Share CCQ stundin
Share to email
Share to Facebook
Share to X
Halla Marinósdóttir, stjórnandi á sviði árangurs og umbóta, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni. Orkusalan rekur mjög öflugt gæðastarf þar sem unnið er að stöðugum umbótum. Þau eru með jafnlaunavottun, ISO 14001 og ISO 45001 og því að mörgu að huga.
Halla segir frá vegferðinni sem hún hefur leitt í gæðastarfi Orkusölunnar og nýtt tæknina sér til stuðnings og mikilvægi þess að virkja starfsfólk.
Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni. Aðalheiður hefur tekið við stöðu gæðastjóra sveitarfélagsins og umtalsverðar breytingar hafa átt sér stað síðan hún kom síðast í viðtal fyrir rúmum 3 árum síðan. Aðalhieður
Gná Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Versa Vottunar, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni.
Gná er annar stofnandi Versa Vottunar, sem býður upp á þjónustu tengda úttekt og vottun á stjórnkerfum fyrir skipulagsheilidir í öllum starfsgeirum. Versa Vottun fór nýlega í gegnum alþjóðlega faggildingu sem þýðir að vottanir veittar af Versa Vottun gilda á alþjóðamarkaði en ekki aðeins á Íslandi.
Í CCQ stundinni ræða Maria og Gná um hvað það þýðir að fara í vottun, hvað þarf að vera tilbúið fyrir 1. stigs úttekt og svo 2. stigs úttekt. Einnig ræða þær um rótargreiningu og hvert hlutverk vottunaraðila raunverulega er. Megar vottunaraðilar veita ráðgjöf? Mega vottunaraðilar aðstoða?
Sjónarhorn Gnár er mjög áhugavert þar sem hún er venjulega í hlutverki úttektaraðila en hefur nýlega gengið í gegnum ytri úttekt á sínum rekstri. Hún hefur því setið beggja megin borðsins sem veitir henni góða innsýn og verðmæti fyrir aðila sem eru á leið í ytri úttekt.
Ef þú vilt vita mhttps://www.youtube.com/watch?v=zjrx348Igzk&list=PLbUGzTD8hdYJTiiVwwYhPxKJvGdxYCwtS&index=1eira um CCQ geturðu skoðað hér: https://www.ccq.cloud/is
Sigurbjörn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni.
Sigurbjörn hefur starfað hjá sjóðnum síðan 1989 og sem framkvæmdastjóri síðan 1997.
SL lífeyrissjóður var fyrsti lífeyrissjóðurinn á Íslandi til þess að hljóta ISO vottun og eru þau í dag með bæði ISO 9001 og ISO 27001 og eru að vinna hörðum höndum að því að ná ISO 14001 vottun.
Sigurbjörn segir frá gæðamálum og gæðastjórnun hjá SL lífeyrissjóði og hvernig þróun hefur verið í þeim málum.
Ef þú vilt vita meira um CCQ geturðu skoðað hér: https://www.ccq.cloud/is/
Elísabet Ýr Sveinsdóttir, fjármálastjóri Orkusölunnar, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni.
Elísabet Ýr tók við stöðu fjármálastjóra í júní 2021 og fékk fljótlega það verkefni í hendurnar að innleiða jafnlaunakerfi samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna.
Orkusalan hefur lagt mikla vinnu í gæðamál hjá sér og innleiddu CCQ sem gæðastjórnunarkerfi hjá sér og hafa unnið mjög flotta vinnu þar inni.
Elísabet segir frá jafnlaunakerfinu, uppbyggingu þess með Justly Pay og notendaupplifun í CCQ.
Einnig er hægt að hlusta á þáttinn á öllum helstu streymisveitum.
Ef þú vilt vita meira um CCQ geturðu skoðað hér: https://www.origo.is/lausnir/ccq
Að þessu sinni er það hann Sigurður Arnar Ólafsson gæðastjóri Kópavogsbæjar sem er gestur CCQ stundarinnar. Sigurður segir frá vegferð sinni í áttina að því að verða gæðastjóri sem og vinnu sinni hjá Kópavogi og þróun gæðamála þar. Kópavogsbær er eina sveitarfélagið á Íslandi sem er með ISO 9001 vottun fyrir allt stjórnunarkerfi bæjarins.
