Eigin Konur

Eigin Konur

By Edda FalakSociety & Culture
Download on the App Store

Eigin Konur episodes

  • Siggi Bjarna

    Sigurður Bjarnason setti Twitter á hliðina þegar hann tweetaði um "unmistakable body shakes". Siggi vill meina að engin kona hafi þóst fá fullnægingu og sjáist það á líkamstjáningu þeirra þegar þær fá það. Í þessu einlæga viðtali talar Siggi einnig um knús þjónustu sem hann langar að opna hér á landi. Siggi nýtti sér oft slíka þjónustu þegar hann bjó í bandaríkjunum og segir hann þetta vera ómissandi þjónusta fyrir alla. Siggi er einstaklega viðkunnalegur og hnyttin húmoristi sem tekur lífinu ekki of alvarlega.

    11 min
  • Snædís Yrja - Skaðsemi Brjóstapúða og kynleiðrétting
    Það er erfitt að finna einlægari og skemmtilegri persónuleika en Snædísi Yrju. Hún fór í kynleiðréttingu fyrir nokkrum árum ásamt því að fá sér brjóstapúða. Hún opnar umræðuna um veikingi vegna brjóstapúða og lét hún fjarlægja sína fyrir aðeins fjórum mánuðum síðna. Snædís talar aðeins um kynleiðréttingaferlið og segist vera yfir sig ánægð með nýju píkuna.
    Þátturinn er í boði: 
     https://omnom.is/
    1 hr 19 min
  • Dóri DNA (Áskriftarþáttur)

    Halldór Laxness eða Betur þekktur sem Dóri DNA er líklega einn fyndnasti maður sem Íslendingar hafa að geyma. Dóri er rappari, grínisti. rithöfundur og margt fleira. Margir sem upplifa sig fastan í sömu vinnunni í mörg ár og eiga erfitt með að skipta um vinnu. Dóri talar um að fylgja hjartanu og finna það hjá sér ef manni langar að gera eitthvað nýtt. Dóri var grínisti og uppistandari í 10 ár þegar hann tók sér pásu og fór að snúa sér að öðru.

    Þátturinn er í boði: 

    https://omnom.is/


    11 min
  • Isabella Klara - Kona með typpi er vinsælt efni á Only Fans
    Isabella Klara er transkona sem starfar meðal annars á Only Fans. Við ræðum aðeins um fordóma, only fans og fáfræði. Ísabella segir að það sé eftirspurn eftir klámi þar sem kona er með typpi og er hún með ágætlega marga áskrifendur á Only Fans. Við spjölluðum aðeins um lífið og hvers vegna maður hefur þessa þörf fyrir að skilgreina fólk og vita hvaða kyn eða hver kynhneigð fólks er.  
    Þátturinn er í boði:  
    https://omnom.is/
    49 min
  • 31. Kolla Ben - Barnaníðsefni og réttarkerfið
    TW: Kolbrún Benediktsdóttir er varahéraðssaksóknari hefur vakið athygli fyrir að takast á við erfið og viðkvæm mál í réttarkerfinu og er hún í miklu návígi við skuggalegustu hliðar tilverunnar. Starfið hennar felur meðal annars í sér að horfa á barnaníðsefni  til að ákvarða refsingu á vörslu þess. Kolbrún talar um að eftirspurn sé eftir slíku efni og aldur barna sé allt niður í ungabörn með bleyju og hafi hún þurft að horfa á mann hafa endaþarmsmök við 5 ára barn. Það getur setið lengi í manni að horfa á slíkt ofbeldi og segir hún tveir tímar af tetris vera ágætis hreinsun fyrir hugann.  
    Þátturinn er í boði:  https://omnom.is/
    2 hr 36 min
  • 30. Silja Sif Kristinsdóttir - Ofbeldissamband með áhrifavald
    Síðsta metoo bylgja var ein sú umfangsmesta og opinberaði Silja Sif ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu fyrverandi kærasta síns. Hún þurfti að þola bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi í nánu sambandi og kom hún og ræddi við Eigin Konur í von um að það geti hjálpað öðrum í svipuðum aðstæðum.
    Þátturinn er í boði:
    https://omnom.is/
    1 hr 1 min
  • 29. Lenya Rún - Yngsti þingmaður sögunnar
    Lenya Rún Taha Karim er 21 árs, þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, er yngsti þingmaður sögunnar til að ná kjöri. Það varði reyndar bara í 9 klukkutíma þar sem einhver skandall átti sér stað við talningu konsninga. Lenya er fædd og uppalin á Ísland og er núna í lögfræði. hún verður fyrir rasisma vegna þess að hún er brún á hörund. Foreldrar hennar eru frá Kúrdistan en Lenya fæddist hér eftir að þau fluttust til Íslands. Hún hefur fengið ótal misgáfuleg nafnlaus skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem hún er minnt að hún sé brúnni en margir. Við ræddum aðeins um þau málefni sem hún brennur fyrir og má segja að Lenya sé algjörlega ómissandi inn á þing.  
    Þátturinn er í boði:  
    https://omnom.is/
    59 min
  • 28. Hulda Tölgyes - Ofbeldi í nánu sambandi
    Hulda Tölgyes er sálfræðingur og sérhæfir sig í EMDR meðferð. Hulda og maðurinn hennar eru bæði öflug á Instagram og eru þau ágætis hugmynd um svokallað "power couple". Þorsteinn, maðurinn hennar Huldu heldur uppi hlaðvarpinu Karlmennskan og brenna þau bæði fyrir þessi málefni. Við Hulda fórum yfir ofbeldi í nánum samböndum og töluðum um "red flags" í samböndum. Þrýstingur til kynlífsathafna, suð, fýlustjórnun, öskur og niðurlæging eru allt hlutir sem margir tengja við og jafnvel láta yfir sig ganga.
    Þátturinn er í boði:  
    https://blush.is/ 
    https://omnom.is/
    1 hr 24 min

About Eigin Konur

From the publisher's feed

Eigin konur