Við tökum með okkur bækur í bíósalinn í þætti dagsins. Bækur hafa orðið efni í kvikmyndir allt frá upphafi þeirrar listgreinar. Við lítum á tvær skáldsögur í dag sem komu út á svipuðum tíma og urðu að kvikmynd á svipuðum tíma. Það eru bækurnar Röskun eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur sem kom út árið 2019 og varð að kvikmynd nú fyrir skemmstu. Og skáldsagan Hamnet eftir írska rithöfundinn Maggie O’Farrell sem kom út 2020 og varð að kvikmynd í lok síðasta árs.
Viðmælendur: Íris Ösp Ingjaldsdóttir, Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Ingibjörg Ágústsdóttir og Sunna Dís Másdóttir.