Borgarmyndir

Borgarmyndir

Download on the App Store

Borgarmyndir episodes

  • Bath
    Forarsvað svína og holdsveiks prins varð með tímanum nyrsti angi rómverskrar baðmenningar og síðar hápunktur Georgískrar byggingarlistar. Borgin Bath hefur í nær 3000 ár mótast af einu náttúrulegu heitu ölkeldu Bretlands og þannig öðlast sérstöðu á heimsvísu sem heilsulind með lækningarmátt.
    Í þættinum er fjallað um forsögu borgarinnar og þróun auk þess sem rætt er við íbúa um hina ýmsu hliðar tilverunnar í hunangsgulu umhverfi þeirra.
    Umsjónarmaður er Svavar Jónatansson
    41 min
  • Aldagömul stúlka úr dölum Wales
    Í höfuðborg Wales, Cardiff, er meðal annars rætt við heimamenn um ljósmyndun, ruðning og fjölmenningu. Persónulegra samtal á sér hins vegar stað yfir tebolla með aldargömlum vini sem lítur yfir farin veg tveggja heimsstyrjalda.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    32 min
  • Með David Hume í Lundúnum - seinni þáttur
    Saga Englands, 18. aldar stórvirki skoska heimspekingsins David Hume, verður að leiðarljósi í tveggja þátta ferðalagi um London og nágrenni. Sögulegur samanburður og spurningar til almennings mótast af innsýn Hume í margra alda sögu Bretlandseyja sem oft er nátengdari veruleika nútímans en margan grunar.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    31 min
  • Með David Hume í Lundúnum - fyrri þáttur
    Saga Englands, 18. aldar stórvirki skoska heimspekingsins David Hume, verður að leiðarljósi í tveggja þátta ferðalagi um London og nágrenni. Sögulegur samanburður og spurningar til almennings mótast af innsýn Hume í margra alda sögu Bretlandseyja sem oft er nátengdari veruleika nútímans en margan grunar.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    31 min
  • Vaxtaverkir Berlínar
    Á köldum haustdögum hjólar þáttarstjórnandi um Berlín og vefur saman hluta úr hinni miklu átakasögu borgarinnar við hversdagsleikann. Afraksturinn er persónuleg frásögn íbúa á umrótartímum í bland við sögulegt minningarflóð.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    29 min
  • Fresno í Kaliforníu
    Í miðju eins gjöfulasta landbúnaðarsvæðis heims er borgin Fresno. Umhverfi hennar mótast af milljarðatekjum landbúnaðar og streymi ferðafólks á leið til Yosemite Þjóðgarðsins, en innan borgarmarkanna eru innflytjendamál fyrirferðamikil. Í stuttri heimsókn við upphaf ársins 2017 er ráfað um götur og sögu borgarinnar með aðstoð heimamanna og þess sem fyrir augu ber.
    41 min
  • Stockton í Kaliforníu
    Borgin Stockton liggur við norðurenda hins mikla landbúnaðarsvæðis kennt við Central Valley í Kaliforníu. Saga Stockton er litrík og er samofin upphafi gullæðisins árið 1848. Hinsvegar hefur orðspor borgarinnar síðustu ár mótast af hárri glæpatíðni og skapað krefjandi verkefni fyrir yfirvöld. Rætt er við tvo heimamenn sem hafa upplifað borgina á ólíkan hátt, annar með áherslu á tækifærin, hinn skort á tækifærum. Þátturinn var unninn við upphaf árs 2017.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    43 min
  • Columbus í Ohio
    Í marsmánuði árið 2017 heimsótti umsjónarmaður höfuðborg Ohio, Columbus, sú 11 í röð borga á ferð sinni frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Borgin, líkt og ríkið sjálft, ber sterk einkenni miðvesturríkjanna, nema hvað þar eru áhrif landbúnaðar meiri en víðast hvar. Fjallað er um svæði Svörtu Mýranna norðan við borgina áður en haldið er inn í gróskumikil hverfi háskólasvæðisins. Rætt er við heimafólk um nýja og gamla tíma auk þess sem við hittum fyrir íbúa sem glíma við einn helsta skaðvald í bandarísku samfélagi um þessar mundir.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    51 min
  • Chicago
    Chicago í Illinois ríki í Bandaríkjunum er þriðja stærsta borg landsins, með um 2,7 miljón íbúa. Borgin við strendur Michiganvatns hefur síðan árið 2015 gengið í gegnum fólksfækkun, og mikla aukningu á byssuofbeldi í vissum hverfum. Í þættinum, sem tekin var upp árið 2017, er fjallað um hinar ýmsu hliðar vandamálsins, frá sjónarhóli lögreglunnar, samtaka sem berjast fyrir velferð og framtíð fyrrum gengjameðlima, sagnfræðings borgarinnar og áhrifamikils viðskiptamanns. Auk þess er fjallað um einstakan arkitektúr miðborgarinnar með fróðleiksfullri leiðsögn á milli háhýsa meðfram Chicago ánni.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    50 min

About Borgarmyndir

From the publisher's feed

Hvað skilgreinir borg og hvernig er saga hennar rituð? Borgarmyndir vefa saman fortíð, samtíð og framtíð borga og gerist þarmeð þáttakandi í að skrásetja söguna. Með frásögnum íbúa, gesta og…