson og Hjálmar Ólaf... Read more »
    40 min
  • 62 – Matarmót Austurlands – annar hluti
    Í þessum þætti ræðir Jón Knútur við Dóru Svavarsdóttur, matreiðslumeistara og formann Slow Food á Íslandi, um Matarmót Austurlands sem haldið verður 15. nóvember. Þau ræða hæglætismatvæli, mikilvægi staðbundins hráefnis og hvernig betri matur getur skapað betra samfélag.
    23 min
  • 61 – NATALIE verkefnið – annar hluti
    Í þessum þætti af Austurland hlaðvarpi er fjallað um vinnustofu NATALIE-verkefnisins sem haldin var á Reyðarfirði 28. október. Verkefnið miðar að því að þróa náttúrumiðaðar lausnir sem auka viðnám samfélaga gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga á strandvistkerfi. Í þættinum koma við sögu Anna Berg Samúelsdóttir frá Matís, Pétur Már Bernhöft hjá GreenFish og Ragnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi í... Read more »
    23 min
  • 60 – Matarmót Austurlands 2025
    Matarmót Austurlands 2025 verður haldið í fimmta skipti laugardaginn 15. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni „Landsins gæði – austfirsk hráefni“. Þar sameinast að venju framleiðendur, frumkvöðlar og mataráhugafólk í sannkallaðri veislu fyrir bragðlaukana þar sem landshlutinn sýnir hvað hann hefur upp á að bjóða þegar kemur að hráefnum og matargerðarlist. Viðmælandi þáttarins er... Read more »
    26 min
  • 59 – Geðræktarmiðstöðvar á Austurlandi
    Geðræktarmiðstöðvar voru opnaðar í Múlaþingi og í Fjarðabyggð í október. Við ræðum við Hilmar Garðarsson, notendafulltrúa, og Lindu Pehrsson, forstöðumann Starfsendurhæfingar Austurlands í þættinum. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    45 min
  • 57 – Farsældarráð á Austurlandi
    Í þættinum er fjallað um stofnun farsældarráðs á Austurlandi. Farsældarráðið verður svæðisbundinn samráðsvettvangur þjónustuveitenda sem bera ábyrgð á þjónustu við börn og fjölskyldur á Austurlandi. Viðmælandi í þættinum er Nína Hrönn Gunnarsdóttir, verkefnastjóri farsældar á Austurlandi. Umsjón hefur Jón Knútur Ásmundsson.
    31 min
  • 56 – Sjálfbærniverkefni á Austurlandi
    Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Viðmælandi í þættinum er Lilja Sif Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, sem hefur umsjón með verkefninu fyrir okkar hönd. Hún hefur verið að rýna í gögn sjálfbærniverkefnisins síðustu vikur... Read more »
    31 min
  • 55 – Hernámsdagurinn á Reyðarfirði
    Hernámsdagurinn á Reyðarfirði hefur verið endurvakinn eftir hlé og við kynnum okkur hann. Jón Knútur Ásmundsson ræðir við Árna Pétur Árnason frá Menningarstofu Fjarðabyggðar og sagnfræðinginn Gauta Pál Jónsson sem skoðað hefur mannfall Íslendinga af völdum setuliðsins á stríðsárunum.
    36 min

About Austurland

From the publisher's feed

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.