Eigin Konur

Eigin Konur

By Edda FalakSociety & Culture
Download on the App Store

Eigin Konur episodes

  • 16. Bertha Þórbjörg
    Akureyringurinn Bertha kom og ræddi við Eigin Konur um ofbeldissamband sem hún var í nokkur ár. Styrkurinn sem Bertha býr yfir leynir sér ekki og líkir hún fyrrum sambandi sínu við stofufangelsi. Hún ræðir um hvernig sjúkást heltók líf hennar.
    1 hr 17 min
  • 15. Jón Bjarni - Hvernig þú falsar skilríki
    Einn vinsælasti Twitter-notandi landsins, Jón Bjarni Snorrason hefur ekki farið framhjá neinum og lét hátt í sér heyra í nýjustu Metoo-bylgjunni. Jón Bjarni er aðeins 17 ára gamall en er engu að síður óhræddur við að segja það sem honum finnst og er heldur betur flott fyrirmynd fyrir unga stráka.
    1 hr 4 min
  • 14. Donna Cruz - Samfélagsmiðlar, þunglyndi og rasismi
    Leikkonan og áhrifavaldurinn Donna Cruz, opnar umræðuna um lífið bakvið samfélagsmiðla og rasisma gegn Asískum konum. Donna talar um hvað samfélagsmiðlar geta gefið brenglaða sýn inn í líf fólks og að það sé mikilvægt að minna sig á að það sem maður sjái á samfélagsmiðlum er ekki öll sagan.
    1 hr 5 min
  • 13. Sunneva Líf - Hvernig það er að vera í ofbeldissambandi
    Sunneva Líf var í ofbeldissambandi í nokkur ár og eiga þau saman tvíbura. Sunneva kemur og ræðir um ofbeldið, sjúka ást og óttann sem hún bjó við í mörg ár. Hún vill miðla til stelpna að það sé leið út og vonar að saga hennar hjálpi öðrum að finna kraftinn til þess að finna leið út.
    1 hr 20 min
  • 12. Króli - Feministi og stjórnmál
    Kristinn Óli, betur þekktur sem leikarinn og tónlistamaðurinn Króli, er nýjasti gestur Eigin kvenna. Króli hefur látið mikið fyrir sér fara í núverandi metoo bylgju. Hann er óhræddur við að kalla sig feminista og er einnig með sterkar skoðanir þegar kemur að stjórnmálum. Króli kom og ræddi við Eigin konur um lífið, forsetann, rappið, stjórnmál og #metoo.
    1 hr 35 min
  • 11. Gunnhildur Fríða - Stjórnarskráin, Samherji og spilling
    Gunnhildur Fríða er 19 ára loftslags- og samfélagsaðgerðarsinni. Síðustu vikur hefur hún leitt umræðuna varðandi nýju stjórnarskrána ásamt því að varpa ljósi á mál Samherja og hvernig spilling hefur náð að festa rætur sínar enn frekar í íslensku samfélagi. Eigin konur ræddu við hana um spillingu, stjórnmál og hvernig á að komast inn í Harvard.
    1 hr 11 min
  • 10. Saga B

    Berglind Saga betur þekkt sem Saga B hefur ekki farið fram hjá mörgum. Saga er yndislegur karakter og efnileg tónlistarkona sem rappar meðal annars um að láta ríða sér fastar eða eins og hún segir í laginu “bang me harder”. Hún tekur lífinu ekki of alvarlega og telur fólk misskilja sig. Saga ræddi við eigin konur um hugmyndina á bakvið tónlistina.

    1 hr 8 min
  • 9. Kolbrún Birna - Druslugangan og ofbeldi
    Kolbrún Birna er lögfræðingur að mennt og baráttu kona sem berst fyrir réttindum kvenna. Hún er skipuleggjandi druslugöngunnar og er að gera góða hluti á Twitter. Eigin Konur spjölluðu við hana um erfiðleika sem geta falist í því þegar gerendur taka þátt í druslu göngunni ásamt því ræddi Kolbrún um ofbeldi sem hún þurfti að þola í mörg ár.
    1 hr 8 min
  • 8. Birta Blanco - Afhverju Only Fans?
    🛑 TRIGGER WARNING 🛑 Það er sennilega ekki til fallegra blóm en Birta Blanco. Birta opnar sig og segir áhrifamikla sögu sína sem hún deilir með okkur í þessum þætti.
    1 hr 18 min
  • 7. Stígamót - Afleiðingar Only Fans
    Eigin konur fengu Steinunni, talsmann Stígamóta í viðtal til sín. Steinunn ræðir við Eigin konur um mál sem Stígamót hafa fengið á borð til sín. Stígamót er ráðgjafar- og fræðslumiðstöð sem vinnur gegn kynferðisofbeldi.
    1 hr 12 min

About Eigin Konur

From the publisher's feed

Eigin konur