Borgarmyndir

Borgarmyndir

Download on the App Store

Borgarmyndir episodes

  • San Clementine í Kaliforníu
    Borg samkvæmt skilgreiningu, bær samkvæmt andrúmslofti. San Clemente hefur frá stofnun sinni á fyrri hluta 20. aldar verið samofin ljúfu lífi við hafið, auk þess að hafa verið athvarf 37. forseta Bandaríkjanna, Richards Nixon. Fjallað er um sögu borgarinnar, rætt við heimafólk ásamt því að upplifa kraft hafsins í ölduformi, en borgin er heimsfræg þegar kemur að brimbrettareið. Þátturinn var gerður í ársbyrjun 2017.
    39 min
  • Los Angeles í Kaliforníu
    Los Angeles hefur mótað samtíma heimsins meira en flestar aðrar borgir í gegnum kvikmyndaiðnaðinn en á sér vissulega fleiri hliðar. Í þættinum er fjallað um sögu háskólans UCLA, þróun borgarinnar, frjálslynt strandsvæði, skapandi heim hinna sjónlausu, ástand heimilisleysis og umfjöllun unglinga um eigin nærumhverfi. Fylgst er með störfum blaðamanns hjá LA Times við vinnslu stórrar fréttar um heimilisleysi, eitt stærsta málefni borgarinnar. Þátturinn var unnin við upphaf árs 2017.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    40 min
  • Fresno í Kaliforníu
    Í miðju eins gjöfulasta landbúnaðarsvæðis heims er borgin Fresno. Umhverfi hennar mótast af milljarðatekjum landbúnaðar og streymi ferðafólks á leið til Yosemite Þjóðgarðsins, en innan borgarmarkanna eru innflytjendamál fyrirferðamikil. Í stuttri heimsókn við upphaf ársins 2017 er ráfað um götur og sögu borgarinnar með aðstoð heimamanna og þess sem fyrir augu ber.
    41 min
  • Stockton í Kaliforníu
    Borgin Stockton liggur við norðurenda hins mikla landbúnaðarsvæðis kennt við Central Valley í Kaliforníu. Saga Stockton er litrík og er samofin upphafi gullæðisins árið 1848. Hinsvegar hefur orðspor borgarinnar síðustu ár mótast af hárri glæpatíðni og skapað krefjandi verkefni fyrir yfirvöld. Rætt er við tvo heimamenn sem hafa upplifað borgina á ólíkan hátt, annar með áherslu á tækifærin, hinn skort á tækifærum. Þátturinn var unninn við upphaf árs 2017.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    43 min
  • Sakramento
    Svavar Jónatansson bregður upp mynd af sögu Sakramento á vesturströnd Bandaríkjanna og tekur fólk tali sem verður á vegi hans.
    41 min
  • Oakland
    Svavar Jónatansson bregður upp mynd af sögu Oakland á vesturströnd Bandaríkjanna og ræðir við fólk sem hann hittir á förnum vegi.
    48 min
  • San Fransisco
    San Fransisco, borg innflytjenda. Átta hundruð þúsund manna borg í Kaliforníufylki á Vesturströnd Bandaríkjanna.
    Borgin, sem áður hét Yerba Buena, er skoðuð útfrá forsögu spænskra trúboðsstöðva, byggingarlistar og skipulagsmála, tilveru innflytjenda og upplifun íbúa borgarinnar á samtíma sínum.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    42 min
  • Barcelona
    Fjallað er um sérstöðu Barcelona borgar sem hefur reynst íbúum bæði blessun og bölvun. Andrúmsloft, arkitektur, viðmót heimafólks og loftslag Katalóníuhéraðs er meðal þess sem gert hefur borgina að einni vinsælustu ferðamannaborg Evrópu. Því hefur fylgt mikill vöxtur sem leitt hefur til ýmissa vandamála, sem hafa áhrif og móta viðbrögð almennings sem og stjórnvalda við ástandi þessarar einstöku borgar.
    Þátturinn er unninn í samstarfi við Leanne Hayman.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    44 min
  • Granada
    Borgin Granada í Andalúsíuhéraði suður Spánar hefur um margra alda skeið búið yfir draumkenndum blæ. Sem fyrrum valdastóll Mára á Spáni öðlaðist borgin einstaka byggingarlist frá einu þróaðasta menningarveldi mannkynssögunnar ásamt andrúmslofti sem enn er til staðar. Í skjóli Sierra Nevada fjallanna nýtur Granada sérstöðu fortíðar Alhambra hallarinnar, vöggu Flamenco listar, en sömuleiðis veruleika samtíma, skaddaður af langvarandi efnahagskreppu. Í þættinum er fjallað um fortíð og samtíð, rætt við heimamenn, gesti og nemendur Flamenco skóla í hlíðum hins fræga Sacramonte hverfis. Umsjónarmaður er Svavar Jónatansson
    40 min

About Borgarmyndir

From the publisher's feed

Hvað skilgreinir borg og hvernig er saga hennar rituð? Borgarmyndir vefa saman fortíð, samtíð og framtíð borga og gerist þarmeð þáttakandi í að skrásetja söguna. Með frásögnum íbúa, gesta og…