Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.... more
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.
August 31, 2025Pólland - Ísland 84-75: Rændir eftir dómaraskandalPóllverjar unnu Ísland 84-75 í þriðja leik liðsins á Eurobasket í körfubolta. Íslenska liðið stóð sig vel í leiknum en ótrúlegar ákvarðanir undir lok leiksins hjá dómurum leiks kostuði sitt. Þeir Benedikt Guðmundsson, Magnús Þór Gunnarsson og Halldór Örn Halldórsson mættu í Besta sætið og gerðu leikinn upp. ...more39minPlay
August 30, 2025Besta sætið: Betri gegn Belgíu þar til allt fór í baklásÍsland tapaði með grátlegum hætti gegn Belgíu í öðrum leik Evrópumótsins í körfubolta. 64-71 lokaniðurstaðan í leik sem Ísland leiddi nánast allan tímann. Ólafur Ólafsson og Benedikt Guðmundsson gerðu leikinn upp með Ágústi Orra Arnarsyni. ...more31minPlay
August 28, 2025Ísrael - Ísland: 83-71 - Vonin lifirÍsland tapaði fyrir Ísrael í fyrsta leik á Eurobasket í körfubolta. Leikurinn fór 83-71 og má segja að sigur Ísraelsmanna hafi ekki mikið verið í hættu. Þeir Tómas Steindórsson og Máté Dalmay mættu í Besta sætis hljóðverið og gerðu upp leikinn. ...more49minPlay
July 26, 2025Besta sætið: Kristófer opnar sig um ágreining við Craig PedersenKristófer Acox fer ekki á Evrópumótið í körfubolta sem hefst í lok ágúst. Tíðindin koma mörgum á óvart en þó ekki honum sjálfum. Landsliðsþjálfarinn tjáði honum í febrúar að hann myndi aldrei velja hann aftur. Kristófer tjáði sig um málið við Besta sætið....more22minPlay
July 10, 2025Besta sætið: Þörf á naflaskoðun hjá KSÍLeikur Íslands við Noreg, sem og Evrópumót kvennalandsliðsins í heild, framtíðarhorfur liðsins og staða kvennaknattspyrnu almennt var til umræðu í Besta sætinu. Ásta Eir Árnadóttir og Þóra B. Helgadóttir voru gestir Vals Páls Eiríkssonar....more55minPlay
July 09, 2025Elísabet Gunnarsdóttir: „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi”Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu í fótbolta, er nú á þeim stað sem hana dreymdi um að vera á þegar að hún var yngri og á sínu fyrsta stórmóti sem landsliðsþjálfari. Í þessu viðtali fer hún yfir áskoranirnar með Belgíu, yfirstandandi Evrópumót, íslenska landsliðið og margt fleira....more28minPlay
July 06, 2025Besta sætið: Svekkelsi í SvissÁsta Eir Árnadóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttur ræddu málin með Ágústi Orra Arnarsyni eftir svekkjandi tap Íslands gegn Sviss. ...more37minPlay
July 02, 2025Besta sætið - Tuð eftir ThunÍslenska kvennalandsliðið tapaði 1-0 fyrir Finnum í fyrsta leik á Evrópumótinu í Sviss. Liðið átti ekki sinn besta dag og léku 10 gegn 11 síðustu þrjátíu mínútur leiksins. Systurnar Þóra Björg og Ásthildur Helgadætur mætti í þáttinn og gerðu leikinn upp. ...more37minPlay
June 10, 2025Orri Steinn stefnir á toppinnOrri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta og leikmaður spænska úrvalsdeildarfélagsins Real Sociedad, í opinskáu og ítarlegu viðtali um fyrsta tímabil sitt á Spáni sem er nú lokið, samkeppnina í liðinu, framtíðar markmið, aðlögun á Spáni, landsliðsfyrirliðahlutverkið, íslenska landsliðið, verðandi föðurhlutverk sem og föður sinn Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfara Bestu deildar liðs KR. Viðtalið var tekið fimmtudaginn 5.júní. Umsjón viðtals: Aron Guðmundsson...more27minPlay
May 07, 2025Kristófer Ingi Kristinsson: „Algjört kraftaverk að þetta hafi ekki farið verr“Ekki mátti miklu muna að knattspyrnuferill Kristófers Inga Kristinssonar, leikmanns Breiðabliks, yrði að engu eftir að hann fékk blóðsýkingu í ökkla í kjölfar aðgerðar. Lífsreynslan opnaði augu hans og nú er Kristófer mættur aftur inn á völlinn og það með miklu látum en hann skoraði dramatískt jöfnunarmark Breiðabliks í uppbótartíma í 3-3 jafntefli gegn KR í 5.umferð Bestu deildarinnar á dögunum. Í þessu viðtali fer Kristófer yfir erfiðleika síðustu mánaða, hvernig þeir breyttu lífssýn hans og hversu nálægt hann var því að sjá knattspyrnuferilinn hverfa fyrir augum sér. ...more18minPlay
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.