Borgarmyndir

Borgarmyndir

Download on the App Store

Borgarmyndir episodes

  • Zürich í Sviss
    Í þessum þætti af Borgarmyndum fáum við innsýn í listaheim Zürich borgar í samtölum við áhrifafólk úr uppboðsbransanum og hóp ungra kvenna í gallerísbransanum.
    Sömuleiðis verður rætt við nokkra nemendur úr tveimur helstu háskólum borgarinnar, varpað ljósi á íhaldsamari fortíð siðaskiptanna sem og vandamál Zürich tengt almenningsgarði á 9 og 10 áratug síðustu aldar.
    Þátturinn er frumfluttur, en var tekinn upp í desember árið 2018.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    40 min
  • Álaborg (norður Jótlandi,) Danmörku
    Í þættinum heldur þáttargerðarmaður á æskuslóðirnar í fyrrum iðnaðarborginni Álaborg, sem tekið hefur miklum breytingum síðustu áratugi. Liðast verður eftir minningarslóðum og velt vöngum yfir eigin tilveru í borginni, 27 árum síðar.
    Rætt verður við heimafólk í austurhluta borgarinnar þar sem einar mestu endurbætur í Skandinavíu eiga sér stað á íbúðarhúsum, farið á safn borgarinnar þar sem saga borgarinnar sögð og leitað að húsnæði í huganum.
    54 min
  • Grimsby (austur Lincolnshire), Bretlandi
    Í þættinum er fjallað um hina víðfrægu fyrrum sjávarútvegsborg Grimsby sem er Íslendingum vel kunnug sökum þorskastríðanna.
    Á haustdögum 2018 var borgin sótt heim og rætt við borgarbúa um arfleið sjávarútvegarins og núverandi stöðu, en borgin hefur löngum glímt við efnahagsleg og félagsleg vandamál með tilheyrandi orðspori.
    Stærsti fiskmarkaður Evrópu, borgarbókasafnið, reyktur fiskur, endurheimt götu og verndunartilraunir ungs blaðamanns eru meðal efnis þáttarins.
    51 min
  • Hull, austur Jórvík (Yorkshire)
    Hull ásamt Grimsby eru líklega meðal kunnuglegustu borgarnafna Bretlands í eyrum Íslendinga sökum þorskastríðanna en í Bretlandi er gjarnan sett í samhengi við hnignandi iðnað og bágt atvinnuástand. Í þættinum þræðum við sögu fiskiflota borgarinnar sem um miðbik síðustu aldar var einn sá stærsti í heimi og var í senn grundvöllur hagsældar og fordóma. Rætt er við heimildarljósmyndarann og sagnfræðinginn Alec Gill, Nick Evans, prófesór í siglingarsögu, fyrrum togarasjómann, fólk á sviði lista auk fleiri íbúa borgarinnar um samtíma hennar.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    42 min
  • Brighton og Hove, austur Sussex
    Í þættinum vörpum við upp borgarmynd af Brighton og Hove, borg á suðurströnd Bretlands sem löngum hefur verið aðdráttarafl fyrir íbúa Lundúna. Núverandi borgarnafn hefur öðlast stöðu sem eftirsóknarverður staður til að búa, og er hluti íbúa fyrrum Lundúnarbúar sem enn ferðast til og frá höfuðstaðnum til vinnu. Hinsvegar er örbrot af íbúafjöldanum meðal frægustu einstaklinga samtímans og sannkallaðar stjörnur. Rætt err við ýmsa minna þekkta íbúa borgarinnar, þar á meðal mann sem vonast til að skína skært sem Youtube stjarna með miðlun fróðleiks um borgina.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    44 min
  • Columbus í Ohio
    Í marsmánuði árið 2017 heimsótti umsjónarmaður höfuðborg Ohio, Columbus, sú 11 í röð borga á ferð sinni frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Borgin, líkt og ríkið sjálft, ber sterk einkenni miðvesturríkjanna, nema hvað þar eru áhrif landbúnaðar meiri en víðast hvar. Fjallað er um svæði Svörtu Mýranna norðan við borgina áður en haldið er inn í gróskumikil hverfi háskólasvæðisins. Rætt er við heimafólk um nýja og gamla tíma auk þess sem við hittum fyrir íbúa sem glíma við einn helsta skaðvald í bandarísku samfélagi um þessar mundir.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    51 min
  • Chicago
    Chicago í Illinois ríki í Bandaríkjunum er þriðja stærsta borg landsins, með um 2,7 miljón íbúa. Borgin við strendur Michiganvatns hefur síðan árið 2015 gengið í gegnum fólksfækkun, og mikla aukningu á byssuofbeldi í vissum hverfum. Í þættinum, sem tekin var upp árið 2017, er fjallað um hinar ýmsu hliðar vandamálsins, frá sjónarhóli lögreglunnar, samtaka sem berjast fyrir velferð og framtíð fyrrum gengjameðlima, sagnfræðings borgarinnar og áhrifamikils viðskiptamanns. Auk þess er fjallað um einstakan arkitektúr miðborgarinnar með fróðleiksfullri leiðsögn á milli háhýsa meðfram Chicago ánni.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    50 min
  • Denver í Colarado
    Fjallað er um Denver í Colorado ríki í Bandaríkjunum, sem síðustu 9 ár hefur mótast af hröðum íbúavexti en einna helst nýju gullæði við rætur Klettafjalla. Ólíkt upphafsárum borgarinnar á 19. öld eru verðmætin að þessu sinni græn á litin og voru fyrir fáeinum árum ólögleg vara. Við skoðum hinn unga og ört vaxandi kannabis iðnað borgarinnar auk þess að ræða við heimafólk um lífið og tilveruna í 1600 metra hæð yfir sjávarmáli.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    51 min
  • El Paso í Texas
    Haldið er til borgarinnar El Paso í Texas ríki í Bandaríkjunum. Borgin er staðsett á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó og hefur tilvera hennar að mörgu leyti verið samofin systurborg sinni, Juarez í Mexíkó, en saman mynda þær einn stærsta landamærakjarna heims með um 2.5 miljón íbúa. Rætt er við heimafólk, bæði íbúa El Paso og Juarez og fjallað um veruleikann út frá landamærunum, efnahag og margþættri forsögu sem og samtíð borganna. Þátturinn var tekinn upp í marsmánuði árið 2017.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    41 min
  • Tuscon Arizona
    Í suðurhluta Arizona í Bandaríkjunum er borgin Tucson, með um 500.000 íbúa sem margir hverjir yfirgefa borgina þegar hiti sumarsins verður mikill. Fjallað verður um vísindatilraun norðan við borgina, sögu háskóla borgarinnar, bókahátíð, bændamarkað og veðreiðar auk þess sem rætt er við íbúa um ýmsa anga borgarinnar.
    Þátturinn var tekinn upp í mars 2017.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    41 min

About Borgarmyndir

From the publisher's feed

Hvað skilgreinir borg og hvernig er saga hennar rituð? Borgarmyndir vefa saman fortíð, samtíð og framtíð borga og gerist þarmeð þáttakandi í að skrásetja söguna. Með frásögnum íbúa, gesta og…