
Sign up to save your podcasts
Or


Einn af sögufrægum ljósmyndahópum Bandaríkjanna var hin róttæka og kraftmikla Ljósmyndaherdeild – The Photo League í New York. Óvenju marga konur voru í þessum hópi sem börðust gegn félagslegu óréttlæti með myndavélina að vopni. En í hópi þeirra var líka uppljóstrari FBI sem sá kommúnista í hverju horni.
Nina Simone ætlaði aldrei að spila jazz eða dægurlög heldur stefndi hún á það frá unga aldri að verða konsertpíanisti.
Hún var mjög ósátt með þá uppgjöf sem henni fannst réttindabarátta svartra í Bandaríkjunum hafa endað í og flytur þaðan 1968 og til dauðadags 2003 býr hún annarsstaðar og þá lengst af í Frakklandi.
Hún þótti skapmikil og oft erfið í samskiptum en enginn efaðist um hæfileika hennar á píanóinu.
Yevonde var brautryðjandi í ljósmyndatækni og þá sérstaklega á sviði litljósmyndunar sem hún fór að stunda á undan flestum öðrum.
Sinéad O´Connor hefur gengið í gegn um margt á sinni ævi.
Á nokkrum vikum fór hún frá því að vera ein skærasta stjarnan á popp himninum og eftirlæti allra yfir í að vera úthrópuð og smánuð fyrir það eitt að rífa eina ljósmynd í beinni útsendingu í sjónvarpi.
En eins og hún hefur sjálf sagt þá ætlaði hún aldrei að verða poppstjarna heldur aðgerðasinni að berjast fyrir réttlæti
Faye Schulman var pólsk gyðingastúlka sem slapp undan klóm Nasista í seinni heimstyrjöldinni vegna ljósmyndakunnáttu sinnar.
Hún líkt og fleiri gyðingar, gekk til liðs við sovéska skæruliða. Íklædd pardusloðfeldi og með riffilinn og myndavélina að vopni dvaldi hún tvö ár í skóginum. Ljósmyndir hennar eru einstakar og mikilvæg söguleg heimild.
Debbie Harry varð ein af stærstu stjörnum pönk- og nýbylgjusenunnar í New York á átta áratugnum þegar konur áttu oft enn í erfiðleikum með að vinna sér inn viðurkenningu í tónlistarbransanum á eigin forsendum.
Hún leikur í kvikmyndum, gefur út sólóplötur og dregur svo vagninn þegar Blondie snúa aftur með látum eftir margra ára dvala. Og svo var hún vinkona Andy Warhol
Hin sænska Emma Schenson var fyrsti ljósmyndarinn til að opna stofu í hinni sögufrægu borg Uppsala.
Saga dómkirkjunnar, frægir vísindamenn og jafnvel stórbruni tengjast sögunni um Emmu. Og svo þekkja bæði Linda og Lolla borgina.
Dusty Springfield fór frá því að vera eina af stærstu poppstjörnum 7. áratugarins í það að vera öllum gleymd, grafin og umkomulaus í Bandaríkjunum þar sem engin eftirspurn var eftir henni. Gefandi út plötur sem enginn nennti að hlusta á.
Þar til að tveir ungir tónlistarmenn sem sem voru miklir aðdáendur hennar draga hana aftur fram í dagsljósið og dusta af henni rykið.
Zanele Muholi frá Suður Afríku kallar sig ekki ljósmyndar heldur aktívista.
Við kíktum á yfirstandandi sýningu Muholis á Listasafni Íslands sem fjallar bæði um ranglæti og ofbeldi gangvart hinsegin fólki í Afríku en líka um samhug, ást og stolt.
Á einhverjum tímapunkti á ferlinum komst Sia að því að hún vildi ekki verða þekkt andlit, bókstaflega. Hún vildi bara bara vera konan bak við tjöldin sem semdi lög fyrir margar af stærstu tónlistarstjörnum dagsins í dag.
En þegar hún svo sjálf átti hvern risa smellinn eftir annan þá voru góð ráð dýr og þannig kom hárkollan fræga, sem náði niður fyrir nef til sögunnar.
From the publisher's feed
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…