Þegar dag fer að lengja sækir alvaran að körfuboltaliðum landsins. Leikirnir fara að skipta meira máli og hvert stig getur skipt á endanum öllu. Í Dominos deild kvenna virðast Keflavík, Snæfell, Skallagrímur og Stjarnan ætla að stinga af en Njarðvík getur breytt því með sigri í vikunni.Danero Thomas flúði Akureyri og skrifaði undir í breiðholti í vikunni. Mun það hafa einhver áhrif eða verða bæði lið í fallbaráttu? Er á einhvern hátt hægt að afsaka fall Hauka frá apríl síðastliðnum eða er þetta allt janúarblúsinn frægi?Gestur vikunnar er stigahæsti leikmaður efstu deildar kvenna frá upphafi, sjöfaldur íslandsmeistari og næst landsleikjahæsti leikmaður kvenna. Birna Valgarðsdóttir, skagfirðingurinn með Keflavíkurhjartað segir frá ferlinum, besta samherjanum, Dominos deildunum og svo margt fleira í podcasti vikunnar.Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna