Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

All Bara bækur episodes

  • Köngurváfa og Mánahjörð
    Tvær ljóðabækur reka á fjörur okkar í þætti dagsins. Ein er frá því í vor, hin er haustbók sem kom út um það leyti sem almyrkvinn umtalaði á sólu reið hér yfir. Bækurnar eiga sitthvað sameiginlegt, þær draga báðar fram myndir úr fortíðinni þar sem leitað er í æskuminningarnar og báðar hafa þær að geyma ljóð sem bregða á náttúruna nýrri birtu eða framandgera það sem alla jafna telst hversdagslegt og bæði skáld blanda saman raunsæi og fantasíu. Titlar beggja eru sóttir í fortíð, glataða menningu eða orðaforða sem tengir þær við hið goðsagnakennda. Þetta eru ljóðabækurnar Mánahjörð eftir Kára Tulinius og Köngurváfa eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Við ætlum að hitta bæði skáldin í þætti dagsins, heyra ljóð úr bókunum og spjalla um kveðskapinn.
    Viðmælendur: Kári Tulinius og Arndís Þórarinsdóttir.
    50 min
  • Skrapp út, kem að vörmu kv. Ódysseifur
    Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni heim eftir jafnlangt stríð við Trójumenn. Persónur, guðir og goðsagnir úr þessum elstu bókmenntatextum vesturlanda hafa vakið undrun og innblástur um aldir en líklega enginn eins og Ódysseifur, sem er ekki aðeins að finna í Ódysseifskviðu þar sem hann er söguhetjan og Illíonskviðu þar sem hann leikur líka stórt hlutverk heldur er hann goðsögn sem dúkkar upp reglulega í bókmenntasögunni, stundum í yfirfærðri merkingu og sagan um heimferð hans hefur orðið einskonar skapalón fyrir hetju- og heimferðasögur. Ódysseifur hefur orðið tákn flökkuhetjunnar sem leitar heimilis síns og hann hefur verið túlkaður á ótal vegu í takt við tíðarandann hverju sinni. Ódysseifur er menningartákn nánast eins og það sem í dag kallast jarm eða meme, hugmynd eða tákn sem berst milli manna og þvert á menningarheima. Alltaf á leiðinni heim. En virðist aldrei takast það. Hver er þessi flókni maður, bragðarefurinn, hinn ráðagóði Ódysseifur. Af hverju er hann í sífelldri aðlögun og endurnýjun?
    Viðmælendur: Hjalti Snær Ægisson og Gottskálk Jensson.
    53 min
  • Drengur les sér til gagns
    Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí undir hendinni. Það kom á daginn að þessi kornungi bókaormur er djúpt sokkinn í lestur heimsbókmennta og bókasöfnun. Röð tilviljana leiddu til þess að Jóhannes og drengurinn, Gabríel Haukur, hittust aftur og ræddu bókmenntir og lestur ungra drengja fyrir þáttinn Bara bækur. Það heyrast gjarnan fréttir um að ungir drengir séu sá þjóðfélagshópur sem geti varla lesið sér til gagns. Í Bara bókum verður skyggnst inn í stöðu læsis á Íslandi og rætt við unga heimsbókmenntamanninn Gabríel sem hefur fyrir 12 ára aldur lesið verk eftir Victor Hugo, George Orwell, John Steinbeck og Mary Shelly.
    51 min
  • Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí undir hendinni. Það kom á daginn að þessi kornungi bókaormur er djúpt sokkinn í lestur heimsbókmennta og bókasöfnun. Röð tilviljana leiddu til þess að Jóhannes og drengurinn, Gabríel Haukur, hittust aftur og ræddu bókmenntir og lestur ungra drengja fyrir þáttinn Bara bækur. Það heyrast gjarnan fréttir um að ungir drengir séu sá þjóðfélagshópur sem geti varla lesið sér til gagns. Í Bara bókum verður skyggnst inn í stöðu læsis á Íslandi og rætt við unga heimsbókmenntamanninn Gabríel sem hefur fyrir 12 ára aldur lesið verk eftir Victor Hugo, George Orwell, John Steinbeck og Mary Shelly.
    52 min
  • Hver er útlendingurinn í Útlendingnum?
    Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír.
    Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.
    54 min
  • Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill
    Mark Twain. Höfundur sem hefur oftsinnis verið þýddur á íslensku og það alveg frá samtíma Twains. Flestir þekkja eflaust sögurnar um Stikilsberja Finn eða Huckleberry Finn. Fyrir skemmstu kom út smásaga eftir Twain, Milljón punda seðillinn í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Það er Sverrir Kristinsson sem gefur út en hann hefur reglulega gefið út gamlar merkilegar bækur í stílhreinum útgáfum frá 2011. Þetta er þó ekki fyrsta þýðing þessarar sögu, sem er einskonar dæmisaga og samfélagsgagnrýni sem kom fyrst út 1893. Við ræðum við Guðna Kolbeinsson þýðanda.
    Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóðabók sem nefndist Stúlka og kom út árið 1876. Löngu síðar kom út önnur ljóðabók eftir Júlíönu, sem þá var orðin roskin og flutt til Vesturheims; sú nefndist Hagalagðar. Á afmælisári beggja bókanna koma þær nú út saman í einu bindi, önnur 150 ára gömul og hin 110 ára. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu. Við fjöllum þessa nýju útgáfu í þættinum og ræðum við Sólveigu Ástu Sigurðardóttur sem ritar eftirmála.
    Viðmælendur: Guðni Kolbeinsson og Sólveig Ásta Sigurðardóttir.
    51 min
  • Fjöruverðlaunin og íslensku þýðingaverðlaunin
    Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar.
    Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.
    52 min
  • Bækur verða bíó: Röskun og Hamnet
    Við tökum með okkur bækur í bíósalinn í þætti dagsins. Bækur hafa orðið efni í kvikmyndir allt frá upphafi þeirrar listgreinar. Við lítum á tvær skáldsögur í dag sem komu út á svipuðum tíma og urðu að kvikmynd á svipuðum tíma. Það eru bækurnar Röskun eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur sem kom út árið 2019 og varð að kvikmynd nú fyrir skemmstu. Og skáldsagan Hamnet eftir írska rithöfundinn Maggie O’Farrell sem kom út 2020 og varð að kvikmynd í lok síðasta árs.
    Viðmælendur: Íris Ösp Ingjaldsdóttir, Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Ingibjörg Ágústsdóttir og Sunna Dís Másdóttir.
    53 min