Fjárfesting

Fjárfesting

By Útvarp SagaComedyBusinessInvesting
Download on the App Store

Fjárfesting episodes

  • Fjárfesting - Þáttur 21: Raftæki
    Rafmagn færir okkur gleði um jólin. Við nýtum raftækni til að færa hlustendum fyrirframupptekinn Þorláksmessuþátt svo Davíð tæknimaður komist í jólafrí. Ryksugur, leysigeislar og uppþvottavélar rata í umræðu þáttarins og mögulega í pakka undir jólatré.
    1 hr 5 min
  • Fjárfesting - Þáttur 20: Fasteignir
    Sum hver búum við í húsi. Þáttur dagsins er ekki jólaþáttur heldur skemmtiþáttur um fasteignir. Við tölum við Óskar hjá Fjárfestingu fasteignasölu, Ástu Birnu arkítekt og Hlyn fasteignamiðlara í Kýpur. Við lítum einnig út í heim með lærðum pistli frá Magnúsi Skúlasyni ráðgjafa þáttanna og loks íhugum við það sem raunverulega skiptir máli í lífinu.
    1 hr 1 min
  • Fjárfesting - Þáttur 19: Jólakort
    Það er gaman að gleðja fólk um jólin. Á alþjóðlegum degi jólakorta skrifa þáttastjórnendur jólakort handa öllum sem hringja inn! Svo er að sjálfsögðu hringt í jólakortasérfræðing og Stefán Michaelsson, sérstakur ráðgjafi þáttanna, sendir hugheila jólakveðju.
    58 min
  • Fjárfesting - Þáttur 18: Píla
    Það er gaman að kasta pílu í mark. Í þessum þætti fjöllum við ekki um Pílu Pínu, ævintýrasöngleik sem settur var upp á Akureyri um árið, heldur íþrótt. Ingibjörg pílumeistari segir sögur, Skorri hjá Bullseye deilir sjónarmiði rekstraraðila og Tumi Björnsson leikskáld sendir okkur fjórða útvarpsleikritið sem flutt er í sögu Útvarps Sögu.
    1 hr 1 min
  • Fjárfesting - Þáttur 17: Fjölmiðlar
    Góður fjölmiðill reynir að vera heiðarlegur í hvívetna. Við ræðum við fjölmiðlafólk um fjölmiðla og kynnum auk þess dagskrárliðinn „myndir þú fyrir pening“ til sögunnar. Vigdís flytur málefnalegan pistil með sekkjapíputónlist.
    1 hr
  • Fjárfesting - Þáttur 16: Hlutabréf
    Hlutabréf vaxa stundum í verði. Við ræðum hlutabréfamarkaði í besta þætti Fjárfestingar – skemmtiþáttar um fjármálin til þessa. Við sláum á þráðinn til Mogens hjá Íslandssjóðum, Kristínar Hildar hjá Fortuna Invest og heyrum í ónefndum starfsmanni hjá Hótel Keflavík. Þá flytur góðvinur þáttarins Magnús Skúlason Cand. Mag. lærðan pistil um ævintýralegan vöxt á verði Game Stop.
    1 hr 3 min
  • Fjárfesting - Þáttur 15: Músik
    Góð músik gleður eyrun. Við hlustum og tölum og veltum fyrir okkur fjármálum tónlistarbransans. Viðskiptafyrirsagnir vikunnar eru á sínum stað ásamt þéttri dagskrá viðmælenda sem segja okkur frá músik.
    1 hr 1 min
  • Fjárfesting - Þáttur 14: Stress
    Stress er stundum erfitt. Við ræðum stress með fjármálagleraugun á nefinu og róandi tónlist í tækinu. Anna hjá Kvíðameðferðarstöðinni veltir vöngum og góðvinur þáttarins, Eiríkur Jón, deilir upplifun sinni með pistli.
    56 min
  • Fjárfesting - Þáttur 13: Glingur & Skraut
    Alls konar glingur og skraut er fallegt. Vigdís heimspekingur leysir Hákon af í þessum þætti og ræðir glingur og skraut, við fáum pistil um múmínbolla ásamt því að útvarpsleikritið Gullsmiðurinn er flutt í fyrsta sinn.
    54 min
  • Fjárfesting - Þáttur 12: Gröftur
    Gröfur grafa í jörðina en tölvur grafa í alnetið. Við ræðum nánar um rafmyntir og hvaðan þær koma. Vigdís, heimspekingur þáttanna, spjallar í símann, Magnús Skúlason Cand. Mag. flytur lærðan pistil og Kjartan hjá Myntkaupum fræðir okkur um Bitcoin.
    59 min

About Fjárfesting

From the publisher's feed

Fjárfesting – skemmtiþáttur um fjármálin er glænýr gaman- og fræðsluþáttur sem ber ekki undir neinum kringumstæðum að túlka sem fjármálaráðgjöf. Hákon Jóhannesson og Matthías Tryggvi Haraldsson kanna…