Hrefna Gunnarsdóttir verkefnastjóri persónuverndar er gestur okkar að þessu sinni.
Hrefna sér um persónuvernd hjá Reykjanes- og Suðurnesjabæ. Hún hefur séð um málaflokkinn í langan tíma og var farin að vinna með vinnsluskrár í Excel áður en nýju persónuverndarlögin tóku gildi árið 2018.
Hrefna segir frá vegferðinni frá því að halda utan um vinnsluskrár í Excel yfir í að sjá um þær í gegnum CCQ. Í vinnu sinni notast Hrefna við Frávikagreininga-einingu CCQ, sem á ensku nefnist Questionnaire. Hún segir frá hlutverki sínu og hvaða verkefnum hún sinnir.
Einnig er hægt að horfa á upptöku af viðtalinu hér.
Aðalsteinn Árnason gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri Skeljungs er gestur okkar að þessu sinni.
Stjórnendur Skeljungs hafa verið afar framsækin þegar kemur að rekstri gæðamála með það fyrir sjónum að auðvelda aðgengi starfsfólks að upplýsingum. Aðalsteinn segir okkur frá þessu ferðalagi og hversu fljótt og vel starfsfólk hefur aðlagast og lært á nýjar lausnir sem hafa auðveldað þeim sín daglegu störf.
Nýverið hefur Skeljungur hlotið tvær ISO vottanir með afburða árangri, þar sem vottun hlaust án nokkra athugasemda. Þau vinna metnaðarfullt starf og huga vel að öllum gæðamálum sem er auðvitað mjög mikilvægt í þeirra rekstri. Aðalsteinn fer yfir ferlið og þeirra gengi.
Þú getur líka horft á upptöku af viðtalinu hér.
Í fjórða þætti CCQ stundarinnar er erindi Mariu Hedman, vörstjóra CCQ, á notendaráðstefnu Heilbrigðislausna Origo sem haldin var 19. nóvember síðastliðinn.
Maria fer yfir hvernig CCQ getur nýst til þess að halda utan um klínískar leiðebiningar, verklagsreglur og vinnulýsingar og hvernig það getur hjálpað heilbrigðisstarfsfólki að nálagst sín gögn.
Við þökkum Heilbrigðislaunum kærlega fyrir tækifærið að fá að taka þátt í þessari fínu fjar ráðstefnu sem þau héldu og vonum að innihaldið veki áhuga.
Ef þú vilt horfa á myndskeiðið geturðu gert það hér.
Ef þú vilt vita meira um CCQ geturðu skoðað hér: https://www.origo.is/lausnir/ccq
Einar Bjarnason gæðastjóri hjá Límtré Vírnet er gestur okkar að þessu sinni.
Einar segir okkur frá flutningi gæðahandbókarinnar úr Focal í CCQ og hvernig þau vista nú öll frumrit tengd gæðahandbókinni í CCQ.
Límtré Vírnet notar CCQ eignaskrá mikið - Einar segir frá vegferðinni sem hófst á gagnrýni á ákvörðuninni að skipta um eignastjórnunarkerfi en hefur nú þróast yfir í mikla notkun og ánægju.
Límtré Vírnet eru CE vottuð og nýverið fór viðhaldsúttekt fram með öðrum hætti en vanalega. Úttektin var framkvæmd í gegnum Teams. Úttektina framkvæma aðilar í Noregi sem venjulega mæta á staðinn með tilheyrandi kostnaði. Í þetta sinn var úttekt framkvæmd á 4 klukkustundum og sparaði bæði tíma og mikinn kostnað. Einar segir okkur aðeins frá framkvæmdinni á þessari úttekt og hvernig þau leysa það að vera með gæðahandbók á íslensku en erlendan úttektaraðila.
Þú getur líka horft á viðtalið hér: https://youtu.be/hajNSjo3L2Q
The podcast currently has 12 episodes available.