Fljúgum hærra

Fljúgum hærra

By Lovísa og LindaArtsMusicMusic History
Download on the App Store

Fljúgum hærra episodes

  • 82) Fljúgum hærra - Claire Aho. Finnsk gleði

    Glaðværð og litadýrð einkenndi auglýsingamyndir hinnar finnsku Claire Aho sem myndaði Marimekko fatnað við fæðingu þess fræga vörumerkis. 
    Claire fæddist inn í bransann og var ekki há í loftinu þegar hún fékk að fara með pabba sínum og frænda í kvikmyndaleiðangra til Lapplands. Seinna varð hún hluti af hinu þekkta kvikmyndafyrirtæki fjölskyldunnar, Aho&Soldan og varð svo fræg fyrir að vera  eina konan sem kvikmyndaði Ólympíuleikana í Finnlandi árið 1952. 
    Hún var þrælsnjöll kona með knallrautt hár sem dreifði gleðinni langt út fyrir Finnland.

    52 min
  • 81) Fljúgum hærra - Katy Perry

    Katy Perry átti frekar óhefðbundið uppeldi þar sem báðir foreldrar hennar voru ofsatrúaðir predikarar.
    Hún feta þó ekki í fótspor þeirra heldur eltir tónlistardraumana þó það gangi mjög brösuglega til að byrja með og hefðu einhverjir örugglega bara gefist upp og farið heim.
    Og þolinmæðin borgaði sig því á endanum fær hún bæði konungsríkið og prinsinn sjálfan

    48 min
  • 80) Fljúgum hærra - Margaret Bourke-White. Stríðsljósmyndari í háloftunum

    Sem barn lærði hún að nöfnin á öllum stjörnunum og átti froska og slöngur sem gæludýr. Þegar hún fullorðnast sást hún gjarnan utan á háhýsum stórborga með myndavélina með sér.  
    Þetta var hin bandaríska Margaret Bourke-White sem varð stríðsfréttaljósmyndari í seinni heimstyrjöldinni og vann fyrir tímaritin „Fortune“  og „Life“. Hún varð heimsfræg fyrir bæði frábærar myndir og einstakt hugrekki og heppni.

    57 min
  • 79) Fljúgum hærra - Dolly Parton

    Dolly Parton er goðsögn í lifanda lífi. 
    Hún braust ung úr sárri fátækt í Tennessee og varð ekki bara ein af ríkustu konum Hollywood á tímabili heldur stórstjarna í heimi tónlistar og gríðarlega afkastamikill lagahöfundur.
    Og þrátt fyrir að vera orðin rúmlega sjötug þá lætur hún engan bilbug á sér finna og hennar 49. sólóplata er væntanleg næuna í þessum mánuði þar sem fjöldinn allur af heimsþekktum tónlistarmönnum er þess heiðurs aðnjótandi að fá að syngja eða spila með henni.

    1 hr 29 min
  • 78) Fljúgum hærra - Karimeh Abbud og hennar Palestína

    Karimeh Abbud fangaði í ljósmyndum sínum Palestínu fyrir seinni heimstyrjöld og samfélagið sem leystist upp í kjölfar Nakba - hörmunganna miklu. 
    Hún var fyrsti kvenkyns ljósmyndari Palestínu og mögulega fyrsta palestínska konan til að keyra sinn eigin bíl. Í dag eru myndir hennar mikilvæg söguleg heimild um horfinn tíma.

    51 min
  • 77) Fljúgum hærra - Kim Gordon (Sonic Youth)

    Kim Gordon ætlaði sér aldrei að verða tónlistarkona. 
    Hún fór í listaháskóla og stefndi á feril í myndlist eða sviðslistum en örlögin höguðu því þannig að fólk sem hún hittir á námsárunum og stuttu eftir það var margt í einhverju tónlistar- og hljómsveitastússi og áður en hún veit af er hún bæði farin að syngja og spila á bassa í mjög framúrstefnulegu rokkbandi.

    57 min
  • 76) Fljúgum hærra - Þórdís, Sigríður og garðálfar á Laugarvatni

    Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Marrow unnu saman að því í þrjú sumur að ljósmynda veröld frístundaíbúa í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni. 
    Lífið þar virðist hverfast um samveru og notalegheit í  sólríku umhverfi með garðálfum og blómum. Þessi paradís er horfin í dag,  því stuttu eftir að verkefninu lauk var öllum hjólhýsaeigindum tilkynnt að byggðin yrði aflögð. 
    Í Þjóðminjasafni er nú sýning á þessu verki þeirra og fær sýningin að heita „Ef garðálfar gætu talað“ … og garðálfar fá alveg pláss í þessum þætti.

    48 min
  • 75) Fljúgum hærra - Diana Ross

    Diana Ross er búin að eiga sleitulausan feril frá árinu 1959 til dagsins í dag og er hvergi nærri hætt.
    Hún var aðal rödd  The Supremes, eins vinsælasta söngtríós allra tíma, hún leikur í kvikmyndum og nær að gefa út gríðarlega vinsæla discoplötu þegar disco tímabilinu var eiginlega lokið. Og hún stendur alveg undir því að vera kölluð díva eins og við heyrum í þættinum.

    1 hr 18 min
  • 74) Fljúgum hærra - Toyoko Tokiwa og konurnar í Rauða hverfinu

    Hún var þrettán ár gömul þegar faðir hennar deyr í sprengjuárás Bandaríkjahers og seinna þetta sama ár, 1945 falla kjarnorkusprengjur á Hiroshima og Nagasaki. 
    Þegar Toyoko Tokiwa verður seinna ljósmyndari beinir hún linsunni að óvininum, bandarískum hermönnum í rauða hverfinu í Yokohama, heimaborg hennar. Frægastu myndirnar sýna nöturlegar aðstæður vændiskvenna í samskiptum við hermenn og  hún skapar sér frægð með ljósmyndabókinni „Kiken na Adaba“ (Dangerous Poisonous Flowers) sem kom út 1957. Sú ljósmyndabók  gefur verðmæta sýn á samfélag Japans á umbrotatímum eftir stríðslok.

    43 min
  • 73) Fljúgum hærra - Marie Fredriksson (Roxette)

    Þó Marie Fredriksson sé þekktust sem annar helmingur dúettsins Roxetta þá er hún líka ein af ástsælustu söngkonum Svíþjóðar þar sem hún gaf út 8 sólóplötur sem allar náðu miklum vinsældum þar í landi.
    Hún var orðin mjög þekkt tónlistarkona í heimalandinu þegar þau Per Gessle stofna Roxette sem fyrir ótrúlega tilviljun slær í gegn í Bandaríkjunum án þess þó plöturnar þeirra, sem á þeim tíma voru tvær hefðu nokkurntíma verið gefnar þar út.

    55 min

About Fljúgum hærra

From the publisher's feed

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…