Eigin Konur

Eigin Konur

By Edda FalakSociety & Culture
Download on the App Store

Eigin Konur episodes

  • Súsanna

    Súsanna kemur frá yndislegu heimili en fann að það var eitthvað sem vantaði í líf hennar. Hún byrjaði 12 ára í fíkniefnaneyslu eftir að hún prófaði einu sinni hass með vinum sínum. Hún var síðan greind með geðhvarfasýki sem ekki er vitað hvort kom vegna neyslu. Ég og Súsanna vorum saman í menntaskóla og talar Súsanna um að hafa búið í greni í kringum þann tíma, hún segir ekki hægt að lýsa þeim aðstæðum sem hún bjó við og að myglan í vaskinum hafi verið margra vikna gömul. Hvernig fjármagnar svona ungur krakki neyslu? Súsanna segist ekki hafa verið beint að selja sig en hafi valið kærastana sína eftir því sem hana vantaði á þeim tíma og hafi gert hluti einungis til þess að fjármagna neysluna sína. Árið 2017 greinist Súsanna með krabbamein og er hún var með hægvaxandi blóðkrabbamein sem birtist í húðinni sem hún er ennþá að glíma við. Súsanna er ótrúlegur einstaklingur og segir að maður þekki ekki eigin styrk fyrr en reynir á.

    11 min
  • Gummi Emil - "snýst um að vera beast í lífinu"

    Einkaþjálfarinn og samfélagsmiðlastjarnan Gummi Emil hefur engan tíma fyrir kvenfólk, hann hefur verið upptekin. Agaðari mann er erfitt að finna og hefur hann náð góðum árangri í sinni íþrótt. Á þessu ári tók hann þátt í Arnold Classic UK og síðan Íslandsmeistaramótinu í Fitness þar sem hann tók annað sæti. Fyrir mótin var hann að æfa 12x í viku og borðaði í kringum 1500 kaloríur og segir meðal annars “ég lenti í því á fimm daga fresti að taka bara “GÚFF”, tvær Flatey pizzur, snúður og burger”. Rétt fyrir mótið var hann farinn að vilja mat sem hann myndi aldrei borða, farinn að þefa af mat, horfa á matarvideo og horfa á aðra borða. Gummi losaði sig við 9kg á sólahring og ræddum við aðeins um heilbrigði, hvernig áhrif þetta hafi á hausinn, hvers vegna maður leggi allt þetta á sig og hvað maður fái út úr því.

    Þátturinn er í boði:     

    https://omnom.is/

    1 hr 5 min
  • Margrét Sif “þegar ég sagði honum að pabbi hans væri kominn í fangelsi svaraði hann: “LOL á hann”

    TW. Margrét kynntist barnföður sínum mjög ung og byrjaði ofbeldið mjög snemma. Hann beitti hana líkamlegu og andlegu ofbeldi sem stóð yfir í langan tíma. Við spyrjum oft brotaþola “afhverju fórstu ekki?”. Fyrstu mánuðirnir í sambandinu voru dásamlegir og taldi hann hana trú um að hún væri einstök. Hann fór síðan að beita hana andlegu ofbeldi sem fólst í niðurlægingu og skömmun og beitti hana einnig líkamlegu ofbeldi. Fjölskyldan hans setti yfirleitt skömmina á Margréti og átti hún að hafa reitt hann til reiði með þeim afleiðingum að hann lyfti henni upp og fleygði henni í gólfið, fyrir framan barnið. Ekki spyrja þolanda heimilsofbeldis “afhverju fórstu ekki?” Það fylgir því mikill ótti að fara frá ofbeldismanninum því þetta gerist inn á þínu eigin heimili. Þar sem öryggi þitt og skjól á að vera og þegar ógnin býr innan veggja heimilisins veit maður ekkert hvert maður á að fara.

    11 min
  • Gunnar Hansson

    Gunnar hansson þekkja nú kannski flestir en hann er hvað þekktastur fyrir að leika Frímann Gunnarsson. Gunnar lifði einn með reynslu sinni af kynferðislegri misnotkun lengi og sagði ekki nokkrum lifandi manni frá því. Við ræðum aðeins um metoo bylgjuna og segir hann meðal annars: “Ég hef oft hugsað, þarna stíg ég fram og segi frá, þar sem gerandinn minn er Karl Vignir, sem er alveg svona “sterio týpískur lóner perri”. Hvað ef ég hefði stigið þarna fram og sagt frá þessu og þetta hefði verið landsþekktur maður sem er þekktur fyrir eitthvað gott, frægur íþróttamaður, eða stjórnmálamaður eða hvað ef hann hefði verið í fjölskyldunni minni? Því viðbrögðin sem ég fengið við það að stíga fram, í bæði skiptin, voru í einu orði sagt jákvæð.”

    Þátturinn er í boði:    

    https://omnom.is/

    1 hr 27 min
  • Vigdís Howser - Getur þú kallað þig feminista ef þú styður ekki “sexwork”?

    Rapparinn Vigdís Howser Harðardóttir, sem gengur undir listanafninu Fever Dream flutti frá Berlín til Íslands eftir að hafa fengið nóg af “Partý Berlín” í bili. Vigdís var einnig meðlimur í Reykjavíkur dætrum þar og túruðu þær um allan heim. Hún segir vanta allt pönk í íslenskan feminisma. Við ræðum aðeins afhverju Vigdís hætti í Reykjavíkurdætrum, white feminism, ofbeldi í æsku og fl.

