
Sign up to save your podcasts
Or


Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí og Strikerinn Árni Jó í stúdíóið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í boltanum.
Farið er ítarlega yfir fréttir vikunnar og leiki nýliðinnar umferðar í Bónusdeild karla. Sérfræðingar þáttarins taka fyrir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar til þessa, stilla upp lista yfir fimm helstu ljósu punktana á upphafsvikum tímabilsins, rýna í bikarkeppnina og velta upp ýmsum brennandi spurningum. úr boltanum.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýr þáttur af Aukasendingunni er mættur í loftið eftir fjöruga opnunarumferð í Bónusdeild karla. Mummi Jones og Óli Dós mæta að þessu sinni til leiks og rýna í allt það helsta úr fyrstu leikjum tímabilsins ásamt Davíð Eldi.
Farið er yfir tíu atriði sem fyrsta umferðin kenndi okkur og velt upp spurningum um stöðu mála í deildinni: hversu slök var Stjarnan á sínum fyrsta leikdegi, geta Keflvíkingar í raun orðið virkilega góðir í vetur og eru Njarðvíkingar í vandræðum?
Þá er rætt um atvinnumannamál og byrjunarerfiðleika hjá bæði KR og Grindavík, auk þess sem rýnt er í fimm liða fallpakkann á botninum. Á hinum endanum er farið yfir flotta frammistöðu Vals og stórleik leikmanna eins og Atla Freys. Einnig taka félagarnir fyrir bestu íþróttahús og hallir landsins, svara spurningum frá hlustendum og fara yfir ýmislegt fleira.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið. Davíð Eldur stýrir umræðunni að þessu sinni og fær JónFrí til sín, auk þess sem fleiri sérfræðingar leggja orð í belg.
Í þættinum er farið yfir komandi tímabil í Bónusdeild karla og leikinn um Meistara meistaranna. Þá er rýnt í félagaskiptagluggann og hvaða hreyfingar komu mest á óvart fyrir veturinn. Einnig er tekinn léttur topp fimm listi yfir þau lið í gegnum tíðina sem reyndu að kaupa titilinn án árangurs, ásamt ýmsu öðru sem bar á góma í lengri kantinum.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur og fer körfuboltaveturinn af stað af fullum þunga. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni voru þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó sem fóru yfir allt það helsta.
Farið var yfir fréttir vikunnar og boltann sem er þegar byrjaður að rúlla í Bónusdeild kvenna, þar sem sérstaklega var rýnt í sigurleik KR gegn Stjörnunni. Þá beindust sjónirnar að Meistarakeppni KKÍ um helgina þar sem Grindavík og KR mætast í Meistara meistaranna í karlaflokki, auk þess sem hitað var rækilega upp fyrir fyrstu umferð Bónusdeildar karla sem fer af stað í næstu viku. Til að toppa umræðuna stilltu félagarnir upp yfirliti yfir þá þjálfara og leikmenn sem bera hvað þyngstu pressuna á sínum herðum fyrir komandi leiktíð.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru þeir Jón Frí og Strikerinn Árni Jó, sem mættu vel gíraðir til að greina stöðuna fyrir komandi átök í Bónusdeild karla.
Í þættinum er tekin söguleg yfirferð á gengi nýliða í efstu deild allt aftur til ársins 1996 og rýnt í hvernig nýliðum gengur almennt að fóta sig meðal þeirra bestu. Þá er farið ofan í saumana á lagaskiptingu deildarinnar fyrir komandi tímabil: Hvaða lið geta raunverulega orðið meistarar, hver geta blandað sér í þann hóp, hvaða lið sigla lygna sjó án mikillar hættu á falli en eiga lítið erindi í toppbaráttuna, og hvaða lið eru dæmd í harða fallbaráttu í vetur?
Undir lokin er svo tekin skemmtileg vending út fyrir völlinn þar sem félagarnir stilltu upp fimm bestu Keflvíkingum allra tíma – fyrir utan körfuboltann.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur í loftinu þar sem farið er yfir allt það heitasta í íslenska körfuboltanum. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Heisi Högg og JónFrí.
Spennan fyrir komandi tímabili í Bónusdeild karla heldur áfram að magnast og í þættinum birtir þríeykið uppfærða spá fyrir veturinn í ljósi nýjustu vendinga. Þá er rýnt í félagaskiptamarkaðinn og teknir fyrir fimm leikmenn sem þeir væru til í að sjá, og telja alls ekki ólíklegt, að færi sig um set á komandi leiktíð.
Til að toppa umræðuna er svo tekin nostalgísk og skemmtileg yfirferð yfir sögu helstu spútnikliða í efstu deild karla síðustu 30 árin – liðanna sem komu öllum að óvörum, sprengdu allar spár og settu deildina á hliðina. Að sjálfsögðu er einnig farið yfir helstu fréttir vikunnar auk þess sem skór vikunnar eru á sínum stað í boði Wodbúðar.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Helgi and David are back after the summer (and a missed end-of-season podcast) in a new studio, Rabbrýmið. First, congratulations to Grindavík men's and Njarðvík women's for winning the championships last season. Then we touch on the two NT men's games that were just played. We do our power rankings for the top divisions, we sometimes agree (sometimes not) and the median is found through mathematics (after the recording). Big moves are discussed and we're just glad to be back! Enjoy!
Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir sviðið í íslenska boltanum. Í þetta skiptið mættu þeir Heisi Högg og Mummi Jones sem gestir þáttarins og fór þríeykið yfir víðan völl fyrir komandi átök í Bónusdeild karla.
Í þættinum er litið um öxl og stærstu móment síðasta tímabils gerð upp, áður en sjónum er beint að komandi leiktíð: Hvar er mesta pressan fyrir veturinn, hvaða félög/leikmenn/þjálfarar finna mest fyrir hitanum og hverjir mega alls ekki misstíga sig?
Aðalumræðuefni þáttarins er hins vegar ítarleg yfirferð á „þaki og gólfi“ hvers einasta liðs í Bónusdeildinni. Rýnt er í hvaða væntingar áhangendur geta raunhæft gert til sinna manna – hversu hátt getur liðið flogið ef allar stjörnur stillast upp og allt gengur upp, og hversu djúpt getur það sokkið ef allt fer á versta veg og lukkan snýr baki við hópnum?
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM sem fram fóru á dögunum gegn Serbíu og Tyrklandi.
Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla. Rýnt í hvaða lið standa frammi fyrir erfiðustu byrjuninni í fyrstu umferðunum og tekin góð umræða um efnilega, unga leikmenn sem búast má við að fái tækifæri á gólfinu í vetur.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM, en fram undan eru gríðarlega sterkir andstæðingar þar sem liðið mætir Serbíu í Belgrad á föstudag og tekur svo á móti Tyrklandi á mánudag, auk þess sem stuttlega er litið yfir nýafstaðinn æfingaleik gegn Finnlandi.
Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla þar sem birt er uppfærð spá fyrir komandi leiktíð. Litlar breytingar eru á toppnum en miklar sveiflur og vendingar eiga sér stað um miðja deildina. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
From the publisher's feed
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Ranked by our users in the last 21 days

466 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

26 Listeners

91 Listeners

9 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

35 Listeners

13 Listeners

25 Listeners

14 Listeners

2 Listeners