
Sign up to save your podcasts
Or


Lynn Goldsmith er töffari frá Detroit borg sem fékk snemma titillinn rock 'n' roll ljósmyndarinn.
Hún hefur myndað allar stjörnur í rokkheiminum frá hippatímanum fram til okkar daga. Grand Funk Railroad hefur strippað fyrir hana, mamma hans Gene Simmons í Kiss hefur rekið út úr sér tunguna í myndavélina hennar og Patti Smith er besta vinkona hennar. Lynn er ótrúlega fjölhæf og sló meira að segja í gegn árið 1983 með plötu sem hún gerði í flippi með vinum sínum.
Þó Taylor Swift sé ekki nema 33 ára gömul þá er hún fyrir löngu orðin ein allra vinsælasta tónlistarkonan í heiminum í dag og þarf að fara alla leið í Bítlana, Elvis, Michael Jackson, Elton John og aðra slíka tónlistarmenn sem eru búnir að gefa út tónlist áratugum samna til að skáka henni í sölutölum.
Hún er á listum hjá Time Magazine og Forbes yfir áhrifamestu konur samtímans og New York magazine segir um hana "the one bending the music industry to her will".
Frægustu ljósmyndir Eve Arnold voru óvenjulegar myndir af leikkonunni Marilyn Monroe.
Eve var líka önnur af tveimur til að verða fyrstu kvenkyns ljósmyndarar Magnum og tók eftirminnilegar myndir af Malcom X þrátt fyrir mikið mótlæti við það verkefni. Hún var þekkt fyrir þolinmæð og ósérhlífni og þessi spræka kona hafnaði ekki spennandi ljósmyndaverkefni fyrr en 84 ára gömul.
Skin, söngkona Skunk Anansie er fædd og uppalin í Brixton hverfinu í Suður-London en í stað þess að fara út í r&b, hip hop eða reggea tónlist eins og mörgum hefði þótt eðlilegast þá dembir hún sér á kaf í kraftmikið gítarrokk.
En hún hefur líka gert allskonar annað eins og að vera plötusnúður, X-Factor dómari og tísku icon.
Systurnar Luisita og Chela Escarria opnuðu ljósmyndastofu á frægasta breiðstræti Buenos Aires höfuðborgar Argentínu árið 1958.
Næturdrottningar, gamanleikarar, dansarar og tónlistarfólk mætti í myndatöku í stássstofu þeirra systra sem breyttist í stúdíó dag hvern. Myndir þessara samhentu systra hefðu mögulega fallið í gleymsku ef þær hefðu ekki eignast sinn bjargvætt. Nú veit öll Argentína af tilvist þeirra og við dreifum gleðinni í þessum þætti.
Þegar við hugsum um soul tónlist dettur eflaust flestum okkar Aretha Franklin í hug enda hafði hún mjög verðskuldað titilinn The Queen of Soul.
Hún átti feril sem spannaði næstum 70 ár og gaf út 39 sólóplötur. Hún fékk 18 sinnum Grammy verðlaun og var fyrsta konan til að vera vígð inn í Rock´n´roll hall of fame. Rolling Stone kallaði hana stórkostlegustu söngkonu sinnar kynslóðar og hún fékk sérstök heiðursverðlaun Pulitzer Prize fyrir framlag sitt til tónlistar og menningar í Bandaríkjunum
Það má sannarlega kalla franska ljósmyndarann og listamanninn Doru Maar drottningu súríalistanna. Ljósmyndir hennar voru eins og úr annarri veröld, hönd skríður úr skel, skrímsli situr á bæn og mannslíkamar taka á sig dýrslega mynd.
Þessi dulúðlega kona var ein örfárra kvenna í innsta hring súríalsita í París á millistríðsárunum. Stjarna hennar skein skært sem listljósmyndari þegar hún tók þá örlagaríka ákvörðun að þræða líf sitt saman við listamanninn Picasso. Verk hennar eru í dag hluti af ljósmyndasögunni.
Í þessum lauflétta þætti rennum við í gegn um nokkra sumarsmelli sem eru ómissandi á sumarplaylistann.
Hvort sem fólk er að grilla, skella sér í roadtrip, stússast í garðinum eða bara súpa freyðivín á svölunum hjá sér í þeim landshlutum þar sem sést til sólar þá gerir tónlist réttu stemminguna.
Patti Smith ætlaði sér aldrei að verða tónlistarkona. Hún var ljóðskáld og hafði fengið gefnar út nokkrar ljóðabækur og ætlaði bara að halda áfram á þeirri braut.
En svo þegar Sam Shepard vinur hennar stakk upp á því að hún væri með undirspil við ljóðaupplesturinn þá breyttist það allt.
Það eru engar íkjur að segja að hún sé goðsögn í lifanda lífi þrátt fyrir að hafa tekið sér langar pásur til að sinna kallinum og börnunum. Linda heldur því fram að ég sé bitur yfir því að hann hafi látið hana eyða mörgum árum í að sinna sér og hætta í tónlist þegar hún var á hátindi ferilsins og hefði getað gert svo margt en það er önnur saga.
Hou Bo var munaðarlaus sveitastelpa í Kína sem lærði ljósmyndun af japönskum stríðsföngum og reis til metorða sem einn mikilvægasti ljósmyndari í hirð Mao Zedong leiðtoga Kína.
Ljósmyndir hennar sýndu gríðarlega glansmynd af leiðtoganum meðan þjóðin dó úr hungri. Hún var harður kommúnisti og mikill aðdáandi Maós þrátt fyrir að lenda sjálf í þrælkunarbúðum í Menningarbyltingunni.
From the publisher's feed
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…