Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.... more
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.
March 18, 2026Besta sætið - 18. marsOrri Steinn Óskarsson er mættur aftur í landsliðið en mun fyrirliðinn spila leikina gegn Kanada og Haítí? Gylfi Þór Sigurðsson mun allavega gef sig allan í verkefnið. Albert Guðmundsson verður hins vegar í sprautumeðferð á Ítalíu.Ísland á þrjá fulltrúa í marsfárinu mikla en kemur í ljós að Almar Atlason býr alls ekkert í Miami, borginni í Flórída. Hann býr í Miami, Ohio. Þetta reyndist þáttastjórnandanum mikið áfall.Meistaradeildin býður svo upp á tvo mjög spennandi leiki í kvöld og tvo minna spennandi. Áhugavert verður samt að sjá hvort Harry Kane klæði sig í markmannshanskana og hvort Igor Tudor sæki einhvern úr unglingaliðinu til að setja í markið hjá Tottenham.Þetta og margt fleira var til umræðu í Besta sætinu. Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins....more33minPlay
March 17, 2026Danijel Djuric: Hjartað eða peningar, eldur í augunum og bíómyndin Besta deildinDanijel Dejan Djuric hefur verið á meðal umtalaðri fótboltamanna landsins undanfarin ár. Hann vakti mikla athygli í framlínu Víkinga og vann með liðinu bæði Íslands- og bikarmeistaratitil áður en hann hélt utan í atvinnumennsku til Króatíu fyrir ári síðan.Þrátt fyrir að hafa liðið vel í 25 gráðunum með sundlaug í garðinum vantaði eitthvað, þá sérlega spilatíma, og er Danijel nú snúinn heim. Orðið á götunni er að KA hafi greitt hátt í 18 milljónir króna fyrir kappann sem myndi gera hann að einum dýrasta leikmanni í sögu efstu deildar.Hann hafi þá valið KA fram yfir uppeldisfélagið Breiðablik vegna þess að Norðanmenn hafi boðið svo háan samning að ekki annað hafi verið í stöðunni.Valur Páll Eiríksson ræddi skiptin við Danijel, ástæðuna fyrir þeim og valið á KA við Danijel sem fór vel yfir sviðið....more11minPlay
March 17, 2026Besta sætið - 17. marsEiga stelpurnar okkar séns á stórri endurkomu gegn Portúgal? Af hverju í ósköpunum er körfuboltinn að taka sér handboltann til fyrirmyndar og fara í milliriðlakeppni?Grindavík er orðinn deildarmeistari og það gæti reynst risastórt fyrir Ármann. Á sama tíma sést enginn möguleiki á því að Valur verði Íslandsmeistari en KR gæti gert atlögu að titlinum.Svo má búast við allavega einni góðri endurkomu í Meistaradeildinni í kvöld, spurningin er bara hvaðan hún kemur? Sporting á kannski mesta sénsinn, Chelsea á allavega ekki séns.Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins....more34minPlay
March 16, 2026Besta sætið - 16.marsEnski boltinn, KR pakkaði Stjörnunni saman og handboltalandsliðið spilar loks á heimavelli....more25minPlay
March 13, 2026Hætt 25 ára eftir þriggja ára meiðsli sem trufla enn daglegt lífSólveig Jóhannesdóttir Larsen tilkynnti á samfélagsmiðlum í vikunni að fótboltaferli hennar væri lokið þrátt fyrir aðeins 25 ára aldur. Ferlinum lauk þó í raun fyrir rúmum þremur árum síðan en hún hefur ekki getað spilað eftir að hafa orðið fyrir mjaðmarmeiðslum í Svíþjóð. Hún var þá nýkomin út í atvinnumennsku eftir að hafa unnið bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn með Val 2022.Atvinnumannadraumurinn varð því að martröð með meðfylgjandi andlegum þyngslum og ,eiðsli sem áttu þá að vara í örfáar vikur halda henni enn utan vallar og hafa raunar áhrif á daglegt líf hennar. Sólveig hefur ekki getað hlaupið síðan og glímir við verki dagsdaglega.Að ljúka ferlinum fylgir sorg en einnig léttir þar sem hún horfir nú til framtíðar án þess að hafa bolta við tærnar. Hún fær bacherlorsgráðu í stjórnmálafræði í vor, stefnir í mastersnám erlendis í kjölfarið og fann sér nýtt lið þar sem hún er á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnarkosningar.Valur Páll Eiríksson settist niður með Sólveigu og ræddi undanfarin þrjú ár, þroskann sem þeim fylgdi og það sem fram undan er....more29minPlay
March 13, 2026Besta sætið - 13.marsÞað var nóg um að ræða í Besta sætinu í dag. KA-menn opnuðu veskið til þess að fá Danijel Dejan Djuric til sín úr atvinnumennsku, Bónus deildin bauð upp á dramatík og deildarmeistarar gætu verið krýndir í kvöld. Þá er áhugaverð helgi framundan í enska boltanum....more23minPlay
March 12, 2026Besta sætið - 12. marsBrjálæði í Meistaradeildinni og hitað upp fyrir lokaumferðina í Olís-deild karla og einnig fyrir stóra umferð í Bónus-deild karla....more25minPlay
March 11, 2026Besta sætið - 11. marsFarið yfir sirkusinn hjá Tottenham og sömuleiðis í Boganum þar sem enginn virðist þora að spila með sitt besta lið. Einnig er spáð í spilin fyrir risakvöld í Meistaradeildinni....more28minPlay
March 10, 2026Besta sætið - 10. marsFarið yfir málefni handboltalandsliðsins og stöðu landsliðsþjálfarans, Snorra Steins Guðjónssonar, sem er ekki búinn að endursemja við HSÍ. Einnig er rýnt í spilin fyrir 16-liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu sem hefjast í kvöld....more27minPlay
February 01, 2026Uppgjör eftir Ísland - Króatía: Búnt á skenkinn og samning á SnorraEinar Jónsson og Rúnar Kárason mættu og gerðu upp tapið gegn Króatíu í leiknum um bronsið á EM í dag. Liðið hafnaði í 4.sæti mótsins en framtíðin lítur vel út fyrir liðið....more1h 1minPlay
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.