Borgarmyndir

Borgarmyndir

Download on the App Store

Borgarmyndir episodes

  • Edinborg
    Borgarmyndir heimsækja að þessu sinni Edinborg, höfuðborg Skotlands, í leit að vinnu og framtíð. Könnun borgarinnar verður í gegnum ólík starfstækifæri og innsýn þeirra sem hafa starfað á ólíkum vettvangi í borginni. Rætt verður við ölþyrstan blaðamann og rithöfund, götutónlistarmann, spákonu sem prjónar á götum úti og grasagarður borgarinnar heimsóttur, í leit þáttastjórnanda að ímyndaðri framtíð í einni fallegustu borg Evrópu.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    51 min
  • Glasgow
    Borgarmyndir halda að þessu sinni til Glasgow, sem er fjölmennasta borg Skotlands með rúmlega 600.000 íbúa. Með aðstoð íbúa fáum við innsýn í sögu borgarinnar fyrr og nú, þar á meðal mikilla eldsvoða, borgarstjórnmál frá fyrstu hendi og skipulagsmál. Fjallað verður um erfiðleikana sem borgin hefur löngum glímt við, góðærisskeið og sérstætt samgöngukerfi Glasgow.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    52 min
  • Patras
    Fjallað um borgina Patras í Grikklandi. Hvað skilgreinir borg og hvernig er saga hennar rituð? Borgarmyndir vefa saman fortíð, samtíð og framtíð borga og gerist þar með þáttakandi í að skrásetja söguna. Með frásögnum íbúa, gesta og sagnfræðinnar fær hlustandinn að kynnast borgum víðs vegar um heim frá ólíkum sjónarhornum. Umsjón hefur Svavar Jónatansson.
    40 min
  • Bergen
    Fjallað um Bergen. Hvað skilgreinir borg og hvernig er saga hennar rituð? Borgarmyndir vefa saman fortíð, samtíð og framtíð borga og gerist þar með þáttakandi í að skrásetja söguna. Með frásögnum íbúa, gesta og sagnfræðinnar fær hlustandinn að kynnast borgum víðs vegar um heim frá ólíkum sjónarhornum. Umsjón hefur Svavar Jónatansson.
    40 min
  • Kaupmannahöfn
    Við förum til Kaupmannahafnar, gömlu höfuðborgar Íslands, skoðum söguna og tökum borgarbúa tali.
    50 min
  • Aþena í Grikklandi
    Haldið er til Aþenu,höfuðborgar Grikklands, síðla árs 2018. Fengin er innsýn frá íbúum varðandi ólík áhrif fjármálakrísunnar sem mótað hefur tilveru landsmanna síðan 2008, gengið á Akrópolis hæðina og flakkað milli ólíkra viðfangsefna í þættinum.
    Umsjónarmaður er Svavar Jónatansson.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    40 min
  • Basel í Sviss
    Við heimsækjum forna og fræga borg sem nú er einna þekktust sem miðstöð alþjóða lyfjafyrirtækja. Á desemberdögum árið 2018 heimsótti þáttarstjórnandi Basel í Sviss, við bakka Rínarárinnar, og fræddist um forsögu borgarinnar, einstaka og óhefðbundna þróun á sviði skurðaðgerða, og áhrif ungra frumkvöðla á sæta þróun borgarinnar. Tónlist í þættinum kemur frá heimsókn í frægasta tónlistarskóla heims á sviði forntónlistar. Þátturinn er frumfluttur, en var tekinn upp í desember árið 2018.
    Umsjón: Svavar Jónatansson.
    40 min

About Borgarmyndir

From the publisher's feed

Hvað skilgreinir borg og hvernig er saga hennar rituð? Borgarmyndir vefa saman fortíð, samtíð og framtíð borga og gerist þarmeð þáttakandi í að skrásetja söguna. Með frásögnum íbúa, gesta og…