Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.... more
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.
January 07, 2025Þórir Hergeirsson gerir upp NoregstímannÞórir Hergeirsson var til viðtals eftir að hafa lokið störfum hjá norska handboltasambandinu eftir 24 ára starf. Hann er spenntur fyrir því að takast á við ný verkefni eftir fádæma gott gengi....more28minPlay
November 12, 2024Arnór Smárason gerir upp viðburðarríkan ferilArnór Smárason lét gott heita og lagði knattspyrnuskóna á hilluna á dögunum, 36 ára gamall. Arnór var snemma talinn bera af á fótboltavellinum og var valinn besti leikmaður Shellmótsins 10 ára gamall og aðeins 15 ára var hann fluttur einn og óstuddur í atvinnumennsku til Heerenveen í Hollandi. Arnór vann sig inn í lið Heerenven um tvítugsaldurinn en slæm meiðsli settu strik í reikninginn. Hann átti eftir að fara víða og lék á ferli sínum í Svíþjóð, Noregi og Rússlandi áður en Skagamaðurinn lék loks sína fyrstu leiki fyrir uppeldisfélagið ÍA í fyrra. Hann leiddi liðið upp í efstu deild og eftir meiðslahrjáð sumar lék hann sinn síðasta leik í tapi fyrir Val í lokaumferð deildarinnar. Við settumst niður með Arnóri og fórum yfir ferilinn og framhaldið....more1h 6minPlay
November 05, 2024Besta sætið - Bestu deildar uppgjörIngvi Þór Sæmundsson fékk þá Atla Viðar Björnsson og Baldur Sigurðsson til að fara yfir nýafstaðið tímabil í Bestu deild karla....more1h 16minPlay
November 02, 2024Theodór Elmar Bjarnason gerir upp skrautlegan ferilTheodór Elmar Bjarnason setti punkt fyrir aftan 20 ára knattspyrnuferil sinn þegar KR vann 7-0 sigur á HK í lokaumferð Bestu deildar karla síðustu helgi. Ferill hans er skrautlegur en hann hélt utan aðeins 17 ára gamall til stórliðs Celtic í Skotlandi og hefur síðan alls leikið í sex löndum, að Íslandi undanskildu. Hann lítur nú til næsta verkefnis en hann hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari uppeldisfélagsins og verður því á hliðarlínunni í Bestu deildinni að ári....more38minPlay
November 01, 2024Birkir Már Sævarsson skilur sáttur við ferilinnBirkir Már Sævarsson lék sinn síðasta knattspyrnuleik á ferlinum þegar lið hans Valur vann 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla síðustu helgi. Þar hóf hann einnig meistaraflokksferilinn árið 2004, átti síðar eftir að vera í atvinnumennsku í Noregi og Svíþjóð í áratug, og er þá fjórði leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins með 103 landsleiki að baki. Við settumst niður með Birki Má fyrir lokaleikinn við ÍA en hann nú floginn til Svíþjóðar hvar fjölskylda hans hefur búið frá því í desember í fyrra....more22minPlay
October 30, 2024Ómar Ingi Guðmundsson og viðskilnaðurinn við HKGreint var frá því í yfirlýsingu HK á þriðjudagskvöldið síðastliðið að Ómar Ingi Guðmundsson myndi ekki halda áfram þjálfun karlaliðs félagsins í fótbolta sem að féll úr Bestu deildinni á nýafstöðnu tímabili. Það var að ósk Ómars að leiðir myndu skilja á þessum tímapunkti en hann hafði verið aðalþjálfari liðsins síðan árið 2022 og hafði það sama ár stýrt liðinu upp í efstu deild á nýjan leik.Ómar er HK-ingur út í gegn og hefur hann verið það frá sex ára aldri þegar að hann hóf að æfa fótbolta með félaginu sama ár og það var stofnað, á því herrans ári 1992 og á Ómar feril hjá HK sem leikmaður, þjálfari hjá yngri flokkum félagsins og nú síðast sem aðalþjálfari. Rúmt þriggja áratuga samstarf að taka enda en bara tímabundið því HK verður alltaf hluti af Ómari.Í þessu viðtali ræði ég við hann um tímann hjá HK, ást hans á félaginu, ákvörðunina stóru sem og sýn hans á framhaldið, bæði hvað sig varðar en einnig HK. Verið velkomin í Besta sætið. Með mér, Aroni Guðmundssyni og gesti mínum Ómari Inga Guðmundssyni....more23minPlay
October 17, 2024Börkur Edvardsson: Komið að tímamótum eftir 21 ár í embætti formannsEftir tuttugu og eins árs feril í embætti formanns knattspyrnudeildar Vals hefur Börkur Edvardsson ákveðið að láta staðar numið og mun hann ekki bjóða sig fram til formanns sé stjórnarsetu á komandi haustfundi félagsins. Í þessu viðtali í Besta sætinu förum við um víðan völl í tengslum við tíma Barkar í formannsembættinu hjá knattspyrnudeild Vals....more38minPlay
October 08, 2024Fyrirliðinn Ásta Eir kvaddi með Íslandsmeistaratitli: „Sátt í hjarta mínu“Eftir að hafa landað sjálfum Íslandsmeistaratitlinum með Breiðabliki um nýliðna helgi, þeim þriðja á ferlinum, greindi Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði liðsins, frá því á sunnudaginn síðastliðinn að skórnir væru komnir á hilluna. Ákvörðun Ástu kom vafalaust mörgum á óvart en hún á þó sinn aðdraganda. Ásta lék sinn fyrsta leik í efstu deild árið 2009. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og er Ásta þremur Íslandsmeistaratitlum og þremur bikarmeistaratitlum ríkari. Þá var hún hluti af liði Breiðabliks sem skráði sig á spjöld sögunnar með því að verða fyrsta íslenska liðið til að leika í riðlakeppni í Evrópukeppni.Hér má hlusta á viðtalið við Ástu Eir í heild sinni þar sem farið er nánar í saumana á ákvörðun hennar um að leggja skóna á hilluna, tímann hjá Breiðabliki, úrslitaleikinn gegn Val sem og framhaldið hjá henni og ástina hennar á Breiðabliki....more23minPlay
September 20, 2024Fréttir vikunnar 20. septemberHenry Birgir Gunnarsson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson fara yfir það helsta í íþróttaheiminum....more31minPlay
June 04, 2024Þriðjungsuppgjör Bestu deildar karlaIngvi Þór Sæmundsson fór yfir fyrsta þriðjung Bestu deildar karla með þeim Henry Birgi Gunnarssyni og Atla Viðari Björnssyni....more1h 7minPlay
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.