Erna Kristín Stefánsdóttir eða “Ernuland” er guðfræðingur, samfélagsmiðlastjarna og goðsögn þegar kemur að líkamsímynd. Í þættinum ræða Eigin konur og Erna um fitufordóma, líkamsímynd og hvernig samfélagið hefur kennt okkur að líta á fitu sem óvin.
Eigin konur fengu Sigga Dögg kynfræðing til að koma í spjall og halda áfram með onlyfans umræðuna sem sprakk upp seinustu daga. Í þættinum voru tekin myndbönd frá aðilum sem höfðu mikið um málið að segja.
Ósk og Ingó eru vinir sem búa bæði til efni fyrir Only fans. Ósk er betur þekkt sem fyrsta íslenska stelpan sem byrjaði á onlyfans en Ingó er nýlega byrjaður. Þau búa saman en eru ekki í ástarsambandi. Í þættinum ræða Edda og Fjóla við Ósk og Ingó um Only fans síður þeirra og lífið bakvið tjöldin
Klara Sif er stórmerkileg 23 ára kona og lifir nú á tekjum frá Only Fans. Hún er heldur betur stór persónuleiki og óhrædd við að vera hún sjálf. Hér ræða hún og Eigin konur um hvað fer fram á Only fans síðu hennar
Kamilla Ívars er 19 ára gömul og kom fyrst fram á sínum eigin miðli 2019 þar sem hún reif þögnina yfir ofbeldi af hálfu þáverandi kærasta sínum. Kamilla kom og ræddi við okkur um hrottalegt ofbeldi sem hún hefur mátt þola síðan hún var 14 ára.