Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

By Lovísa og LindaArtsMusicMusic History
Download on the App Store

Fljúgum hærra episodes

  • 32) Fljúgum hærra - Marianne Faithfull

    Ef einhver hefur átt viðburðaríka ævi þá er það þessi stórkostlega kona. 
    Hún varð poppstjarna 17 ára gömul alveg óvart, verður kærasta Mick Jagger, missir gjörsamlega fótana í lífinu og deyr næstum því tvisvar.
    Hún rís þó eins og Fönix upp úr öskustónni og á ríflega miðjum aldri eignast hún aðdáendur og samstarfsfólk í ekki ómerkari tónlistarmönnum en Nick Cave, Warren Ellis, Billy Corgan og Beck. 
    Og eftir allt sem á undan hafði gengið þá var það covid sem náði næstum að setja hana í gröfina en hún hristi það af sér og 75 ára gömul neitar hún að gefast upp.

    1 hr 22 min
  • 31] Fljúgum hærra - Linda McCartney. Rokkið og rúnturinn

    Hún var New York stelpa, fædd inn í heim tónlistar og markaði sér sinn sess þar sem ljósmyndari á sama tíma og rokkið var að trylla nýja kynslóð. 
    Linda giftist Bítlinum Paul McCartney og stór hluti af þeirra lífi var á vegum úti í tónleikaferðalögum. Ljósmyndabókin hennar „Roadwork“ fær sérstaka athygli í þessum þætti.

    43 min
  • 30) Fljúgum hærra - Tori Amos

    Tori Amos var undrabarn í tónlist. Hún var farin að leggja stund á klassískan píanóleik þegar jafnaldrar hennar voru ekki einu sinni farnir að lesa og ný hættir að nota bleyju.
    Hún varð þó aldrei konsertpíanisti eins og til stóð í upphafi því hún vildi bara spila það sem henni fannst skemmtilegt og það gat verið David Bowie og Led Zeppelin rétt eins og Debussy eða Schubert.
    Örlögin haga því þannig að hún fer til Bretlands þar sem ferillinn hefst fyrir alvöru eftir fremur brösuga byrjun og hún er enn að 30 árum seinna.

    1 hr 21 min
  • 29) Fljúgum hærra - Ingibjörg Ólafsdóttir. Kona á fjöllum

    Hún fór á alla kleifa tinda landsins, alla jökla og hvern slóða sem hægt var.
     Þetta var fjallgeitin og landslagsljósmyndarinn Ingibjörg Ólafsdóttir sem eyddi öllum sínum aurum í filmur, framköllun og útivist. Myndir hennar voru í tímaritum, á póstkortum og dagatölum og kannski uppá vegg heima hjá Lollu í Skagafirði.



    46 min
  • 28) Fljúgum hærra - Lolla og Linda. Sveitavargurinn og Gaflarinn

    Hverjar erum við? Hvaðan komum við, hvert erum við að fara og af hverju erum við eitthvað að tjá okkur um konur í tónlist og ljósmyndun?
    Vegna fjölda áskorana (ekki bara út af því að Linda var búin að vera á safnamannaskralli á austfjörðum og ekki tilbúin með næsta handrit) þá ætlum við að segja aðeins frá okkur sjálfum. 
    Það koma við sögu hópferðir á þungarokkstónleika, mixteip, gæruvesti, tjaldútilegur á Snæfellsnes og Tom Jones. 

    46 min
  • 27) Fljúgum hærra - Róisín Murphy (Moloko)

    Róisín Murphy hóf tónlistarferilinn eiginlega alveg óvart þegar hún hitti strák í partýi sem hana langaði til að kynnast betur, vatt sér upp að honum og notaði svo súra pick up línu að hann gat ekki annað en boðið henni á deit og saman urðu þau svo dúettinn Moloko.
    Þegar þau svo nenntu ekki lengur að vera kærustupar einhverjum árum seinna ákveður hún að demba sér í sólóferil og þar koma við sögu speglaflísar, risahumar, rándýrt plötucover, trúðabúningar og ítölsk tökulög svo eitthvað sé nefnt af skrýtnum og skemmtilegum hlutum sem hún hefur fengist við um ævina.

    1 hr 1 min
  • 26) Fljúgum hærra - Vivian Maier. Mary Poppins með myndavél

    Vivian var stórkostlegur ljósmyndari sem vann fyrir sér sem barnfóstra. 
    Teinrétt í alltof stórri kápu og skóm þræddi hún bæði breið borgarstræti og nöturleg skúmaskot í leit að sögum. Hún hins vegar sýndi engum verkin sín og stærsti hlutinn af filmum hennar voru óframkallaðar þegar hún dó. Í dag er enn verið að slást um verkin hennar

    53 min
  • 25) Fljúgum hærra - Ann og Nancy Wilson (Heart)

    Hljómsveitina Heart þekkja eflaust allir sem á annað borð hafa hlustað á tónlist síðustu 45 árin eða svo og þó margir tengi hana við spandex, hárlakk og dramatískar powerballöður þá er það tímabil bara örlítið brot af þeirra langa ferli.
    Systurnar Ann og Nancy Wilson hafa verið stoð og stytta Heart nánast frá upphafi og margt hefur gengið á í þeirra lífi síðan þær byrjuðu að syngja saman Bítlalög til að skemmta foreldrum sínum og gestum þeirra þegar þær voru enn barnungar.


    1 hr 16 min
  • 24) Fljúgum hærra - Homai Vyarawalla, fyrsti kvenfréttaljósmyndari Indlands

    „Þessi stelpa hættir ekki fyrr en hún er búin að blinda mig“ sagði Gandhi einhvertímann þegar hann var orðinn leiður á flassinu hennar Homai Vyarawalla. Hún var fyrsti konan í Indlandi sem starfaði sem fréttaljósmyndari og þekkt undir dulnefninu Dalda 13. Hún myndaði helstu stórviðburði í sínu landi, lítil snaggaraleg kona á reiðhjóli, klædd í sarí með þunga myndavél á öxlinni.

    57 min

About Fljúgum hærra

From the publisher's feed

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…