    11 min
  • Gunnar Karl Ólafsson

    Gunnar Karl er sérfræðingur á kjarasviði hjá stéttarfélaginu Báran. Hann hefur verið virkur í umræðunni og skrifar einnig greinar inni á Vísi. Gunnar var búsettur í Berlín þegar honum var byrlað og beitt kynferðisofbeldi. Hann hefur sýnt alveg ótrúlegan kraft í umræðunni og hvernig hann vann úr áfallinu. Við ræðum um gerendameðvirkni, afneitun og þöggun sem hefur verið afgerandi í umræðunni. Eftirmálar kynferðisofbeldis eru erfiðir, en þolendur eru þrettán sinnum líklegri til að reyna sjálfsvíg en þeir sem hafa ekki lent í kynferðisofbeldi. Þolendur ofbeldis skulda gerendum sínum ekki neitt og yfirleitt er þolendum alveg sama hvort gerendur upplifi einhverskonar "útskúfun" eða fái ekki vinnu. Þolendur ofbeldis hafa flosnað upp úr vinnu, eytt mörg hundruð þúsund krónum í sjálfsvinnu og yfirleitt misst miklu meira en gerendur hafa nokkurtíman misst.   

    Þátturinn er í boði:    

    https://omnom.is/

    1 hr 12 min
  • Ingibjörg Eyfjörð - Kynlífsvinna, staðalímyndir og ofbeldismenning (Áskriftarþáttur)

    Trigger warning. Ingibjörg er tveggja barna móðir úr Mývatssveit. Hún er þremur vinnum og ein af þeim er OnlyFans. Við ræðum aðeins staðalímyndir, geðsjúkdóma og kynlífsvinnu. Ingibjörg ræðir einnig skömmina sem fylgir því að vera nauðgað, hvernig hún kenndi sér um að hafa verið of freðin, að hún hefði nú átt að passa sig betur. Slíkur hugsunarháttur kemur líklegast frá samfélaginu, samfélagið segir þér að þú átt ekki að vera of full og ekki of sexy. Við ræðum einnig um kynlífsvinnu og hvað við flokkum undir feminisma og hvað ekki.



    12 min
  • Gabríela Bryndís - Kynbundið ofbeldi, Narsissisti og gaslýsing

    Gabríela Bryndís er sálfræðingur og einn af stofnendum líf án ofbeldis. Gabríela talar um að ofbeldi sé kynbundið og það sé engin bias í því. Við förum yfir hugtökin Narsissisti, gaslýsing og hvað það feli í sér að vera með narsissíska persónuleikaröskun. Sambönd fá oft þann stimpil á sig að vera stormasöm þegar þetta eru jafnvel bara rótgrónir fordómar sem þarf að uppræta og sérstaklega þegar börn eru í spilinu. Í lokin ræðum við aðeins um hvaða úrræði séu fyrir gerendur og það sé misskilningur að við séum að hjálpa gerendum með drottningarviðtölum og þar af leiðandi að styðja þá í þessari gaslýsingu og fórnarlambsleik.   

    Þátturinn er í boði:    

    https://omnom.is/

    1 hr 18 min
  • Jói Dagur (Áskriftarþáttur)

    Jói Dagur er rappari og má eflaust kalla "legend in the game". Jói Dagur var í neyslu í 16 ár og hefur upplifað margar skuggahliðar lífsins og verið á stað sem hann óskar engum að vera á. Jói dagur segir meðal annars frá hræðilegri reynslu þegar hann og vinur hans reykja saman fentanýl plástur sem leddi til þess að Jói fór í hjartastopp. Vinur hans reynir síðan að vekja hann með því að kveikja í hönd hans. Jói barðist við fíknisjukdóminn í 16 ár og talar um skaðsemi fordóma gagnvart fíklum og afhverju afglæpavæðing neysluskammta sé mikilvæg fyrir samfélagið og fólk sem glímir við fíknisjúkdóm.


    10 min
  • Helena Hilmars - Kærði barnsföður sinn fyrir ofbeldi
    Helena Hilmars kærði barnsföður sinn fyrir líkamsárás, heimilsofbeldi, eignaspjöll og umsáturseinelti. Málið kærði hún í febrúar í fyrra og fer að líða að því að málið fyrnist hjá lögreglu, en svona mál fyrnast innan tveggja ára. Síðustu ár hafa verið hreint helvíti fyrir Helenu og þarf hún ennþá að deila forsjá með barnsföður sínum. Einnig er verið að setja sprengiefni á bílinn hennar til þess að eyðileggja hann. Hvernig getur það tekið hátt í tvö ár að kalla hinn kærða inn í skýrslutöku, hvernig getur það verið ásættanlegt að senda tveggja ára gamalt barn til manns sem beitti mann ofbeldi í mörg ár? Ætti sá sem beitir barnsmóðir sína ofbeldi, fyrir framan barnið sitt, ekki að vera jafn líklegur til þess að beita barn ofbeldi?  
    Þátturinn er í boði:    
    https://omnom.is/
    1 hr 18 min

About Eigin Konur

From the publisher's feed

Eigin konur