Austurland

Austurland

Download on the App Store

Austurland episodes

  • 14 – Íslenskunám fyrir útlendinga
    Austurbrú hefur um árabil sinnt kennslu fyrir útlendinga í landshlutanum og hafa fleiri hundruð manns farið í gegnum tungumálanám hjá okkur. Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir og Berglind Einarsdóttir hjá Austurbrú sögðu frá verkefninu. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    36 min
  • 13 – BRAS – menningarhátíð barna og ungmenna
    Í september og október stendur yfir á Austurlandi BRAS – menningarhátíð barna og ungmenna. Hátíðin hefur fest sig í sessi en þetta er í þriðja sinn sem hún er haldin. Yfirskriftin að þessu sinni er:  „Réttur til áhrifa“ og byggir hún á 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttinn til að láta skoðanir sínar í... Read more »
    14 min
  • 12 – Uppbyggingarsjóður Austurlands
    Nýverið auglýsti Uppbyggingarsjóður Austurlands eftir umsóknum en Austurbrú hefur umsjón með sjóðnum. Í þættinum er rætt við Signýju Ormarsdóttur, yfirverkefnastjóra hjá Austurbrú, um þýðingu sjóðsins fyrir austfirskt samfélag og þá er rætt við Tinnu Halldórsdóttur, verkefnastjóra Uppbyggingarsjóðsins, um umsóknarferlið og helstu einkenni góðrar umsóknar. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
    1 hr 1 min
  • 11 – Loftbrú
    Loftbrú var hleypt af stokkunum í vikunni. Það þýðir að rúmlega 60 þúsund landsmenn sem búa fjarri höfuðborginni geta nú fengið innanlandsflug til Reykjavíkur niðurgreitt af ríkinu um 40 prósent. Austurbrú átti talsverða aðkomu að verkefninu og í þessum þætti segir Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, frá aðdraganda þess og þeim væntingum sem hún hefur... Read more »
    30 min
  • 10 – SparAustur
    Austurbrú keypti nýverið appið SparAustur og réð Auðun Braga Kjartansson, frumkvöðul og höfund þess, til starfa. Appið veitir notendum vildarkjör hjá veitingastöðum, verslunum og þjónustuaðilum á Austurlandi. Í þessum tíunda hlaðvarpsþætti Austurland hlaðvarp ræða Jónína Brynjólfsdóttir, Kristjana Louise Friðbjarnardóttir og Jón Knútur Ásmundsson við Auðun um tilgang og markmið SparAusturs og hvaða væntingar Austurbrú hefur... Read more »
    21 min
  • 09 – Er Austurland fjölmenningarsamfélag? II
    Þriðjudaginn 23. júní 2020 stóð Austurbrú fyrir málþingi í Egilsbúð, Neskaupstað, um málefni fólks af erlendum uppruna. Í þessum þætti koma fram:Wala Abu Libdeh, íbúi af erlendum uppruna (00:24); Zane Brikovska, ráðgjafi hjá Alþjóðastofu Akureyrarbæjar (10:18); Davíð Þór Jónsson, prestur við Laugarneskirkju (29:50). Seinni þáttur af tveimur.    
    43 min
  • 08 – Er Austurland fjölmenningarsamfélag? I
    Þriðjudaginn 23.6.20 stóð Austurbrú fyrir málþingi í Neskaupstað um málefni fólks af erlendum uppruna. Í þessum þætti koma fram: Jóna Á. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar (0:00:25); Tinna Halldórsdóttir, félagsfræðingur hjá Austurbrú (0:06:40); Linda D. Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Fjölmenningarsetri (00:26:10); Gosia Libera, íbúi af erlendum uppruna (00:40:30); Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri (00:49:15).
    1 hr 6 min
  • 07 – Heimamenn heimsækja Austurland
    Hjá Austurbrú hafa nokkrir starfsmenn það hlutverk að kynna Austurland fyrir ferðamönnum. Í kjölfar heimsfaraldurs er ljóst að íslenskir ferðamenn verða áberandi í sumar og það kallar á annars konar markaðssetningu. Í þessum þætti segja þau Jónína Brynjólfsdóttir, Páll Guðmundur Ásgeirsson og María Hjálmarsdóttir frá því hvernig Austurland er kynnt landsmönnum og ekki síst fyrir... Read more »
    29 min
  • 06 – Fjölmenning I
    Í þessum þætti er talað við Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri. Hann hefur stundað rannsóknir á stöðu innflytjenda á landsbyggðinni og verður einn fyrirlesara á málþingi um stöðu fólks af erlendum uppruna á Austurlandi sem Austurbrú mun standa fyrir þann 23. júní næstkomandi í Egilsbúð í Neskaupstað. Samtalið fer fram á ensku. Umsjón:... Read more »
    24 min
  • 05 – Líf og heilsa
    Í þessum þætti er fjallað um Evrópuverkefnið og námskeiðið Líf og heilsa. Hrönn Grímsdóttir og Jón Knútur Ásmundsson hjá Austurbrú ræða við Bylgju Borgþórsdóttur hjá sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði og Ragnhildi Tryggvadóttur frá Neskaupstað. Þátturinn var tekinn upp 27. maí 2020.
    37 min

About Austurland

From the publisher's feed

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.