
Sign up to save your podcasts
Or


Shadi Ghadirian er listljósmyndari í heimalandi sínu Íran. Í verkum sínum fjallar hún iðulega um mannréttindi og stöðu kvenna þrátt fyrir gríðarlega strangar reglur um tjáningarfrelsi. Heimilisstörfin, kvennlíkaminn, tabú hlutir og stríð er allt að sjá í verkum hennar sem eru öll unnin inní stúdíói.
Sister Rosetta Tharpe hefur bæði verið kölluð guðmóðir rokksins og "the original soul sister".
Hún bæði söng og spilaði á rafmagnsgítar og var áhrifavaldur á tónlist ekki ómerkari manna en Chuck Berry, Little Richard og Johnny Cash.
Hún gekk svo í endurnýjun lífdaga á fimmtugs aldri eftir mörg mögur ár í heimalandinu þegar ungir, hvítir Bretar uppgötva bluse og gospel tónlist svartra Bandaríkjamanna.
Þessi stórmerkilega kona átti heldur betur viðburðaríka ævi og segja má með sanni að hún hafi lifað tímana tvenna og jafnvel þrenna.
Konurnar í skugganum eru 19. aldar ljósmyndarar frá Íslandi, Danmörku og Færeyjum sem sagt er frá á ljósmyndasýningunni „Í skugganum“ sem stendur nú yfir í Þjóðminjasafninu. Hlaðvarpssysturnar Lolla og Linda skruppu í hús hámenningarinnar og ræða um ljósmyndir og líf þessar kvenna innan um hefðarfólk, indjána og þræla. Hvernig svo hönnun á klósetti blandast inni í þetta samtal er ofar okkar eigin skilningi.
Norah Jones hefur átt einstaklega farsælan tónlistarferil alveg frá því fyrsta platan hennar kom út fyrir 20 árum síðan og sló alveg rækilega í gegn öllum að óvörum.
Hún hefur selt yfir 50 milljón plötur og unnið 9 Grammy verðlaun. Sungið með Willie Nelson, Dolly Parton, Mike Patton og Foo Fighters svo eitthvað sé nefnt og Billboard Magazine setti hana á toppinn yfir merkilegustu jazz tónlistarmenn fyrsta áratugar þessarar aldar.
Tina Modotti var ástríðu ljósmyndari og ákafur byltingarmaður sem skildi eftir sig lítið en merkilegt myndasafn.
Slóð Tinu er þvert yfir heimsálfur og líf hennar ævintýri líkast.
Courtney Love hefur átt mjög skrautlega ævi svo vægt sé til orða tekið. Topparnir hafa verið háir en lægðirnar líka að sama skapi mjög djúpar.
Hún hefur ekki bara fengist við tónlist heldur líka leiklist nánast allan sinn feril og hefur m.a.s verið tilnefnd til Golen Globe verðlauna fyrir kvikmyndaleik.
Og svo var hún auðvitað líka gift Kurt Cobain.
Ástralski ljósmyndarann Anne Geddes skaust upp á stjörnuhimininn uppúr 1990 með ofur rómantískum myndum sínum af ungabörnum sofandi inn í blómum eða liggjandi á graskeri. Hrifnæmnin hríslaðist um almúgan sem keypti bækur og dagatöl í milljónum eintaka. Anne ætlaði alltaf að verað heimsfrægur ungabarnaljósmyndari og varð það sannarlega.
Kate Bush er ein allra merkilegasta tónlistarkona okkar samtíðar. Þegar jafnaldrar hennar voru að taka út unglingaveikina sat hún heima við píanóið og samdi lög sem við erum að hlusta á enn þann dag í dag og eru alveg jafn góð og þau voru þá.
Hún er brautryðjandi á mörgum sviðum og er ein af fáum sem getur látið sig hverfa algerlega úr sviðsljósinu árum saman en fellur aldrei í gleymsku.
Julia Margaret Cameron fæddist áður en ljósmyndatæknin var fundin upp.
Þegar hún byrjar að mynda var hún að skapa list og lét miskunarlausa gagnrýni ljósmyndara ekki á sig fá. Meðan Darwin hrósar manni og Lísa í Undralandi vill sitja fyrir á mynd eru manni allir vegir færir.
Hún elst upp í Akron í Ohio en flytur rétt rúmlega tvítug til Bretlands og hefur búið þar allar götur síðan.
Hún lendir í suðupotti pönksins, giftist næstum því Johnny Rotten og stofnar svo hljómsveitina Pretenders 1978 og verður heimsfræg nánast á einni nóttu þegar lagið Brass in pocket slær í gegn. Og öllum þessum árum seinna er hún enn sami töffarinn, enn að búa til tónlist, mála olíumálverk og vera amma þegar hún nennir
From the publisher's feed
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…