Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

By Lovísa og LindaArtsMusicMusic History
Download on the App Store

Fljúgum hærra episodes

  • 62) Fljúgum hærra - Alicia Keys

    Hún elst upp hjá einstæðri móður í hinu alræmda Hells Kitchen hverfi í New York þar sem vændiskonur voru á hverju götuhorni og glæpir og ofbeldi daglegt brauð.
    Hún eyðir löngum stundum við píanóið þar sem Chopin og Nina Simone eru í miklu uppáhaldi og það skilaði sér í því að hún var komin með plötusamning fyrir tvítugt.
    Hún kemst líka að því að það borgar sig að þekkja Opruh Winfrey og svo kemur hún fyrir í taxta lags hjá einum frægasta og áhrifamesta tónlistarmanni samtímans án þess þó að hún þekki hann nokkuð.

    1 hr 3 min
  • 61) Ellen von Unwerth - kynþokki og súpemódel

    Gáskafull erótík og geislandi kabarettandrúm er einkennandi fyrir tískuljósmyndir þessarar konu.
    Ellen von Unwerths er frá Þýskalandi og sló í geng með sexý gallabuxnamyndum af Claudiu Schiffer á níunda áratuginum. Sirkus, karnival, ofurfyrirsætur og poppdívur var veröld Ellenar og henni finnst ekkert skemmtilegra en að lokka fyrirsætur og frægt fólk úr fötunum fyrir framan myndavélina.

    59 min
  • 60) Fljúgum hærra - Alanis Morissette

    Alanis Morissette fór frá því að vera gleymd unglingastjarna frá Kanada í það að verða frægasta, reiða kona heimsins. 
    Hún talaði beint til milljóna ungra kvenna á plötunni sinni Jagged little pill sem fundu sjálfar sig í textunum hennar og hún varð súperstjarna aðeins 21 árs gömul.


    1 hr 2 min
  • 59) Fljúgum hærra - Valentina Kulagina og sovésk áróðursplaköt

    Bóndakonur með skóflur og reistan hnefa, byltingakonur með riffla eða keyrandi traktor, reykspúandi verksmiðjur, risastórir akrar, múgurinn og leiðtoginn. Áróðursveggspjöldin sem hin rússneska  Valentina Kulagina skapaði voru fullar af slíkum ljósmyndum. Maðurinn hennar Gustav Klutsis var stjarna í þessu fagi og fyrir þessi kommúnísku hjón átti lífið í Sovétríkjunum, hinu nýja ríki jafnræðis að vera dans á rósum. En í staðin var það stöðug barátta við ritskoðun og tortryggni undir ægivaldi Stalíns.

    54 min
  • 58) Fljúgum hærra - Eurovision

    Þar sem að Eurovision keppnin er núna í fullum gangi þá þótti okkur tilvalið að skella í einn laufléttan þátt um það stórmerkilega fyrirbæri.
    Við rennum yfir sögu keppninnar og spilum nokkur vel valin lög sem sum eru töluvert betri en önnur en öll fanga þau anda Eurovision síns tíma

    50 min
  • 57) Fljúgum hærra - Grace Jones

    Hún fer frá því að alast upp í litlum bæ á Jamaica í að verða tískumódel í París, kynnast Andy Warhol, halda uppi stuðinu með discotónlist í Studio 54 og gefa síðan út reggae skotnar pop plötur og láta taka af sér iconic ljósmyndir.
    Og svo koma James Bond,  Arnold Schwarzenegger og Pavarotti líka við sögu



    1 hr 28 min
  • 56) Fljúgum hærra - Eliza Scidmore. 19.aldar ferðalangur og Japans unnandi.

    Víðförla 19. aldar konan  Eliza Ruhamah Scidmore ber titilinn fyrsti kvenljósmyndari tímaritsins National Geographic. Hún skrifaði sjö ferðabækur og yfir 300 greinar í blöð og tímarit. 
    Hún var mikil aðdáandi Japans og má þakka henni að hin frægu sakura tré voru flutt til höfuðborgar Bandaríkjanna. Svo er jökull í Alaska skírður eftir henni, ekki amarlegt það.

    45 min
  • 55) Fljúgum hærra - Pink

    Pink átti að verða r&b stjarna en gafst upp á því eftir eina plötu og fór að semja og syngja tónlist eins og hana langaði til að gera.
    Hún stóð með sjálfri sér og tók sénsinn þegar allir voru að segja henni að hún væri að gera mikil mistök.
    Hún lætur ekki vaða yfir sig en er líka með húmorinn í lagi og kann þá list að taka sér pásur frá sviðsljósinu og vera ekki upptekin af frægðinni frægðarinnar vegna og koma alltaf til baka með tónlist sem hittir í mark

    1 hr 1 min
  • 54) Fljúgum hærra - Dorothea Lange

    Hin bandaríska Dorothea Lange er risanafn í ljósmyndun. Hún var töffari með næmt auga og fór í sögubækurnar fyrir heimsfræga mynd af farandverkakonu með börnin sín, mynd sem varð táknmynd Kreppunnar miklu . 
    Þótt Dorothea hafi haltrað alla ævi eftir að hafa fengið lömunarveiki sem barn, þá stoppaði það hana ekki frá því að eyða stórum hluta ævinnar á vegum úti með myndavélina á lofti.

    1 hr 6 min
  • 53) Fljúgum hærra - Carole King

    Þó nafn Carole King hringi ekki strax bjöllum hjá einhverjum þá er hún einn virtasti og farsælasti kvenkyns lagahöfundur 20. aldarinnar í Bandaríkjunum.
    Auk þess að eiga sjálf eina af mest seldu plötum allra tíma þá hefur hún samið yfir 100 lög sem hafa náð inn á Billboard Hot 100 listann og hafa yfir 1000 tónlistarmenn flutt lögin hennar í gegn um tíðina. 

    1 hr 10 min

About Fljúgum hærra

From the publisher's feed

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…