Eigin Konur

Eigin Konur

By Edda FalakSociety & Culture
Download on the App Store

Eigin Konur episodes

  • 26. Katrín Jakobs - Hlutverk stjórnvalda í baráttu við ofbeldi
    Katrín Jakobsdóttir er forsetisráðherra og formaður vinstri grænna. Við töluðum um kynbundið ofbeldi & hlutverk stjórnvalda þessari baráttu ásamt því að fara yfir afglæpavæðingu neysluskammta. Katrín lagði fram frumvarp og aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi í maí og velti ég því aðeins fyrir mér hvernig það á að ná til allra á meðan við erum að refsa fólki í neyslu sem verður fyrir slíku ofbeldi.    
    Þátturinn er í boði:  
    https://blush.is/ 
    https://omnom.is/
    46 min
  • 24. Helga Vala Helgadóttir - Réttarkerfið og þolendur ofbeldis
    Það má segja að Helga Vala sé allur pakkinn. Hún er leikkona, þingmaður Samfylkingarinnar og lögmaður. Í störfum sínum sem lögmaður hefur hún sinnt réttargæslu fyrir þolendur kynferðis- og heimilsofbeldis og sérhæft sig í málefnum flóttafólks, innflytjenda og fjölskyldna. Það er varla hægt að finna betri konu inn á Alþingi fyrir þolendur ofbeldis. Helga kom og ræddi við Eigin Konur um réttarkerfið, metoo bylgjun, timana sem hún starfaði sem lögmaður og hvað hún er að gera í dag með Samfylkingunni.
    1 hr 34 min
  • 23. Tara Margrét vs Móði Bessi - Hvað eru fitufordómar?
    Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu kom ásamt einkaþjálfaranum Móða Bessa og ræddu þau um fitufordóma. Áhugaverðar umræður áttu sér stað þar sem Tara ræðir skaðaemi fitufordóma á meðan Móði Bessi talar um skaðsemi þess að vera of feitur. En hvað er það sem er raunverulega skaðlegt? eru það fordómarnir eða holdafar?
    1 hr 23 min
  • 21. Ástrós Lilja - Einhverfa og einelti í grunnskóla
    Ástrós Lilja betur þekkt á TikTok sem Dollan.16 kom í spjall við Eigin Konur. Ástrós talar mikið um einhverfuna sína á TikTok en hún fékk greiningu seint í grunnskóla. Hún talar við Eddu og Fjólu um hversu erfitt það var að fá einhverfu greinguna seint en hvernig greiningin mótaði hana sem manneskju.
    1 hr 8 min
  • 20. Helga Sigrún - Húðrútína og OCD
    Helga Sigrún lærir efnaverkfræði í háskólanum og hefur ástríðu fyrir húðvörum. Hún barðist lengi við Acne og fræðir fólk um hvaða húðvörur eru æskilegar fyrir húðina. Hun glímir við OCD og kom og spjallaði við eigin konur um framtíðarplön, ástríðu og sólarvörn.
    1 hr 12 min
  • 18. Gísli Marteinn - Borgarskipulag og cancel culture
    Sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn er ekki þekktur fyrir að láta lítið fyrir sér fara en hann er einn vinsælasti sjónvarpsmaður landsins og er einnig kaffihúsaeigandi. Gísli brennur fyrir góðu borgarskipulagi og má segja að hann sé með slík mál á heilanum og vill Reykjavíkur flugvöllinn burt. Gísli kom og ræddi við eiginkonur og sannaði það að glaðari og hressari mann væri erfitt að finna.
    1 hr 22 min

About Eigin Konur

From the publisher's feed

Eigin konur